Fréttablaðið - 07.11.2014, Blaðsíða 56
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 36
FÓTBOLTI Daníel Laxdal, varnar-
maður Stjörnunnar, framlengdi í
gær samning sinn við Stjörnuna til
næstu þriggja ára.
Daníel varð Íslandsmeistari
með liðinu í sumar og hefur verið
á mála hjá félaginu alla sína tíð.
Hann á að baki meira en 200 leiki
í meistaraflokki og hefur skorað
í þeim 10 mörk. Hann spilaði alla
22 leiki liðsins í sumar en Stjarnan
tapaði ekki leik allt tímabilið.
„Það hafði ekkert félag sam-
band við mig. Ég var svo sem
búinn að gefa það út að ég vildi
vera áfram í Garðabænum þannig
að önnur lið voru ekkert að trufla
mig,“ segir Daníel, en hann segir
það ekkert hafa heillað að prófa
eitthvað nýtt á þessum tímapunkti
á ferlinum.
„Ég held ég hreinlega geti ekki
farið frá Stjörnunni því ég gæti
ekki hugsað mér að spila gegn
félaginu.“
Þó svo Daníel hafi verið með
betri leikmönnum Pepsi-deild-
arinnar undanfarin ár þá hefur
ekkert orðið úr því að hann færi í
atvinnumennsku.
„Ég er hættur að hugsa um það
núna. Hér áður hugsaði maður að
það kæmi á næsta ári en svo kom
það aldrei. Ef það kemur þá kemur
það en ég er ekkert að velta mér
upp úr þessu lengur. Ég græt mig
ekkert í svefn á kvöldin.“
Daníel er 28 ára gamall en lék
sinn fyrsta deildarleik í meistara-
flokki sumarið 2004, er Stjarnan
lék í 1. deild karla. Hann er þegar
orðinn leikjahæsti leikmaður
Stjörnunnar í efstu deild og ætlar
sér að bæta það met.
„Ég ætla að vera langleikja-
hæsti leikmaður Stjörnunnar. Það
er markmiðið núna. Síðustu ár í
Stjörnunni hafa líka verið frábær
og vonandi höldum við áfram að
byggja ofan á árangur sumarsins,“
segir Daníel, en er hann að vonast
eftir styttu af sér fyrir utan Sam-
sung-völlinn?
„Ég er að berjast við Rúnar
þjálfara um að fá styttuna,“ segir
Daníel léttur. - hbg
Ég gæti ekki spilað
gegn Stjörnunni
Daníel Laxdal búinn að framlengja við sitt lið.
Í STUÐI Daníel fór á kostum eftir að Stjarnan tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í
Kaplakrika. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
SPORT
SKÍÐI „Í A-landsliðinu okkar í dag eru fimm
krakkar, tveir strákar og þrjár stelpur. Það
er breyting frá því sem hefur verið því
yfirleitt hafa strákarnir verið fleiri,“ byrj-
aði Fjalar Úlfarsson, landsliðsþjálfari alpa-
greina, framsögu sína á blaðamannafundi í
gær þar sem Skíðasamband Íslands kynnti
skíðaveturinn.
Fínt að hafa stelpurnar í kringum okkur
Eru stelpurnar að taka yfir íslenska lands-
liðshópinn í alpagreinum? Hvað segir Einar
Kristinn Kristgeirsson, fremsti skíðamaður
Íslands í dag, um að stelpurnar séu orðnar
í meirihluta. „Það er fínt enda gott að hafa
stelpurnar í kringum okkur. Þær láta okkur
strákana haga sér. Þegar þær eru á svæð-
inu þá fer maður ekki út í sömu vitleysu og
maður gerði alltaf,“ sagði Einar Kristinn
hlæjandi í gær.
Helga María Vilhjálmsdóttir, fremsta
alpagreinakona landsins, var líka ánægð
með framgöngu kynsystra sinna en Helga
hefur sjálf verið í landsliðinu í þrjú ár.
