Fréttablaðið - 07.11.2014, Side 62
7. nóvember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 42
„Þetta var reyndar ekkert
mass íft sko,“ segir tónlistar-
maðurinn og þúsundþjalasmið-
urinn Þorsteinn Sindri Bald-
vinsson, eða Stony, en lagið
hans Feel Good var spilað á
einni vinsælustu útvarpsstöð-
inni í Ástralíu, B105.
Stony varð fyrst þekktur
þegar myndbönd hans á You-
Tube vöktu athygli hjá stór-
fyrirtækinu Pepsi, sem varð til
þess að hann lék í auglýsingu
fyrir það þar sem Lionel Messi
úr Barselóna kom við sögu.
Hann segir aðdragandann
að því að lagið var spilað þar
frekar langsóttan. „G20-fundur-
inn er haldinn í Ástralíu þetta
árið og B105 sá um umfjöllun
um hann. Einhverra hluta vegna
voru þau að kynna sér löndin
sem taka ekki þátt, en Ísland
er ekki með. Þau vildu kynna
sér tónlistarmenn og leikara
frá löndunum og sendu mér
tölvupóst, spjölluðu eitthvað og
spiluðu svo lagið,“ segir Stony,
en lagið Feel Good er það fyrsta
sem hann gefur út. „Mig langar
bara að gera tónlist og ég á pott-
þétt eftir að gera meira. Aldrei
að vita nema maður gefi út ann-
ars staðar en á YouTube.“
Síðan hann lék í auglýsing-
unni fyrir Pepsi hefur verið
nóg að gera hjá honum. „Ég
var að klára frekar stórt verk-
efni fyrir Samsung, sem ég má
samt ekki segja meira um eins
og er. Svo var ég að klára tvö
önnur stór verkefni úti sem ég
get ekki sagt meira um að svo
stöddu.“ Fyrir stuttu var hann
svo beðinn um að taka þátt í ráð-
stefnunni Sko á vegum Ja.is.
„Já, það var nett flippað. Ég
var beðinn um að gera mynd-
band um ferðina frá YouTube til
Pepsi og tala um það. Nú er það
myndband víst farið til Ástralíu
þar sem Arnt Erikssen, norskur
frumkvöðull, ætlar að nota það í
fyrir lestra hjá sér.“
Aðspurður hvort hann sé ekki
að raka inn fé á því að vinna
fyrir þessi stóru fyrirtæki seg-
ist hann hafa það bara gott.
„Þetta er alveg nógu fínt fyrir
21 árs gaur á Akureyri.“
adda@frettabladid.is
FÖSTUDAGSLAGIÐ
Mig langar bara að
gera tónlist, og ég á
pottþétt eftir að gera
eitthvað meira. Aldrei að
vita nema maður gefi
út annars staðar en
bara á YouTube.
Stony.
„Ef þú smælar framan í heiminn
eftir Megas. Það er bara frábært lag
og sérstaklega í okkar flutningi.“
Gunnar Ragnarsson, söngvari í Grísalappalísu.
Í enda október flutti Reykjavíkur
Akademían úr JL-húsinu vegna
þess að til stendur að breyta hluta
hússins í gistiheimili.
Já List!, hópnum sem hefur
komið sér fyrir í húsinu á meðan
það stendur autt, barst í gær tölvu-
póstur frá eiganda hússins. „Hann
er búinn að gefa okkur grænt ljós á
að vera hérna þar til framkvæmd-
ir hefjast og tók bara vel í þetta,“
segir Guðný Ósk, einn af meðlim-
um Já List!.
Hópurinn, sem varð til í kjölfar
hústökunnar, hefur dvalið á fjórðu
og fimmtu hæð hússins síðan á
föstudag. Meðlimirnir eiga það
sameiginlegt að vilja skapa eitt-
hvað fallegt og byggja upp virka
lista- og menningarmiðstöð. Guðný
Ósk tekur fram að allir séu vel-
komnir: „Það eru ekki allir í þess-
um hópi listamenn, líka fólk sem
hefur gaman af list og vill taka þátt
í að stuðla að aukinni listsköpun og
getur lagt eitthvað af mörkum.“
Hópurinn hefur enn sem komið
er engar áætlanir um hvað tekur
við þegar hann þarf að yfirgefa
húsið. „Eins og er þá erum við að
reyna að hugsa viku og viku fram í
tímann og hvernig við getum byggt
þetta upp. Hvernig við getum fengið
fólk inn sem vantar rými en erum
ekkert farin að hugsa lengra. Þetta
er svo nýtilkomið, við nýbyrjuð að
skapa þetta og viljum gera þetta að
einhverju skemmtilegu áður en við
förum að pæla í framtíðinni.“
- gló
Eigandinn gaf Já List! grænt ljós
Stuðla að aukinni listsköpun, allir sem geta lagt eitthvað af mörkum velkomnir.
GUÐNÝ ÓSK Framtíðin er óráðin en
hópurinn veit ekki hversu lengi hann
hefur aðstöðu í húsinu eða hvað tekur
við. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Fyrst YouTube, síðan
Pepsi, núna Samsung
Þorsteinn Sindri Baldvinsson, eða Stony, gaf út lag í byrjun september en það er
strax komið í spilun í Ástralíu. Hann er nýbúinn að klára verkefni fyrir Samsung.
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir gefur á þriðjudag-
inn kemur út bókina Lóaboratoríum. Í henni
er safn af teiknimyndasögum sem Lóa hefur
verið að búa til síðastliðin sjö ár en hún hefur
teiknað myndasögur allt frá því að hún var
átta ára gömul.
„Fyrsta myndasagan mín er eiginlega með
sama söguþræði og Ben Stiller-kvikmynd
Night at the Museum. Nema bara aðeins
lélegri,“ segir Lóa og hlær.
Áhuginn á teiknimyndasögum kviknaði því
snemma hjá Lóu. „Það áttu allir myndasög-
ur, þær voru í hverju einasta blaði sem kom
heim til manns. Svo var algengt að eiga Sval
og Val, Viggó og Andrés Önd. Pabbi gaf mér
og systur minni líka alltaf myndasögur fyrir
jólin.“
Hún segir teiknimyndasögusamfélagið
stærra og virkara en margir halda: „Ég er
til dæmis í safnaraklúbbi. Það eru sextíu og
eitthvað manns í honum. Safnið mitt er samt
frekar lélegt, ég er algjör byrjandi miðað við
hina í klúbbnum.“
Lóa segir það vera misskilning að teikni-
myndasögur séu bara fyrir börn. „Þetta er
auðvitað skrifað af fullorðnu fólki, maður
gleymir því stundum. Það er rosa mikið af
alkóhólisma og fólki að hegða sér illa í bók-
inni minni. Svo er líka einhver smá von.“
- gló
Alkóhólismi, ólæti og smá von
Teiknimyndasögur eru ekki bara fyrir börn segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir.
LÓA HLÍN Gefur út teiknimynda-
sögubók. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRIMARINÓ
BARA RÉTT AÐ
BYRJA Stony
ætlar að ein-
beita sér að því
að semja tónlist,
ásamt því að
sinna öðrum
verkefnum.
MYND/BALDUR
KRISTJÁNS
Fyrsta
myndasag-
an mín er
eiginlega
með sama
söguþræði
og Ben
Stiller-
myndin
Night at
the
Museum.