Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 30
6 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014 Í síðasta þætti af Heilsugenginu var Halldóra Sigurdórsdótt- ir heimsótt, en hún var sárþjáð af vefjagigt og öðrum kvillum. Halldóra tók málin í sínar hend- ur og með því að breyta um mataræði og hugsunarhátt tók líf hennar stakkaskiptum. Solla Eiríks bjó til fyrir hana þetta bráðholla og bragðgóða rauð- rófusalat. 3 rauðrófur, afhýddar og skornar í bita 1 msk. fennelfræ 1 tsk. sjávarsaltflögur 1 msk. kókosolía + 1 msk. vatn 2-3 grænkálsblöð, nudduð upp úr ólífuolíu, engifer og sítrónusafa 2 dl brokkólíblóm, nudduð upp úr ólífuolíu, engifer og sítrónusafa 1 lárpera 50 g valhnetur, þurrristaðar um 10 jarðarber, skorin í fernt ólífuolía, balsam-edik, sjávarsaltflögur til að skvetta yfir Afhýðið rauðrófurnar, skerið í bita, stráið yfir salti og fennel- fræjum ásamt vatni og kókos- olíu og bakið í ofni við 175°C í um 30 mín. Setjið í skál ásamt öllu hinu sem eftir er. Blandið saman og skvettið ólífuolíu og balsam-ediki yfir og nokkrum sjávarsaltflögum. BRÁÐHOLLT OG BRAGÐGOTT RAUÐRÓFUSALAT Áhugi á núvitund eða „mindfulness“ fer sívaxandi um heim allan en að- ferðin er mikið notuð í íþróttum, stjórnunarfræðum, skóla- og heil- brigðiskerfi svo dæmi séu nefnd. Bókin Núvitund – Leitaðu inn á við er nýkomin út hjá Forlaginu í þýð- ingu Guðna Kolbeinssonar. Hún er eftir Chade-Meng Tan, einn af frum- kvöðlum Google. Bókin spratt upp úr vinsælu námskeiði sem haldið hefur verið hjá Google um árabil. Það hefur vakið mikla athygli og gjörbreytt lífi margra þátttakenda, bæði í starfi og einkalífi. Chade-Meng Tan var falið að þróa aðferð til að bæta sköp- unargáfu, afköst og ánægju starfs- manna. „Þetta gerði hann með æf- ingum í hugleiðslu sem styrkja til- finningagreind og stuðla að aukinni samkennd, jafnaðargeði, gleði og skarpari hugsun,“ segir á bókarkápu. Sálfræðingurinn og núvitundarkenn- arinn Pálína Erna Ásgeirsdóttir hefur hellt sér út í núvitundarfræði á síð- ustu árum og hlotið kennaraþjálfun í Mindfulness Based Stress Reduction (MBSR) hjá Jon Kabat-Zinn, upp- hafsmanni „mindfulness“. Chade- Meng Tan hefur hlotið sömu þjálf- un. Pálína las bókina hans á ensku og fagnar útkomu hennar á íslensku. Auðlesin og full af húmor „Þetta er auðlesin og skemmtileg bók, full af húmor og manngæsku. Hún kemur kjarnanum vel til skila og sýnir hvernig hægt er að laga fræðin að hinum ýmsu aðstæðum.“ En hvað er nú- vitund? „Ég hef notað skilgrein- ingu Jon Kabat- Zinn og held að flestir aðhyllist hana. Hún er á þessa leið: „Núvitund snýst um að vera meðvitaður á sérstakan hátt um það sem er að gerast á meðan það er að gerast, án þess að dæma það.“ Pálína segir þörf á öllum þess- um orðum til að útskýra hugtak- ið. „Það er meðal annars ástæðan fyrir því hvað það hefur verið erfitt að sameinast um eitt orð. Hér á Ís- landi hefur verið notast við gjörhygli, árvekni, vakandi athygli og vakandi hug. Ég held þó að flestir séu að reyna að hópa sig um Núvitund.“ Núvitundarmiðuð meðferð Pálína segir núvitundarfræðina góða viðbót við sálfræðina. „Ég hef að hluta til notað núvitundarmið- aða meðferð. Mér finnst hún gagnast þeim sem eru að takast á við krísur og andlegan vanda. Þá er mikilvægt að vera svolítið meðvitaður um hvað er að gerast á meðan það er að gerast til að geta brugðist öðruvísi við en út frá gamla vananum,” útskýrir Pálína. Bætt lífsgæði og einbeiting Pálína segir aðferðina líka spennandi fyrir fólk sem vill auka lífsgæði sín, bæta ein- beitingu og njóta ferðarinnar í gegn- um lífið. „Ég tala nú ekki um á okkar tímum þegar flestir upplifa aukið áreiti samfara notkun á hinum ýmsu snjalltækjum. Við erum alltaf í ein- hvers konar samskiptum og þá er auðvelt að týna sjálfum sér.“ Pálína segir að sýnt hafi verið fram á að núvitundaræfingar dragi úr streitu og geti minnkað kvíða og depurð. „Líf mitt hefur breyst mikið eftir að ég tileinkaði mér núvitund. Ég var streitubolti en geri bæði formlegar og óformlegar núvitundaræfingar á hverjum degi og líki lífinu fyrir og eftir ekki saman.” Sálfræðingurinn Margrét Arn- ljótsdóttir skrifar formála í bók- ina, en hún hefur haldið fjölmörg námskeið um núvitund hér á landi. Hún er í Alúð, félagi um núvitund og vakandi athygli, sem um helgina heldur námstefnu um hugrækt og núvitund á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Á námstefnunni verð- ur meðal annars fjallað um bók Chade-Meng Tan og notkun nú- vitundar í íslensku atvinnulífi, heil- brigðiskerfi, skólum og fangelsum svo dæmi séu nefnd. Pálína segir líf sitt hafa breyst mikið eftir að hún tileinkaði sér núvitund. MYND/VILHELM AUGLÝSING: FORLAGIÐ KYNNIR KEMUR KJARNANUM VEL TIL SKILA Bókin Núvitund – Leitaðu inn á við er nýkomin út. Hún er eftir Chade-Meng Tan, einn af frumkvöðlum Google. Bókin spratt upp úr vinsælu námskeiði sem haldið hefur verið af Google um árabil. Það hefur gjörbreytt lífi margra þátttakenda. „Með því að fl étta tímalausa visku saman við nútímavísindi hefur Chade-Meng Tan skapað skemmtilegan og raunhæfan leiðarvísi að velgengni og hamingju.” Deepak Chopra Ponchoin komin aftur í comma, Vorum að taka upp fullt af nýjum vörum. Verð aðeins 7.990 kr. Geymum ósóttar Poncho pantanir til 16. nóvember Heilsuvísir

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.