„Keppnin hjá okkur er aðeins jafnari heldur
en hjá strákunum. Getustigið okkar er líka
aðeins nær þeim bestu heldur en hjá strák-
unum,“ segir Helga, sem brosti bara þegar
hún heyrði af ummælum Einars. Auk þeirra
tveggja eru í landsliðinu þau Freydís Halla
Einarsdóttir, Erla Ásgeirsdóttir og Magnús
Finnsson
Helga og Einar ætla bæði að standa sig
vel á HM fullorðinna í Bandaríkjunum í
febrúar og á HM unglinga í Noregi í mars
en þau voru öflug á síðasta tímabili. „Einar
og Helga eru búin að vera þrjú ár í lands-
liðinu og þau eru okkar sterkustu í dag.
Hin hafa sótt í sig veðrið og það er orðið
skemmtilegt hvað það er orðin mikil sam-
keppni innan landsliðsins,“ segir Fjalar
og hann þakkar æfingunum þessa þróun.
„Þetta lítur þrælvel út í vetur. Við erum búin
að ná mjög góðum æfingum,“ segir Fjalar
sem þarf ekki aðeins að skipuleggja æfingar
og æfingaferðir heldur einnig að leita uppi
snjóinn. „Útlitið er ekki bjart fyrir næstu
æfingabúðir því við ætlum þá til Noregs
og það er ekki snjómikið. Allur búnaður-
inn okkar er í Noregi þannig að við fljúgum
þangað, en svo verður spurning hvert við
förum,“ segir Fjalar en það er mikið fyrir-
tæki að þurfa að skipuleggja allar þessar
æfingaferðir.
Endalaust púsl
„Þetta er endalaust púsl. Ef það er lokað á
þessum stað þar sem við ætluðum að vera þá
getum við ekki hætt að æfa,“ segir Fjalar, sem
stendur oft í stórræðum við að koma sér og
dóti krakkanna á milli landa. „Síðast keyrði
ég þrettán hundruð kílómetra frá Austurríki
til Noregs með allan búnaðinn. Fimm krakkar
eru með eitt tonn af búnaði með sér. Það er því
ekki hlaupið upp í flugvél og öllu trillað þang-
að. Hún færi aldrei á loft,“ segir Fjalar léttur.
Íslenska skíðafólkinu tókst vel upp á síðustu
Ólympíuleikum. „Ég var alls ekki ósáttur með
Ólympíuleikana en hefði viljað fá pínu betri
árangur. Það var rosagott að þessir krakk-
ar þorðu að koma í mark til að sjá hvar þau
standa en það hefur ekki alltaf verið þannig,“
segir Fjalar.
Aldrei gott að missa fólk út
Fjalar hefur þurft að sjá á eftir mörgu frá-
bæru, íslensku skíðafólki sem hefur hætt
keppni á síðustu misserum.
„Það er hluti af þessu og sumt ráðum við
ekki við eins og meiðsli. Það er aldrei gott að
missa fólk út hvort sem það eru meiðsli eða
annað. Lífið heldur áfram, einhverjir fara í
skóla og einhverjir detta út vegna meiðsla en
við reynum eins og hægt er að halda okkar
hóp. Þetta þarfnast gríðarlegs skipulags frá
krökkunum og mikillar aðstoðar frá foreldr-
um. Við höfum samt verið að bæta aðeins í
að styrkja þau og sambandið kemur nú með
peninga á móti kostnaði. Það er að aukast og
við sjáum fram á enn betri möguleika á því,“
segir Fjalar jákvæður.
Hann stefnir líka hátt þegar kemur að
því að giska á fjölda íslenskra keppenda á
stærsta móti vetrarins, sem er HM í Color-
ado í febrúar. „Eigum við ekki að segja
átta í alpagreinum, fjórar stelpur og fjórir
strákar. það gæti farið svo að fleiri komist
á HM en eru í landsliðinu. Það væri frá-
bært að horfa upp á það. Við setjum okkur
markmið og þau eru vissulega há,“ sagði
Fjalar.
ooj@frettabladid.is
Leita að snjónum í Noregi á næstunni
Konur eru í meirihluta í íslenska alpagreinalandsliðinu sem var kynnt til leiks í gær. Landsliðsþjálfarinn Fjalar Úlfarsson stefnir á að
koma átta manns inn á Heimsmeistaramótið á skíðum sem fer fram í Colorado í febrúar en fi mm eru í landsliðinu hans í dag.
ÞAU FREMSTU Í DAG Helga María Vilhjálmsdóttir og Einar Kristinn Kristgeirsson eru reynsluboltarnir í
íslenska alpagreinalandsliðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI