Fréttablaðið - 20.11.2014, Side 6
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
STJÓRNMÁL Þriðjungur þjóðar-
innar, eða 34 prósent, styður rík-
isstjórnina samkvæmt könnun
Fréttablaðsins. Tæplega helm-
ingur, eða 49 prósent, styður
hana ekki. Fjórtán prósent segj-
ast óákveðin en 4 prósent svara
ekki spurningunni. Þegar einung-
is er litið til svara þeirra sem taka
afstöðu sést að 41 prósent styður
ríkisstjórnina en 59 prósent styðja
hana ekki.
Stuðningurinn er meiri meðal
karla en kvenna. Fjörutíu pró-
sent karla segjast styðja ríkis-
stjórnina, 45
prósent segjast
ekki styðja hana,
þrettán prósent
eru óákveðin og
2 prósent svara
ekki. Tuttugu
og átta prósent
kvenna segj-
ast styðja rík-
isstjórnina, 53
prósent segjast
ekki styðja hana, 15 prósent eru
óákveðin og 6 prósent svara ekki.
Af þeim sem tóku afstöðu sögðust
47 prósent karla styðja ríkisstjórn-
ina en einungis 34 prósent kvenna.
Þetta er lítil breyting á stuðn-
ingi við ríkisstjórnina frá því í
könnun sem gerð var í október, en
þó innan skekkjumarka, sem eru
3,41 prósent. Þá sögðust 35 pró-
sent styðja ríkisstjórnina og 65
prósent ekki. Könnunin var gerð
á miðvikudag og fimmtudag í síð-
ustu viku.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, formaður Landssambands
framsóknarkvenna, segist aðspurð
ekki hafa áhyggjur af þessum
tölum. „En þetta eru hlutföll sem
menn eiga að velta fyrir sér og af
hverju þessi greinilega marktæki
munur stafi,“ segir Sveinbjörg
Birna. Hún hafi hins vegar engar
niðurnjörvaðar skýringar á því
hvers vegna þetta er svo.
„En það má velta því fyrir sér
hvort ríkisstjórnin hafi verið að
vinna meira í hörðu málunum
frekar en þeim mjúku. Því það má
sjá mismunandi hlutfall karla og
kvenna sem fylgja þeim málum,“
segir hún. Sveinbjörg Birna telur
þessar tölur ekki benda til þess
að úrræði ríkisstjórnarinnar í
skuldamálum hafi skilað sér frek-
ar til karla en kvenna. „Heldur
skýrist þetta miklu frekar af mis-
munandi nálgun karla og kvenna í
pólitík,“ segir hún.
„Ánægjulegt er að sjá fylgi rík-
isstjórnarinnar aukast og vonandi
heldur það áfram í þá átt. Það
kemur á óvart að ekki sé meiri
stuðningur á meðal kvenna en í
því felast tækifæri á sama tíma.
Ábyrgur ríkisrekstur, skuldaleið-
réttingar og aukið fjármagn til
heilbrigðiskerfisins eru áherslur
sem ættu að höfða til beggja
kynja,“ segir Þórey Vilhjálms-
dóttir, formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna. „En það er þá
mikilvægt að hafa í huga að kynja-
hlutföll í ríkisstjórn og á Alþingi
hafa einnig áhrif á stuðning
kvenna, fram hjá því er ekki hægt
að líta,“ bætir hún við.
jonhakon@frettabladid.is
1. Hvað er sérstakt við nýjan lánafl okk
Byggðastofnunar?
2. Hvað heitir utanríkisráðherra
Þýskalands?
3. Hvað heitir söngvari hljómsveitar-
innar Bombay Bicycle Club?
SVÖR
1. Er sérstaklega ætlaður konum. 2. Frank-
Walter Steinmeier. 3. Jack Steadman.
Allir
Karlar
Konur
STYÐUR ÞÚ RÍKISSTJÓRNINA?
41%
JÁ
59%
NEI
47% 53%
34% 66%
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Ertu með
verki í
hnjám eða
ökkla?
Flexor býður mikið úrval af
stuðningshlífum fyrir flest
stoðkerfisvandamál.
DÓMSMÁL Hinrik Geir Helgason,
einn þeirra sem dæmdir voru í
Stokkseyrarmálinu svokallaða,
var á mánudag dæmdur í 10 mán-
aða fangelsi fyrir að hafa svipt
mann frelsi.
