Fréttablaðið - 07.11.2014, Qupperneq 48
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| MENNING | 28
„Þessi plötuútgáfa fór út um allt
í gamla daga og það sem er svo
merkilegt við þetta er að þessi tón-
list á enn þá við þó hún sé hátt í 20
ára gömul,“ segir plötusnúðurinn
Addi Exos, einn af þeim sem koma
fram í kvöld á sérstökum Thule
Musik og Strobelight Network tón-
leikum á Airwaves í Þjóðleikhús-
kjallaranum.
Thule Musik sló í gegn í alþjóð-
legu teknósenunni um miðjan
tíunda áratug en Strobelight Net-
work er nýstofnaður sproti útgáf-
unnar. „Þetta var plötuútgáfa á
hjara veraldar og jafnvel þótt við
værum einangraðir frá umheim-
inum þá vorum við mörgum árum
á undan okkar samtíð í að búa til
minímalískt dubteknó,“ segir Addi
en plöturnar sem sveitin gaf út á
sínum tíma teljast miklir safnara-
gripir.
Það var plötusnúðurinn frægi
Nina Kraviz sem sendi Adda fyr-
irspurn um að endurútgefa gamla
plötu eftir hann. „Það var út af
þessari pressu utan frá sem við
ákváðum að endurútgefa allar
bestu plöturnar okkar,“ segir
Addi en í kvöld munu Octal, Yagya,
Ruxpin, Yamaho, Amaury, Thor og
Exos troða upp.
torduringi@frettabladid.is
Það sem er svo
merkilegt við þetta er
að þessi tónlist á enn
þá við þó hún sé hátt í
20 ára gömul.
FÖSTUDAGUR
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FÖSTUDAGUR 07. NÓVEMBER 2014
Tónleikar
12.00 Hádegistónleikaröð Tónlistar-
félags Akureyrar fer fram í Menningar-
húsinu Hofi í dag. Að þessu sinni
kemur fram Daniele Basini gítarleikari.
1862 Nordic Bistro matreiðir súpu sem
tónleikagestir geta notið á meðan tón-
leikum stendur.
12.00 Fronting at Airwaves tónleikar í
Lucky Records. Tónleikar með sérstakri
áherslu á líkamshreyfingar söngvara.
Gunnar Ragnarsson úr Grísalappalísu,
Kata Mogensen úr Mammút og Unn-
steinn Manuel Stefánsson úr Retro
Stefson koma fram.
12.15 Ókeypis hádegistónleikar Tríós
Reykjavíkur ásamt nemendum úr
Tónlistarskólanum í Reykjavík og
Listaháskóla Íslands. Á tónleikunum
verður flutt Haustið úr hinum vinsælu
Árstíðum eftir Vivaldi auk stórbrotins
píanótríós eftir Smetana.
16.00 The Anatomy of Frank frá
Bandaríkjunum troða upp á 871+/-2 í
Aðalstræti.
16.00 Hljómsveitin Milkhouse spilar
þrisvar í dag, kl. 16.00 á Loft Hostel, kl.
18.00 á Hressó, kl. 18.45 í Hinu húsinu
og kl. 19.30 í Lucky Records.
17.00 Mafama spila nýju plötuna Dog á
Húrra í dag.
18.30 Lily of the Valley troða upp á
neðri hæð Bar 11.
19.30 Kvikmyndin The Miners’ Hymns
eftir Bill Morrison verður sýnd í Hörpu
með undirspili Jóhanns Jóhannssonar.
Miðar frá 2.400 til 4.300 kr.
20.00 Weirdcore, UFO Warehouse og
Robot Disco halda tónleikakvöldið 528
hz á Paloma. Á efri hæðinni koma fram
Snooze Infinity, Steve Sampling, Kíló,
Marlon Pollock, Cryptochrome, Alvia
Islandia, Lord Pusswhip, Quadruplos,
Shades of Reykjavík og Robot Disco
+ Cosmic Bullshitter. Á neðri hæðinni
þeytir DJ Harry Knuckles skífum.
21.00 Strangely and Shay frá Bandaríkj-
unum troða upp í Stúdentakjallaranum
í kvöld.
21.00 Marel Blues troða upp á Café
Rósenberg.
21.30 Autonomous The Trio troða upp
á Café Haiti. 1.000 krónur inn.
Leiklist
21.00 Tiny Guy leiklistarhópurinn
kemur fram í Mengi. 2.000 krónur inn.
Fundir
16.00 Fyrsti kynningarfundur á verk-
efninu Vettvangi til félaga MHR og
annarra aðkomandi og áhugasamra fer
fram í dag. MHR hefur hlotið undir-
búningsstyrk frá Myndlistarsjóði fyrir
verkefninu Vettvangi. Vettvangur er
samstarfsverkefni Myndhöggvarafélags-
ins í Reykjavík og Skógræktarfélags
Reykjavíkur í formi húss á landi SFR (að
líkindum í Esjuskógum).
Kvikmyndir
18.30 Þýska sendiráðið í samstarfi
við Goethe-Institut sýnir Múrmyndir í
Háskólabíói, valdar myndir í tilefni af
25 ára afmæli falls Berlínarmúrsins.
Tónlist
21.00 Trúbadorarinn Andri treður upp
á English Pub og svo taka við Hjálmar
& Dagur.
Goðsagnakennd teknóútgáfa
Thule Musik hefur snúið aft ur en rifi st er um upprunalegu plöturnar á netinu.
ADDI EXOS OG THOR Plötusnúðarnir koma fram í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
JÓHANN JÓHANNSSON TÓNLISTARMAÐUR
ÞÓRARINN ELDJÁRN
Myndlist
10.00 Jón Óskar sýnir ný verk eftir sig í
Listasafni Íslands.
10.00 Sigurður Guðjónsson sýnir vídeó-
verk sín í Listasafni Íslands.
20.00 Þrjár myndlistarsýningar opnaðar
í Ekkisens, Bergstaðastræti 25b. Birta
Þórhallsdóttir heldur fyrstu einkasýn-
ingu sína, Tilorðningar, í Betri stofunni,
Freyja Eilíf Logadóttir sýnir Vaxmyndir
í Eldhúsinu og Guðrún Heiður Ísaks-
dóttir verður með þátttökugjörninginn
Syndaaflausn í Heilaga herberginu.
Í dag opnar Inga Elín sýningu á nýjum
Ljósaskúlptúrum í Gallery Bakarí á
Skólavörðustíg 40. Ljósaskúlptúrarnir
eru allir úr postulíni og kallast þeir
SUNNA.
Í dag opna systurnar Elísabet Rún
og Elín Edda myndasögusýningu í
aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur.
Á sýningunni verður fyrsta myndasaga
þeirra í fullri lengd, Plantan á gang-
inum.
Umræður
12.00 Þórarinn Eldjárn ræðir um skáld-
sögu sína Hér liggur skáld sem kom
út árið 2012 og sumir hafa kallað nýja
Íslendingasögu. Fer fram í stofu 105 á
Háskólatorgi.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.