Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 30
6 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014
Í síðasta þætti af Heilsugenginu
var Halldóra Sigurdórsdótt-
ir heimsótt, en hún var sárþjáð
af vefjagigt og öðrum kvillum.
Halldóra tók málin í sínar hend-
ur og með því að breyta um
mataræði og hugsunarhátt tók
líf hennar stakkaskiptum. Solla
Eiríks bjó til fyrir hana þetta
bráðholla og bragðgóða rauð-
rófusalat.
3 rauðrófur, afhýddar og
skornar í bita
1 msk. fennelfræ
1 tsk. sjávarsaltflögur
1 msk. kókosolía + 1 msk.
vatn
2-3 grænkálsblöð, nudduð
upp úr ólífuolíu, engifer og
sítrónusafa
2 dl brokkólíblóm, nudduð
upp úr ólífuolíu, engifer og
sítrónusafa
1 lárpera
50 g valhnetur,
þurrristaðar
um 10 jarðarber, skorin í
fernt
ólífuolía, balsam-edik,
sjávarsaltflögur til að
skvetta yfir
Afhýðið rauðrófurnar, skerið í
bita, stráið yfir salti og fennel-
fræjum ásamt vatni og kókos-
olíu og bakið í ofni við 175°C
í um 30 mín. Setjið í skál ásamt
öllu hinu sem eftir er. Blandið
saman og skvettið ólífuolíu og
balsam-ediki yfir og nokkrum
sjávarsaltflögum.
BRÁÐHOLLT OG BRAGÐGOTT
RAUÐRÓFUSALAT
Áhugi á núvitund eða „mindfulness“
fer sívaxandi um heim allan en að-
ferðin er mikið notuð í íþróttum,
stjórnunarfræðum, skóla- og heil-
brigðiskerfi svo dæmi séu nefnd.
Bókin Núvitund – Leitaðu inn á við
er nýkomin út hjá Forlaginu í þýð-
ingu Guðna Kolbeinssonar. Hún er
eftir Chade-Meng Tan, einn af frum-
kvöðlum Google. Bókin spratt upp úr
vinsælu námskeiði sem haldið hefur
verið hjá Google um árabil. Það hefur
vakið mikla athygli og gjörbreytt lífi
margra þátttakenda, bæði í starfi og
einkalífi. Chade-Meng Tan var falið
að þróa aðferð til að bæta sköp-
unargáfu, afköst og ánægju starfs-
manna. „Þetta gerði hann með æf-
ingum í hugleiðslu sem styrkja til-
finningagreind og stuðla að aukinni
samkennd, jafnaðargeði, gleði og
skarpari hugsun,“ segir á bókarkápu.
Sálfræðingurinn og núvitundarkenn-
arinn Pálína Erna Ásgeirsdóttir hefur
hellt sér út í núvitundarfræði á síð-
ustu árum og hlotið kennaraþjálfun í
Mindfulness Based Stress Reduction
(MBSR) hjá Jon Kabat-Zinn, upp-
hafsmanni „mindfulness“. Chade-
Meng Tan hefur hlotið sömu þjálf-
un. Pálína las bókina hans á ensku
og fagnar útkomu hennar á íslensku.
Auðlesin og full af húmor
„Þetta er auðlesin og
skemmtileg bók, full af
húmor og manngæsku.
Hún kemur kjarnanum
vel til skila og sýnir
hvernig hægt er að
laga fræðin að hinum
ýmsu aðstæðum.“
En hvað er nú-
vitund? „Ég hef
notað skilgrein-
ingu Jon Kabat-
Zinn og held að
flestir aðhyllist hana. Hún
er á þessa leið: „Núvitund snýst um
að vera meðvitaður á sérstakan hátt
um það sem er að gerast á meðan
það er að gerast, án þess að dæma
það.“ Pálína segir þörf á öllum þess-
um orðum til að útskýra hugtak-
ið. „Það er meðal annars ástæðan
fyrir því hvað það hefur verið erfitt
að sameinast um eitt orð. Hér á Ís-
landi hefur verið notast við gjörhygli,
árvekni, vakandi athygli og vakandi
hug. Ég held þó að flestir séu að
reyna að hópa sig um Núvitund.“
Núvitundarmiðuð meðferð
Pálína segir núvitundarfræðina góða
viðbót við sálfræðina. „Ég hef að
hluta til notað núvitundarmið-
aða meðferð. Mér finnst
hún gagnast þeim sem
eru að takast á við krísur
og andlegan vanda. Þá er
mikilvægt að vera svolítið
meðvitaður um hvað er að
gerast á meðan það er að
gerast til að geta brugðist
öðruvísi við en út frá gamla
vananum,” útskýrir Pálína.
Bætt lífsgæði og einbeiting
Pálína segir aðferðina líka
spennandi fyrir fólk sem vill
auka lífsgæði sín, bæta ein-
beitingu og njóta ferðarinnar í gegn-
um lífið. „Ég tala nú ekki um á okkar
tímum þegar flestir upplifa aukið
áreiti samfara notkun á hinum ýmsu
snjalltækjum. Við erum alltaf í ein-
hvers konar samskiptum og þá er
auðvelt að týna sjálfum sér.“ Pálína
segir að sýnt hafi verið fram á að
núvitundaræfingar dragi úr streitu
og geti minnkað kvíða og depurð.
„Líf mitt hefur breyst mikið eftir að
ég tileinkaði mér núvitund. Ég var
streitubolti en geri bæði formlegar
og óformlegar núvitundaræfingar á
hverjum degi og líki lífinu fyrir og
eftir ekki saman.”
Sálfræðingurinn Margrét Arn-
ljótsdóttir skrifar formála í bók-
ina, en hún hefur haldið fjölmörg
námskeið um núvitund hér á landi.
Hún er í Alúð, félagi um núvitund
og vakandi athygli, sem um helgina
heldur námstefnu um hugrækt og
núvitund á Heilsustofnun NLFÍ í
Hveragerði. Á námstefnunni verð-
ur meðal annars fjallað um bók
Chade-Meng Tan og notkun nú-
vitundar í íslensku atvinnulífi, heil-
brigðiskerfi, skólum og fangelsum
svo dæmi séu nefnd.
Pálína segir líf sitt hafa breyst mikið eftir að hún tileinkaði sér núvitund.
MYND/VILHELM
AUGLÝSING: FORLAGIÐ KYNNIR
KEMUR KJARNANUM VEL TIL SKILA
Bókin Núvitund – Leitaðu inn á við er nýkomin út. Hún er eftir Chade-Meng Tan, einn af frumkvöðlum Google. Bókin spratt upp úr vinsælu
námskeiði sem haldið hefur verið af Google um árabil. Það hefur gjörbreytt lífi margra þátttakenda.
„Með því að fl étta
tímalausa visku saman
við nútímavísindi hefur
Chade-Meng Tan
skapað skemmtilegan
og raunhæfan
leiðarvísi að velgengni
og hamingju.”
Deepak Chopra
Ponchoin komin aftur í comma,
Vorum að taka upp fullt af nýjum vörum.
Verð aðeins 7.990 kr.
Geymum ósóttar Poncho pantanir til 16. nóvember
Heilsuvísir