Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 22
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 22
Veitingahúsið Brekka í Hrísey
fagnar 30 ára afmæli um þessar
mundir og verður þar með eitt elsta
steikhús á landinu. Margir tengja
Brekku við Galloway-steikurnar, en
veitingahúsið varð fyrst þekkt fyrir
þær og var á tímabili eini staðurinn
þar sem þær fengust.
Á síðari árum hefur Brekka unnið
sér sess sem veitingahús fyrir alla
fjölskylduna þar sem enn má fá
Gall oway-steikurnar í bland við létt-
ari rétti, og þá ekki hvað síst hina
rómuðu humarsúpu Brekku.
Núverandi eigendur, þau Júlíus
Freyr Theodórsson og Ingibjörg
Þórðardóttir, tóku við Brekku í lok
sumars og ætla að halda upp á tíma-
mót staðarins með léttri afmælis-
hátíð annað kvöld klukkan átta. En
ásamt því að reka Brekku eru þau
hjónin með verslunina Júllabúð og
gistiheimili.
„Það verður mikið um að vera hjá
okkur, meðal annars ætlum við að
kynna nýjan matseðil. Þar verður
byggt á þeirri hefð sem er til staðar,
en með nýjum áherslum. Að auki
ætlum við að bjóða öllum upp á
humarsúpu og hlátur,“ segir Júlíus
en Þorsteinn Guðmundsson grínisti
verður með uppistand og trúbador-
inn Brynjar Davíðs spilar.
Júlíus segir ferðamannastraum-
inn yfir sumarið vera mjög mikinn.
„Þetta eru mest Íslendingar sem
koma hingað og margir þeirra eru
fastagestir og hafa komið í fjölda
ára. Fólk er aðallega að sækja í
villtu náttúruna og dýralífið hérna,“
segir hann en bætir við að heima-
menn hafi einnig verið duglegir við
að koma í Brekku og að veitingahús-
ið sé öflugur þáttur í bæjar lífinu.
adda@frettabladid.is
TÍMAMÓT
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
Elskuleg systir okkar,
MARGRÉT ÞÓRHALLSDÓTTIR
ljósmóðir,
er látin. Útför hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju miðvikudaginn 12. nóvember
kl. 13.30.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Sigurður, Kristbjörg og Guðmunda Þórhallsbörn.
Móðir okkar, fóstra, tengdamóðir,
amma og langamma,
ANNA BJÖRNSDÓTTIR
Ásabyggð 12, Akureyri,
sem lést þann 26. október, verður jarðsungin
frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. nóvem-
ber kl. 13.30.
Halldóra Ólafsdóttir Kjartan Mogensen
Sigurður Ólafsson Klara S. Sigurðardóttir
Anna Ingeborg Pétursdóttir Mitch Weverka
Matthildur og Auðun, Helga Kristín og Gunnlaugur,
Míra Kolbrún, Ólafur Kim og barnabarnabörn.
Okkar ástkæra
HULDA RAGNA EINARSDÓTTIR
Álftamýri 20, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju
mánudaginn 10. nóvember kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jón Bondó Pálsson
Jón Guðmundsson
Helgi Guðmundsson
Elsku móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
EIRÍKA KATLA DAGBJARTSDÓTTIR
fyrrverandi veitingakona,
Hjúkrunarheimilinu Sóltúni,
lést þriðjudaginn 4. nóvember.
Magnús H. Valgeirsson
Jóhanna Stefánsdóttir
Bryndís Valgeirsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1550 Jón Arason, biskup á Hólum, og synir hans, Björn Jónsson,
prestur á Melstað, og Ari Jónsson lögmaður eru hálshöggnir í
Skálholti eftir harðvítugar deilur milli lúterskra og kaþólskra um
völd í landinu.
1659 Frakkar og Spánverjar binda enda á 24 ára stríð milli land-
anna með Pýreneasáttmálanum
1718 Danska herskipið Giötheborg strandar við Ölfusárósa.
Áhöfnin bjargast.
1917 Októberbyltingin gerð í Rússlandi (samkvæmt gregoríska
tímatalinu).
1931 Héraðsskólinn í Reykholti er vígður.
1987 Ólafur Ragnar Grímsson tekur við sem formaður Alþýðu-
bandalagsins af Svavari Gestssyni.
George W. Bush repúblikani sigraði demó-
kratann Al Gore naumlega í forsetakosn-
ingum í Bandaríkjunum sem fram fóru
þennan dag árið 2000. Sú niðurstaða fékkst
þó ekki á hreint fyrr en hæstiréttur Banda-
ríkjanna kvað upp þann úrskurð í desember
með fimm atkvæðum gegn fjórum.
Bush fékk færri atkvæði á landsvísu en
Al Gore og munaði þar um hálfri milljón en
hann náði fleiri kjörmönnum. Bush hlaut
271 kjörmenn en Al Gore 266.
Þetta voru jöfnustu kosningar í Banda-
ríkjunum síðan Kennedy vann árið 1960
og í fyrsta sinn frá því á 19. öld sem for-
seti var kosinn með minnihluta atkvæða.
Endurtalið var í Flórída þar sem minnstu
munaði. Ekki bætti úr skák að kosninga-
vélar gátu ekki alls staðar lesið úr niður-
stöðum kjörseðla. Því þurfti að handtelja
fjölda atkvæða en margir atkvæðaseðlar
voru ógildir, til dæmis ef ekki tókst að gata
kjörseðilinn í gegn.
ÞETTA GERÐIST 7. NÓVEMBER 2000
Bush marði sigur í forsetakosningum
ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON fjármálaráðherra með fjárlög 1989
©DV / LJÓSMYNDADEILDIN / GUNNAR V. ANDRÉSSON
Humarsúpa og hlátur
Veitingahúsið Brekka í Hrísey fagnar þrjátíu ára afmæli á árinu og í tilefni þess verður
haldin afmælishátíð annað kvöld, laugardag, þar sem öllum verður boðið í humarsúpu.
STOLTIR EIGENDUR Þau Júlíus og Ingibjörg ætla að halda afmælishátíð á laugardagskvöld FRÉTTABLAÐIÐ/EINKASAFN
Það eru mest Íslend-
ingar sem koma hingað og
margir þeirra eru fastagestir
og hafa komið í fjölda ára.
Fólk er aðallega að sækja
í villtu náttúruna og
dýralífið hérna.