Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 32
8 • LÍFIÐ 7. NÓVEMBER 2014
É
g lét plata mig í að taka
þátt í einu verkefni,
en ég er samt enn þá
hætt.“ segir Katrín John-
son, sem dansar í verk-
inu Emotional hjá Íslenska dans-
flokknum eftir að hafa sagt skil-
ið við hann, að hún hélt fyrir fullt
og allt, fyrir þremur árum. Kata
vissi alltaf hvert hún stefndi.
„Frá unga aldri var ég búin að
ákveða að verða dansari. Svo var
það heppni að ég hafði hæfileik-
ana og að hlutirnir gengu upp.
Mamma var minn helsti stuðn-
ingsmaður alla tíð og setti mig í
ballett fimm ára. Hana grunaði
reyndar ekki þá að þetta yrði líf
mitt og yndi.“
Var komin með nóg
Katrín hætti að dansa eftir að
hafa dansað fyrir Íslenska dans-
flokkinn og víðar í 15 ár. „Þetta
var ekki ákvörðun heldur upp-
götvun. Ég kom heim eftir erfið-
an vinnudag og allt í einu hugs-
aði ég að það væri komið nóg, ég
væri búin,“ útskýrir hún. „Þegar
maður vinnur í dansflokkum þá
gefur maður hjarta sitt og sál í
hvert verkefni. Fólk áttar sig ekki
á að það að vera dansari kost-
ar blóð, svita og tár. Ég var orðin
södd, sem mér finnst besta ástæð-
an til þess að hætta. Metnaðurinn
var þó enn þá til staðar og þess
vegna vildi ég líka hætta. Ég hef
alltaf verið hrædd við að halda
áfram of lengi. Ég vildi hætta á
toppnum. Líftími dansara er ekki
langur.“
Hefði hætt við þrisvar
„Ég fékk aldrei bakþanka á þess-
um þremur árum þannig að ég
veit eiginlega ekki af hverju ég
sagði já við þessu verkefni,“ segir
Katrín og hlær. „Ég kom sjálfri
mér á óvart. Það hefur líklega
eitthvað með það að gera að dans-
höfundurinn bað mig rosalega oft
og fallega og flatteraði mig upp
úr skónum. Þegar þetta tregafulla
já fékkst út úr mér var Krist-
ín Ögmundsdóttir, vinkona mín
og nú framkvæmdastjóri dans-
flokksins, mjög séð og lét mig
skrifa undir samning strax. Eftir
það varð ekki aftur snúið, ég hefði
örugglega hætt við þrisvar ef hún
hefði ekki gert það,“ segir hún létt
í bragði.
Pressa að vera mjó
„Þetta er búið að vera svolítið erf-
itt. Ég var engan veginn í formi
fyrir þetta. Ég tók þetta að mér á
þeim forsendum að þau yrðu að
vilja mig á þeim stað sem ég er
á í dag. Ég hafði engan áhuga á
að dansa einhvern hópkafla þar
sem ég liti illa út við hliðina á
hinum. Ég hefði samt ekki sagt já
ef mér hefði liðið illa í líkaman-
um eða verið búin að fitna mikið.“
Spurð hvort útlitskröfurnar séu
miklar í dansinum segir hún þær
vera til staðar en ekki endilega
af þeim ástæðum sem fólk geri
ráð fyrir. „Jú, það er pressa en
þú veist hvað þú ert ráðin til að
gera og líkami þinn þarf að vera
í ákveðnu standi til þess að geta
gert það vel. Ég er ekki að meina
að þú getir ekki dansað með ein-
hver aukakíló en strákarnir þurfa
að lyfta þér og þú stofnar heilsu
þeirra í hættu með því að vera
allt of þung. Ég var þó alltaf með-
vituð um að ég þyrfti að vera mjó,
en ég var aldrei grennst og vissi
að ég yrði það aldrei. Ég var líka
alltaf hæst og leið oft eins og ég
væri allt of stór en ég fór aldrei í
neinar öfgar til að grennast. Það
þarf líka vöðva, styrk og úthald
til þess að geta dansað sem er erf-
itt ef þú leyfir þér ekki að borða.
Ég hef auðvitað kynnst hinni hlið-
inni líka þar sem fólk hefur verið
illa haldið af átröskunum í gegn-
um tíðina. Ég man eftir svakaleg-
um anorexíusjúklingum í skólan-
um í Svíþjóð en aldrei hér. Starfs-
menn dansflokksins eru ótrúlega
heilbrigt og flott fólk,“ segir hún
stolt á svip.
Skammarlega lítið fjármagn
„Ég held að fólk geri sér ekki
grein fyrir hvað þetta er flottur
hópur. Þetta er svo ótrúlega fjöl-
hæft fólk og algjör sviðsdýr. Það
er líka stór ástæða þess hversu
virtur dansflokkurinn er á al-
þjóðavettvangi. Það þarf að styðja
betur við þessa listgrein, dans-
inn fær skammarlega lítið fjár-
magn. Mér finnst þreytt að það sé
ekki fyrr en fólk sér það svart á
hvítu hversu miklu listræn starf-
semi skilar í ríkiskassann að
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
blaðamaður
VILDI
HÆTTA Á
TOPPNUM
KATRÍN JOHNSON segir ástríðuna hafa legið í
dansinum alla tíð þangað til einn daginn fyrir
þremur árum þegar hún fékk skyndilega nóg.
Hún umbylti lífi sínu, hætti í dansinum og fann
sér nýja drauma. Hún sneri svo aftur til Íslenska
dansflokksins nýlega og það reyndist henni
erfiðara en hana hafði grunað.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
IÐA-bókakaffi Vesturgata 2a 101 Rvk.
opið til 22 alla daga.