Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 58

Fréttablaðið - 07.11.2014, Síða 58
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 38 Ég borðaði því pitsur og kúskús til skiptis. Það var kannski lykillinn að þessu hjá mér. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. GOLF Um helgina náði Ólafía Þór- unn Kristinsdóttir að tryggja sér þátttökurétt á lokastigi úrtöku- móta raðarinnar fyrir Evrópu- mótaröð atvinnukylfinga í golfi. Mótið fer fram í Marokkó rétt fyrir jól en þar mun Ólafía Þór- unn etja kappi við marga gríðar- lega öfluga kylfinga. „Það segir sitt um styrkleika keppenda á úrtökumótunum að sú sem vann síðasta mót [Sophia Popov frá Þýskalandi] er ein sú besta í heimi að mínu mati. Hún spilaði ótrúlega vel,“ segir Ólafía í samtali við Fréttablaðið. Hún end- aði sjálf í 25.-26. sæti en alls kom- ust 30 efstu kylfingarnir áfram. „Mér fannst þetta ganga nokk- uð vel hjá mér. Inn á milli tók ég rangar ákvarðanir og stressið var byrjað að segja til sín undir lokin. En þá reyndi ég bara að anda djúpt og tala sem mest við mömmu, sem var kylfuberinn minn.“ Ólafía segir að spjallið við mömmu hafi í raun hjálpað mikið til. „Ég bað hana um að segja mér æskusögur og fleira í þeim dúr. Það var ýmislegt gert til að dreifa huganum og mér fannst það virka bara mjög vel. Eftir að ég byrjaði á þessu komst ég í fuglafæri á síð- ustu fimm holunum,“ segir hún. Hún á von á því að það verði hörð samkeppni á lokaúrtöku- mótinu. „Það verður bara að duga eða drepast enda bara þetta eina mót. Það þarf allt að ganga upp til að komast í gegn og það getur vel gerst í mínu tilfelli eins og hjá einhverjum öðru. Ég mun halda áfram að vera dugleg að æfa, halda rónni og ef það tekst tel ég mig vera í góðum málum.“ Eingöngu pitsur og kúskús Hún segir að aðstæður í Mar- okkó geti verið krefjandi, ekki síst vegna hitans, en reiknar með að völlurinn sem notaður verður í desember verði auðveldari viður- eignar en sá sem spilað var á í síð- asta móti. „Brautirnar á honum voru afar þröngar og flatirnar litlar. Mér skilst að hinn sé mun opnari og að það verði auðveldara að ná betra skori,“ segir hún og bætir við að mikilvægt sé að huga að því sem hún lætur ofan í sig. „Maður verður að borða rétt og passa sérstaklega að drekka ekki vatn úr krananum. Tuttugu manns fengu matareitrun nú síðast og það eyðilagði möguleika sumra á að komast áfram,“ segir Ólafía, sem passaði sig á að borða aðeins á tveimur veitingastöðum sem hún vissi að væru í lagi. „Annar var ítalskur og hinn marokkóskur. Ég borðaði því pits- ur og kúskús til skiptis. Það var kannski lykillinn að þessu hjá mér,“ sagði hún í léttum dúr. Gengur vel að æfa ein Ólafía lauk háskólanámi í Banda- ríkjunum síðastliðið vor og kom heim þegar keppnistímabilið var hafið hér á landi. Hún gerði sér þó lítið fyrir og tryggði sér sigur á Íslandsmeistaramótinu í höggleik í júlí. Hún hélt svo til Þýskalands í haust þar sem hún hefur einbeitt sér að æfingum og undirbúningi fyrir úrtökumótaröðina. „Það hefur gengið mjög vel,“ sagði hún um dvölina ytra. „Ég var hrædd um að ég myndi gefa eftir með því að vera bara ein á æfingum en mér hefur tekist að halda góðu skipulagi,“ segir Ólafía sem æfir að öllu jöfnu sex sinnum í viku. Allt kostar þetta þó sitt en Ólafía hefur notið stuðnings úr Forskoti, sem er afrekssjóður fyrir íslenska kylfinga. Stofnendur hans eru Eimskip, Valitor, Íslandsbanki, Icelandair Group og Golfsamband Íslands. „Ég fékk stuðning til að fjár- magna þátttöku mína á úrtöku- mótaröðinni en framhaldið er svo óráðið. Ég veit að það tekur við mun stærri pakki eftir áramót og þá þarf ég meiri stuðning frá fleiri aðilum,“ segir hún en komist hún á Evrópumótaröðina ætlar hún ekki að stóla á vinningsfé til að standa undir kostnaðinum. „Það er aldrei skynsamlegt að þurfa að hafa áhyggjur af peninga- málum á mótunum. Þær eyðileggja bara fyrir manni. Það er því betra að vera búinn að klára fjármögn- unina fyrst og líta svo allt annað bara sem bónus.