Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 56

Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 56
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 36 FÓTBOLTI Daníel Laxdal, varnar- maður Stjörnunnar, framlengdi í gær samning sinn við Stjörnuna til næstu þriggja ára. Daníel varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar og hefur verið á mála hjá félaginu alla sína tíð. Hann á að baki meira en 200 leiki í meistaraflokki og hefur skorað í þeim 10 mörk. Hann spilaði alla 22 leiki liðsins í sumar en Stjarnan tapaði ekki leik allt tímabilið. „Það hafði ekkert félag sam- band við mig. Ég var svo sem búinn að gefa það út að ég vildi vera áfram í Garðabænum þannig að önnur lið voru ekkert að trufla mig,“ segir Daníel, en hann segir það ekkert hafa heillað að prófa eitthvað nýtt á þessum tímapunkti á ferlinum. „Ég held ég hreinlega geti ekki farið frá Stjörnunni því ég gæti ekki hugsað mér að spila gegn félaginu.“ Þó svo Daníel hafi verið með betri leikmönnum Pepsi-deild- arinnar undanfarin ár þá hefur ekkert orðið úr því að hann færi í atvinnumennsku. „Ég er hættur að hugsa um það núna. Hér áður hugsaði maður að það kæmi á næsta ári en svo kom það aldrei. Ef það kemur þá kemur það en ég er ekkert að velta mér upp úr þessu lengur. Ég græt mig ekkert í svefn á kvöldin.“ Daníel er 28 ára gamall en lék sinn fyrsta deildarleik í meistara- flokki sumarið 2004, er Stjarnan lék í 1. deild karla. Hann er þegar orðinn leikjahæsti leikmaður Stjörnunnar í efstu deild og ætlar sér að bæta það met. „Ég ætla að vera langleikja- hæsti leikmaður Stjörnunnar. Það er markmiðið núna. Síðustu ár í Stjörnunni hafa líka verið frábær og vonandi höldum við áfram að byggja ofan á árangur sumarsins,“ segir Daníel, en er hann að vonast eftir styttu af sér fyrir utan Sam- sung-völlinn? „Ég er að berjast við Rúnar þjálfara um að fá styttuna,“ segir Daníel léttur. - hbg Ég gæti ekki spilað gegn Stjörnunni Daníel Laxdal búinn að framlengja við sitt lið. Í STUÐI Daníel fór á kostum eftir að Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ SPORT SKÍÐI „Í A-landsliðinu okkar í dag eru fimm krakkar, tveir strákar og þrjár stelpur. Það er breyting frá því sem hefur verið því yfirleitt hafa strákarnir verið fleiri,“ byrj- aði Fjalar Úlfarsson, landsliðsþjálfari alpa- greina, framsögu sína á blaðamannafundi í gær þar sem Skíðasamband Íslands kynnti skíðaveturinn. Fínt að hafa stelpurnar í kringum okkur Eru stelpurnar að taka yfir íslenska lands- liðshópinn í alpagreinum? Hvað segir Einar Kristinn Kristgeirsson, fremsti skíðamaður Íslands í dag, um að stelpurnar séu orðnar í meirihluta. „Það er fínt enda gott að hafa stelpurnar í kringum okkur. Þær láta okkur strákana haga sér. Þegar þær eru á svæð- inu þá fer maður ekki út í sömu vitleysu og maður gerði alltaf,“ sagði Einar Kristinn hlæjandi í gær. Helga María Vilhjálmsdóttir, fremsta alpagreinakona landsins, var líka ánægð með framgöngu kynsystra sinna en Helga hefur sjálf verið í landsliðinu í þrjú ár. „Keppnin hjá okkur er aðeins jafnari heldur en hjá strákunum. Getustigið okkar er líka aðeins nær þeim bestu heldur en hjá strák- unum,“ segir Helga, sem brosti bara þegar hún heyrði af ummælum Einars. Auk þeirra tveggja eru í landsliðinu þau Freydís Halla Einarsdóttir, Erla