Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 24

Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 24
FÓLK|HEILSA Við stofnuðum Kerecis árið 2009 til þess að þróa notk-un á fiskiroði til að með- höndla sár og vefjaskaða. Við tókum fljótlega eftir því að húðin umhverfis sárin varð heilbrigðari og fórum að velta því fyrir okkur hvernig stæði á því. Niðurstaðan er sú að omega-3 olían í roðinu virðist hafa afskaplega heil- næm áhrif á húð. Við notum ekki roðið beint heldur vinnum sér- staka olíu úr hráefninu sem við köllum mOmega3 en mOmega3 inniheldur mikið af EPA- og DHA- fitusýrum sem tengjast heilbrigði húðarinnar. Þetta er afskaplega spennandi tækni sem við hlutum nýverið einkaleyfavernd fyrir,“ útskýrir dr. Baldur Tumi Baldurs- son húðsjúkdómalæknir, en hann er hluti af teymi sem þróað hefur húðkrem úr fiskroði. Fjórar tegundir krema eru komnar á markað, Exem, Smooth, Psoria og Footguard. Öll innihalda kremin mOmega3 en mismunandi magn af ávaxta- sýru og karbamíði. „Exemkremið er hvorki með sýru né karba- míði, Psoria er fyrir hreistraða húð og með minnst af sýru og karbamíði. Footguard er með meiri sýru og karbamíð en mest af ávaxtasýrum og karbamíði er í Smooth, sem er gert fyrir inn- vaxin hár og húðnabba.“ HVERNIG VIRKA KREMIN? „Ysta lagi húðarinnar þarf að halda heilu. Það er hægt að líkja ysta laginu við múrsteina með steypu á milli. Í þessari líkingu eru múrsteinarnir frumur húðar- innar sem eru límdar saman með blöndu af fitu og próteinum. Þetta lím sem við getum kallað millifrumuefni, er ríkt af fjöl- ómettuðum fitusýrum og öðrum efnum. Við erum með nokkrar tegundir af kremum sem með- höndla húðina og millifrumuefn- ið á mismunandi máta. Við þróun kremanna höfðum við í huga að losna við húðóþæg- indi en þó án þess að skaða önnur húðlög en þau sem eru meðhöndluð. Þannig viljum við losna við hreistrið en skilja eftir eðlilegt húðlag sem ver okkur. Ávaxtasýran og karba- míðið smýgur inn í þessa hörðu húð og þegar viðkomandi fer í sturtu eða bað brotnar þessi óvelkomna húð niður, á meðan mOmega-fitan verndar þá húð sem við viljum varðveita. Óþæg- indin sem ég nefndi geta verið hreistur af psoriasis-sjúkdómi eða hreinlega af þurrki, þá þarf ekki mikið af þessum efnum. Sprungur á fótum eru vegna allt of þykks lags af harðri húð og þá þarf meira af efnunum. Að lokum þarf mest af þeim þegar verið er að meðhöndla óþægindi eins og inngróin hár eða húðnabba á utanverðum upphandleggjum.“ REYNAST VEL Baldur Tumi segir Kerecis- kremin gefa afar góða raun en hann starfar sem húðlæknir og meðhöndlar erfið húðvanda- mál daglega. „Sum vandamálin þarfnast meðhöndlunar eða lyfja en önnur vandamál er auðvelt að meðhöndla með Kerecis- kremunum. Þessi krem uppfylltu þörf sem var fyrir hendi og hafa hlotið afbragðs viðtökur þótt við höfum haldið okkur við að aug- lýsa einungis með orðrómnum einum.“ LÆKNINGAVARA Kerecis-kremin fengu nýlega CE- merkingu sem þýðir að kremin eru lækningavara en ekki snyrti- vara. Baldur segir áfanga að hafa fengið vörurnar merktar CE. „Reglugerðarumhverfið fyrir lækningavörur er miklu flóknara en fyrir snyrtivörur og alls konar prófanir þarf að framkvæma áður en hægt er að CE-merkja. Með CE-merkingunni getum við sagt að Kerecis-kremin „meðhöndli“ ýmsa húðsjúkdóma og einkenni þeirra svo sem exem, psoriasis, húðnabba og þrálátt fótasigg. Eins gefur það notandanum einstakt öryggi um að þetta sé alvöru vara við alvöru óþægind- um, en ekki sami hálfsannleik- urinn sem hann heyrir daglega í auglýsingum.“ NÝ ÍSLENSK LÆKNINGAVARA VIÐ HÚÐVANDAMÁLUM ICEPHARMA KYNNIR Kerecis, íslensk húðkrem með omega-3 fitusýrum. Dr. Baldur Tumi Baldursson húðsjúkdómalæknir vann að þróun kremanna. LÆKNINGAVARA Kerecis- kremin eru íslensk framleiðsla, án stera og parabena og fást í öllum helstu lyfjaverslunum á landinu. Nánari upplýsingar á www.kerecis.is EFTIR Húð eftir 19 daga meðhöndlun með Ker- ecis Psoria. EFTIR Húð eftir með- höndlun í 17 daga með Kerecis Footguard FYRIR Húð áður en hún var meðhöndluð með Kerecis Footguard, fyrir sprungna hæla og fótasigg. ÍSLENSK VARA Dr. Baldur Tumi Baldursson húðsjúkdómalæknir vann að þróun Ker- ecis, húðkrema með omega-3 fitusýrum sem komin eru á markað. FYRIR Húð fyrir með- höndlun með Kerecis Psoria, fyrir þykka og hreistraða húð með kláða. EFTIR Húðin eftir meðhöndl- un með Kerecis XMA. FYRIR Húð áður en hún var með- höndluð með Kerecis XMA, fyrir auma, rauða og bólgna húð með kláða.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.