“ Orðin atvinnukylfingur Hún segir að sér muni standa til boða að taka þátt í minni mótum ef henni tekst ekki að komast í gegn- um lokaúrtökumótið. „Í öllu falli er ég búin að gefa frá mér stöðu mína sem áhugamaður og er komin með stöðu atvinnukylfings,“ segir hún. „Ég vonast því til að geta haldið mínu striki.“ eirikur@frettabladid.is Æskusögur róuðu taugarnar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er einu skrefi frá því að vinna sér þátttökurétt á Evrópumótaröðinni í golfi . Ólafía, sem er þegar komin með stöðu atvinnukylfi ngs, hefur undirbúið sig af kappi í Þýskalandi í haust. ÖFLUG Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, ríkjandi Íslandsmeistari í höggleik, einbeitir sér nú alfarið að golfinu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Eftir tap íslenska landsliðsins fyrir Svartfellingum í undankeppni Evrópumótsins hafa menn velt því fyrir sér hvort HSÍ og þeir sem stjórna íslenska landsliðinu hafi sofnað á verðinum. Meðalaldur liðsins hefur hækkað og endurnýjun liðsins sé lítil sem engin. Er þetta rétt? Nei. Þegar grannt er skoðað eru þetta rangar fullyrðingar og í raun hafa menn verið míga upp í vindinn. Frá árinu 2010 hafa nýir leikmenn fengið tækifæri með landsliðinu. Ekki bara í æfinga- leikjum heldur á stórmótum. Hvaða leikmenn spyrja menn? Leikmenn fæddir 1987 til 1990 hafa verið fyrirferðarmiklir. Leikmenn úr 20 ára landsliðum okkar Íslendinga. Menn eins og Rúnar Kárason, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Stefán Rafn Sigurmannsson, Bjarki Már Gunnarsson, Aron Rafn Eðvarðsson, Ólafur Gústafsson, Ólafur Guðmunds- son, Oddur Grétarsson, Aron Pálmarsson, Svein- björn Pétursson, Árni Steinn Steinþórsson, Arnór Þór Gunnarsson og Gunnar Steinn Jónsson. Tólf þessara leikmanna hafa fengið dýrmæta reynslu á stórmótum. Hafa þeir fengið tækifæri? Já. Hefur þeim verið treyst fyrir stórum hlut- verkum? Já. Hafa þeir staðið sig vel? Já, sumir hverjir. Hafa þeir verið heilir heilsu? Þar er aftur á móti svarið nei. Fjórir þessara leikmanna hefðu án nokkurs vafa verið valdir í verkefnin gegn Ísrael og Svartfell- ingum. En því miður voru þeir meiddir. Þeirra á meðal einn af fimm bestu handboltamönnum heims um þessar mundir – Aron Pálmarsson. Með hann innanborðs hefðu leikirnir gegn Bosníu og Svartfjallalandi ekki tapast. Það fullyrði ég. Að við- bættum Ólafi Bjarka og Rúnari Kárasyni hefðum við verið enn betur settir. Ólafur Gústafsson hefði einnig hjálpað varnarlega væri hann heill. Síðastliðinn áratug hefur íslenska landsliðið verið skipað afburðaleikmönnum. Leikmönnum í heimsklassa. Ekki einum heldur sex til sjö og aukinheldur var einn besti leikmaður sögunnar með þessum hópi. Þar erum við að sjálfsögðu að tala um Ólaf Stefánsson. Eru leikmenn af sama gæðaflokki að taka við? Nei. Þessi kynslóð var í raun einstök. Því miður hafa meiðsli komið í veg fyrir að núverandi landsliðsþjálfari hafi getað teflt fram sínu sterkasta liði. Það hefur hann ekki getað gert síðan hann tók við. Það er rétt að lykilmenn íslenska liðsins eru margir hverjir að