Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 26

Fréttablaðið - 07.11.2014, Page 26
2 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014 HEILSUVÍSIR Á SPOTIFY Skannaðu kóðann og tónlistar- heimur Heilsuvísis opnast þér VISSIR ÞÚ … LÍFIÐ MÆLIR MEÐ ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Umsjón Friðrika Hjördís Geirsdóttir rikka@365.is ● Ábyrgðarmaður Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Stefán Karlsson Lífi ð www.visir.is/lifid ● að þú getur ekki sleikt á þér olnbogann ● að það er ekki hægt að hnerra með opin augu ● að hver manneskja drekkur um það bil 75.000 lítra af vatni um ævina ● að þú blikkar augunum 15.000 sinnum á dag að meðaltali ● að það er ekki hægt að finna bragð af mat nema hann blandist við munnvatn HELGARBRJÁLÆÐI Sjá fleiri myndir á 20-30% AFSLÁTTUR AÐEINS ÞESSA HELGI Áður 17.990 kr. Nú 9.990 kr.Áður 19.990 kr. Nú 15.990 kr. Flest þekkjum við senuna úr Lísu í Undralandi þar sem Lísa hitt- ir köttinn skælbrosandi og spyr: „Getur þú vísað mér veginn?“ Kötturinn spyr þá að bragði: „Hvert ertu að fara?“ Lísa svar- ar: „Ég veit það ekki.“ Það er erfitt að segja þeim til vegar sem ekki vita hvert þeir eru að fara. Þess vegna er svo mikilvægt að hafa framtíðarsýn og vita hvaða áfangastaður er næstur á lífsleiðinni. Þetta á bæði við um einstaklinga, fyrirtæki og þjóðir heims. Þeim vegnar betur sem hafa skýra sýn og vinna jöfn- um höndum að því að hún verði að veruleika. Mótaðu þína framtíðarsýn Ef þú getur ekki svarað því hvert þú ert að fara, er kominn tími til að þú mótir þér framtíðarsýn. Skrifaðu niður svörin við eftirfarandi spurningum: ● Hvað myndi ég gera ef hvorki tími, peningar né innri takmarkanir eða afsakanir stæðu í veginum? ● Hvað hefur mig alltaf dreymt um að gera en aldrei látið verða að veruleika? ● Ef ég vissi að ég ætti aðeins fimm ár eftir ólifuð, hvernig myndi ég verja tímanum? Búðu til framtíðarborð Taktu saman myndir af þér að gera það sem þér finnst skemmti- legast. Myndir úr ferðalögum, þér að stunda uppáhaldsíþróttina þína, myndir af þér í góðum hópi vina og fjölskyldu og svo framveg- is. Myndirnar eiga að endurspegla það sem þú vilt hafa í lífi þínu. Bættu svo við myndum sem lýsa því sem þig langar að hafa meira af í lífi þínu – svo sem stöðuhækk- un, meiri gleði og svo framveg- is. Útbúðu nú skjal, t.d. í glærufor- riti og settu myndirnar inn. Bættu svo við jákvæðum staðhæfingum í nútíð. Dæmi: „Ég er svo glöð og þakklát nú þegar ég er orðin leið- togi deildarinnar.“ Það getur verið sérkennilegt að skrifa setningar um það sem ekki er orðið að veruleika í lífi þínu en mundu að orð eru til alls fyrst. Framtíðarsýn fyrirtækja Framtíðarsýnin er táknmynd drauma þinna og kjarnagilda. Framtíðarsýnin krefst jafnvæg- is milli rökhugsunar og innsæis, sem eru uppspretta tilgangs þíns í lífinu. Stefnumótun fyrirtækja og stofnana byggist að hluta til á því að móta framtíðarsýn. Þá er fyrst spurt um áfangastað en síðan farið í að velta fyrir sér hvernig eigi að komast þangað. Í framtíðarsýn fyrir tækja eru tækifæri þess fólgin. Það sama á við um einstaklingana. Lífið mælir með því að þú hrósir öðrum sem eiga það skilið. Oft er miklu auðveldara að koma auga á það sem er gagnrýnivert en það sem gott er gert. Verum meðvituð og byggjum hvert annað upp með hrósi og jákvæðni. Lífið hvetur þig til þess að fara inn á Fa- cebook-síðuna Hrós dagsins og dreifa þar jákvæðum boðskap. … HRÓSI Þórunn Erna Clausen leikkona situr aldrei auðum höndum. Hún flakkar á milli Ís- lands og Danmerkur þessa dag- ana þar sem hún stundar nú söngnám. Henni er margt til lista lagt og á milli þess sem ð hún syngur, leikur og semur lög þá stjórnar hún vinsæl- um þætti um tónlist frá 9. áratugnum á Bylgjunni. Þór- unn tók saman frábæran lista með lögum frá þessum tíma sem ómissandi eru í líkams- ræktina. GONNA MAKE YOU SWEAT (EVERYBODY DANCE NOW) C&C MUSIC FACTORY JUMP AROUND HOUSE OF PAIN THE POWER SNAP NO LIMIT TWO UNLIMITED RICKY MARTIN CUP OF LIFE I CAN SEE CLEARLY NOW JIMMY CLIFF ROCKAFELLAR SKANK FATBOY SLIM SMELLS LIKE TEEN SPIRIT NIRVANA HANSON MMMBOP AQUA BARBIE GIRL ÞAÐ BESTA FRÁ NÍUNDA ÁRATUGNUM HVERT ERTU AÐ FARA? Hvað er að hindra þig í að láta drauma þína rætast og ná öllum þínum markmiðum? Edda Jónsdóttir, leiðtogamarkþjálfi CPC og stofnandi EddaCoaching Mótaðu þína framtíðarsýn. N O RD IC PH O TO S/ G ET TY Heilsuvísir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.