Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 12
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
HESTVAGN VELTUR Í ÞÝSKALANDI Nokkrir slösuðust þegar hestvagn valt í bænum Bad Tölz sunnarlega í Þýskalandi í gær. Í hestvagninum var hópur ungra kvenna, sem tóku þátt í gamalli hefð tileinkaðri heilögum
Leonhard, verndardýrlingi hesta og búfénaðar á þessum slóðum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ELDGOS Á HAVAÍ Síðan 1983 hefur staðið yfir gos í eldfjallinu Kilauea. Undanfarna mánuði hefur hraunið farið að nálgast
bæinn Pahoa óþægilega mikið. Þarna ryðst það að girðingu við bóndabæ í næsta nágrenni bæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BRENNUKVÖLD Á ENGLANDI Að venju var mikið um dýrðir víða á Englandi í fyrrakvöld þegar haldið var upp á brennukvöldið
5. nóvember. Flugeldum var skotið upp, blys borin og kveikt í brennum. Tilstandið á sér ýmsar rætur, en meðal annars er þess
minnst að þennan dag árið 1605 reyndi Guy Fawkes að sprengja upp þinghúsið í London. NORDICPHOTOS/AFP
SYNT Í HELGU VATNI Á INDLANDI Indverskur sikki bregður sér í sund í hinu helga
vatni við Gullna hofið í Amritsar í tilefni af því að 545 ár voru í gær liðin frá því að
Sri Guru Nanak Dev fæddist. NORDICPHOTOS/AFP
HELDUR Á MYND AF LENÍN Í MOSKVU Félagar úr rússneska Kommúnistaflokkn-
um lögðu í gær blóm að leiði Vladimírs Lenín, daginn fyrir afmæli byltingarinnar
1917 sem margir halda hátíðlegt í dag þótt ekki sé þetta lengur opinber hátíðis-
dagur í Rússlandi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÁSTAND
HEIMSINS
1
1
4
4
2
2
5
3
3
5