eldast. Það er hins vegar rangt að ekki hafi verið reynt að finna leikmenn sem fyllt geta í skörðin. Þeir hafa fengið tækifæri. Fengið leiki. Fengið ábyrgð. Fengið traust. Vandamálið er hins vegar að þeir eru ekki í sama gæðaflokki og þeir leik- menn sem eru að ljúka sínum ferli með íslenska landsliðinu innan tíðar. Þar liggur hundurinn grafinn. Á sínum tíma gátum við vart án Ólafs Stefánssonar verið. Í dag getum við vart án Arons Pálmarssonar verið. Þrátt fyrir tap í Svartfjallandi er draumurinn um sæti á EM í Póllandi ekki úr sögunni. Með okkar sterkasta lið förum við þangað. En kvarnist úr hópnum, eins og gerðist á dögunum og gegn Bosníu og Svartfjallalandi verðum við í vandræðum. Við þurfum alla okkar bestu menn heila heilsu. Hinir sem bíða við þröskuldinn eru því miður eins og staðan er ekki nógu góðir. Eiga í það minnsta langt í land. Öll gagn- rýni og skoðanaskipti eiga rétt á sér. En að tala um að menn hafi sofnað á verðinum hvað varðar endurnýjun er einfald- lega rangt. B-landslið Íslands fékk tækifæri gegn Portúgal í vor. Liðið féll á prófinu. Það fær hins vegar annað tækifæri í janúar á næsta ári. Við skulum vona að liðið standist það próf. Það er hægt. UTAN VALLAR GUÐJÓN GUÐMUNDSSON gudjon.gudmundsson@stod2.is MIGIÐ UPP Í VINDINN STÓRMÓT LEIKMANNA FÆDDIR 1987 TIL 1990 LEIKMENN FÆDDIR ÁRIÐ 1987 Arnór Þór Gunnarsson, hornamaður 2 stórmót Gunnar Steinn Jónsson, miðjumaður 1 stórmót LEIKMENN FÆDDIR ÁRIÐ 1988 Rúnar Kárason, hægri skytta 2 stórmót Ólafur Bjarki Ragnarsson, miðjumaður 1 stórmót Bjarki Már Gunnarsson, línumaður 1 stórmót LEIKMENN FÆDDIR ÁRIÐ 1989 Aron Rafn Eðvarðsson, markvörður 3 stórmót Ólafur Gústafsson, vinstri skytta 1 stórmót LEIKMENN FÆDDIR ÁRIÐ 1990 Aron Pálmarsson, vinstri skytta/miðjum. 6 stórmót Ólafur Guðmundsson, vinstri skytta 4 stórmót Oddur Gretarsson, hornamaður 2 stórmót Bjarki Már Elísson, hornamaður 1 stórmót Stefán Rafn Sigurmannsson, hornamaður 1 stórmót ➜ ÚRSLIT DOMINO’S-DEILD KARLA STJARNAN - HAUKAR 93-85 Stjarnan: Jarrid Frye 26/9 fráköst, Ágúst Angantýsson 18/12 fráköst, Justin Shouse 12, Marvin Valdimarsson 11, Dagur Kár Jónsson 9, Sæmundur Valdimarsson 6, Jón Orri Kristjánsson 6/6 fráköst, Tómas Þórður Hilmarsson 5. Haukar: Haukur Óskarsson 23, Alex Francis 21/15 fráköst/5 stoðsendingar, Emil Barja 14/5 fráköst/9 stoðsendingar, Kári Jónsson 8, Hjálmar Stefánsson 7/4 fráköst, Kristinn Marinósson 6/7 fráköst, Sigurður Þór Einarsson 4, Helgi Björn Einarsson 2. KR - GRINDAVÍK 118-73 KR: Michael Craion 27/18 fráköst, Darri Hilmarsson 23, Pavel Ermolinskij 18/13 fráköst/17 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 16/6 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 10/11 stoðsendingar, Finnur Atli Magnússon 8/8 fráköst/3 varin skot, Högni Fjalarsson 7, Þórir Guðmundur Þorbjarnars- son 4, Björn Kristjánsson 3, Illugi Steingrímsson 2. Grindavík: Oddur Rúnar Kristjánsson 15, Ólafur Ólafsson 13/11 fráköst, Ómar Örn Sævarsson 10/6 fráköst, Þorsteinn Finnbogason 9, Hilmir Krist- jánsson 8, Björn Brynjólfsson 5, Hinrik Guðbjarts- son 4, Magnús Þór Gunnarsson 4/5 stoðsendingar, Kristófer Gylfason 2, Jens Óskarsson 2. ÍR - TINDASTÓLL 86-92 ÍR: Sveinbjörn Claessen 24/8 fráköst, Matthías Orri Sigurðarson 22/4 fráköst/8 stoðsendingar, Kristján Pétur Andrésson 15, Christopher Gard- ingo 10/8 fráköst, Vilhjálmur Jónsson 9/5 fráköst, Leifur Steinn Arnason 4, Kristófer Stefánsson 2. Tindastóll: Darrel Keith Lewis 18/8 fráköst, Pétur Rúnar Birgisson 14, Myron Dempsey 14/7 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 