Ásgeirsdóttir og Magnús Finnsson Helga og Einar ætla bæði að standa sig vel á HM fullorðinna í Bandaríkjunum í febrúar og á HM unglinga í Noregi í mars en þau voru öflug á síðasta tímabili. „Einar og Helga eru búin að vera þrjú ár í lands- liðinu og þau eru okkar sterkustu í dag. Hin hafa sótt í sig veðrið og það er orðið skemmtilegt hvað það er orðin mikil sam- keppni innan landsliðsins,“ segir Fjalar og hann þakkar æfingunum þessa þróun. „Þetta lítur þrælvel út í vetur. Við erum búin að ná mjög góðum æfingum,“ segir Fjalar sem þarf ekki aðeins að skipuleggja æfingar og æfingaferðir heldur einnig að leita uppi snjóinn. „Útlitið er ekki bjart fyrir næstu æfingabúðir því við ætlum þá til Noregs og það er ekki snjómikið. Allur búnaður- inn okkar er í Noregi þannig að við fljúgum þangað, en svo verður spurning hvert við förum,“ segir Fjalar en það er mikið fyrir- tæki að þurfa að skipuleggja allar þessar æfingaferðir. Endalaust púsl „Þetta er endalaust púsl. Ef það er lokað á þessum stað þar sem við ætluðum að vera þá getum við ekki hætt að æfa,“ segir Fjalar, sem stendur oft í stórræðum við að koma sér og dóti krakkanna á milli landa. „Síðast keyrði ég þrettán hundruð kílómetra frá Austurríki til Noregs með allan búnaðinn. Fimm krakkar eru með eitt tonn af búnaði með sér. Það er því ekki hlaupið upp í flugvél og öllu trillað þang- að. Hún færi aldrei á loft,“ segir Fjalar léttur. Íslenska skíðafólkinu tókst vel upp á síðustu Ólympíuleikum. „Ég var alls ekki ósáttur með Ólympíuleikana en hefði viljað fá pínu betri árangur. Það var rosagott að þessir krakk- ar þorðu að koma í mark til að sjá hvar þau standa en það hefur ekki alltaf verið þannig,“ segir Fjalar. Aldrei gott að missa fólk út Fjalar hefur þurft að sjá á eftir mörgu frá- bæru, íslensku skíðafólki sem hefur hætt keppni á síðustu misserum. „Það er hluti af þessu og sumt ráðum við ekki við eins og meiðsli. Það er aldrei gott að missa fólk út hvort sem það eru meiðsli eða annað. Lífið heldur áfram, einhverjir fara í skóla og einhverjir detta út vegna meiðsla en við reynum eins og hægt er að halda okkar hóp. Þetta þarfnast gríðarlegs skipulags frá krökkunum og mikillar aðstoðar frá foreldr- um. Við höfum samt verið að bæta aðeins í að styrkja þau og sambandið kemur nú með peninga á móti kostnaði. Það er að aukast og við sjáum fram á enn betri möguleika á því,“ segir Fjalar jákvæður. Hann stefnir líka hátt þegar kemur að því að giska á fjölda íslenskra keppenda á stærsta móti vetrarins, sem er HM í Color- ado í febrúar. „Eigum við ekki að segja átta í alpagreinum, fjórar stelpur og fjórir strákar. það gæti farið svo að fleiri komist á HM en eru í landsliðinu. Það væri frá- bært að horfa upp á það. Við setjum okkur markmið og þau eru vissulega há,“ sagði Fjalar. ooj@frettabladid.is Leita að snjónum í Noregi á næstunni Konur eru í meirihluta í íslenska alpagreinalandsliðinu sem var kynnt til leiks í gær. Landsliðsþjálfarinn Fjalar Úlfarsson stefnir á að koma átta manns inn á Heimsmeistaramótið á skíðum sem fer fram í Colorado í febrúar en fi mm eru í landsliðinu hans í dag. ÞAU FREMSTU Í DAG Helga María Vilhjálmsdóttir og Einar Kristinn Kristgeirsson eru reynsluboltarnir í íslenska alpagreinalandsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.