14/9 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 8, Viðar Ágústsson 7/7 fráköst, Darrell Flake 5, Ingvi Rafn Ingvarsson 5/4 fráköst, Finnbogi Bjarnason 5, Svavar Atli Birgisson 2. SKALLAGRÍMUR - FJÖLNIR 110-113 Skallagrímur: Tracy Smith Jr. 44/10 fráköst/5 varin skot, Sigtryggur Arnar Björnsson 35/6 fráköst/7 stoðsendingar/4 varin skot, Egill Egilsson 12/6 fráköst, Davíð Ásgeirsson 8, Daði Berg Grétarsson 5, Atli Aðalsteinsson 3, Davíð Guðmundsson 3. Fjölnir: Arnþór Freyr Guðmundsson 28/6 stoðsendingar, Róbert Sigurðsson 24, Daron Lee Sims 20/17 fráköst, Ólafur Torfason 9/12 fráköst/6 stoðsendingar, Garðar Sveinbjörnsson 9, Sindri Már Kárason 8/4 fráköst, Davíð Ingi Bustion 6, Valur Sigurðsson 6, Hreiðar Bjarki Vilhjálmsson 3. OLÍS-DEILD KARLA AKUREYRI - AFTURELDING 27-23 Akureyri - Mörk (skot): Halldór Logi Árnason 7 (7), Kristján Orri Jóhannsson 6/1 (10/1), Andri Snær Stefánsson 5 (7), Sigþór Heimisson 4 (9), Elías Már Halldórsson 2 (4), Bergvin Þór Gíslason 1 (1), Daníel Örn Einarsson 1 (2), Heimir Örn Árnason 1 (3), Ingimundur Ingimundarson (1), Þrándur Gíslason (1). Varin skot: Tomas Olason 16/1 (39/3, 41%), Afturelding - Mörk (skot): Jóhann Jóhannsson 6/1 (14/1), Jóhann Gunnar Einarsson 5 (8/1), Elvar Ásgeirsson 3 (4), Gestur Ólafur Ingvarsson 3 (5), Pétur Júníusson 2 (3), Örn Ingi Bjarkason 2 (7), Gunnar Þórsson 1/1 (1/1), Böðvar Páll Ásgeirsson 1 (2), Ágúst Birgisson (1). Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 15 (42/1, 36%), STJARNAN - ÍR 26-24 Mörk Stjörnunnar: Andri Hjartar Grétarsson 8, Þórir Ólafsson 6, Ari Magnús Þorgeirsson 5, Víg- lundur Jarl Þórsson 3, Hrannar Bragi Eyjólfsson 2, Eyþór Magnússon 1, Starri Friðriksson 1. Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 8, Bjarni Fritzson 5, Sturla Ásgeirsson 3, Jón Heiðar Gunnarsson 3, Davíð Georgsson 2, Sigurjón Björnsson 1, Ingi Rafn Róbertsson 1, Arnar Hálfdánsson 1. HK - HAUKAR 20-31 Mörk HK: Leó Snær Pétursson 5, Þorgrímur Smári Ólafsson 4, Garðar Svansson 3, Þorkell Magnússon 2, Lárus Helgi Ólafsson 1, Daði Laxdal Gautason 1, Aron Gauti Óskarsson 1, Tryggvi Þór Tryggvason 1, Guðni Már Kristinsson 1, Andri Þór Helgason 1. Mörk Hauka: Tjörvi Þorgeirsson 8, Heimir Óli Heimisson 6, Þröstur Þráinsson 4, Janus Daði Smárason 3, Adam Haukur Baumruk 3, Leonharð Þorgeir Harðarson 2, Vilhjálmur Geir Hauksson 2, Árni Steinn Steinþórsson 2, Egill Eiríksson 1. VALUR - FH 28-25 Valur - Mörk (skot): Geir Guðmundsson 8 (12), Kári Kristján Kristjánsson 5 (6), Guðmundur Hólmar Helgason 5 (11), Vignir Stefánsson 3 (3), Finnur Ingi Stefánsson 3 (5), Elvar Friðriksson 3 (7), Ómar Ingi Magnússon 1/1 (1/1), Bjartur Guð- mundsson (1), Varin skot: Stephen Nielsen 21/1 (46/2, 46%). FH - Mörk (skot): Ísak Rafnsson 5 (15), Daníel Matthíasson 4 (4), Magnús Óli Magnússon 4 (5), Benedikt Reynir Kristinsson 4 (6), Ásbjörn Friðriksson 4/1 (9/2), Halldór Ingi Jónasson 2 (3), Hlynur Bjarnason 1 (3), Ragnar Jóhannsson 1 (6), Andri Hrafn Hallsson (1), Varin skot: Brynjar Darri Baldursson 9 (26/1, 35%), Ágúst Elí Björgvinsson 4 (15, 27%). OLÍS-DEILD KVENNA VALUR - FRAM 18-24 Mörk Vals: Kristín Guðmundsdóttir 12, Morgan Marie Þorkelsdóttir 3, Bryndís Elín Wohler 2, Vigdís Þorsteinsdóttir 1. Mörk Fram: Ragnheiður Júlíusdóttir 7, Steinunn Björnsdóttir 4, Hekla Ámundadóttir 3, Marthe Sördal 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Hulda Dagsdóttir 1, Nadía Bordon 1, Guðrún Hálfdánardóttir 1.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.