Kona sem var með honum í för
var dæmd í tveggja mánaða fang-
elsi fyrir frelsissviptinguna. Hin-
rik var auk þess dæmdur fyrir
líkamsárás.
Í dómnum kemur fram að Hin-
rik hafi í félagi við þrjá aðra
bundið manninn á höndum og
haldið honum nauðugum í íbúð
í Hafnarfirði í júlí síðastliðnum.
Hinrik og annar óþekktur aðili
hafi veist að manninum þar sem
hann var sofandi, kýlt hann með
krepptum hnefa í andlit og lík-
ama og brotið í honum tennur.
Þá fékk maðurinn heilahrist-
ing, glóðarauga, vör sprakk og
hann var hruflaður á öxlum og
bringu.
Hinrik á sakaferil að baki frá
árinu 2009. Meðal annars fyrir
hlutdeild að Stokkseyrarmálinu
svokallaða þar sem hann í félagi
við fjóra aðra svipti mann frelsi
og misþyrmdi honum. Hinrik
hlaut tveggja og hálfs árs dóm
fyrir það.
Konan sem var dæmd á einnig
nokkuð langan sakaferil að baki,
frá árinu 2004.
- vh
Einn sakborninga úr Stokkseyrarmálinu dæmdur fyrir frelsissviptingu og líkamsárás í Hafnarfirði í júlí:
Tíu mánaða fangelsi fyrir frelsissviptingu
DÆMDUR Hinrik Geir hlaut tveggja
og hálfs árs dóm fyrir þátt sinn í
Stokkseyrarmálinu svokallaða.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Mun meiri stuðningur
hjá körlum en konum
Um 41 prósent landsmanna styður ríkisstjórnina en 59 prósent styðja hana ekki.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna,
segir muninn hugsanlega stafa af mismunandi nálgun karla og kvenna í pólitík.
SVEINBJÖRG
BIRNA SVEIN-
BJÖRNSDÓTTIR
Ábyrgur
ríkisrekstur,
skuldaleiðrétt-
ingar og aukið
fjármagn til
heilbrigðis-
kerfisins eru
áherslur sem ættu að
höfða til beggja kynja.
Þórey Vilhjálmsdóttir, formaður
Landssambands sjálfstæðiskvenna.
TYRKLAND Hollensk kona, sem heitir Monique, hélt í síðustu viku til
borgarinnar Rakka í Sýrlandi til þess að bjarga nítján ára dóttur
sinni, sem hafði gifst liðsmanni vígasamtakanna Íslamsks ríkis.
Dóttirin heitir Aicha, en ættarnafn þeirra hefur ekki verið gefið
upp í fjölmiðlum. Þær eru nú komnar til Tyrklands og bíða leyfis til að
halda áfram til Hollands.
Vígasveitir Íslamska ríkisins hafa Rakka og fleiri borgir í norð-
vestanverðu Sýrlandi á valdi sínu, vaða þar uppi með hótunum og
ofbeldi og heimta að fólk fari eftir öfgafullri einkatúlkun þeirra á
íslamskri trú.
Aicha hafði gifst manni að nafni Omar Yilmaz, sem er hollensk-
tyrkneskur og hefur gegnt herþjónustu í hollenska hernum. Hann
staðfestir á Twitter-síðu sinni að „fyrrverandi eiginkona“ sín sé
komin til Tyrklands, að því er fram kemur á fréttavef BBC. - gb
Hollensk móðir hélt til Sýrlands til bjargar dóttur sinni:
Heimti dóttur frá vígamönnum
VÍGAMENN Í RAKKA Liðsmenn vígasamtakanna Íslamsks ríkis fagna á götum
borgarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
MALI, AP Í landamærabænum
Kouremale í Malí, rétt við landa-
mæri Nígeríu, er nú grannt fylgst
með öllum ferðum fólks milli
landanna.
Allir ferðalangar þurfa að
koma við í hvítu tjaldi, þar sem
hiti þeirra er mældur og þeim
sagt að þvo sér um hendurnar
með klórvatni.
Fimm manns hafa nýlega látið
lífið úr ebólu í Malí. Tveir þeirra
höfðu farið yfir landamærin og
komið við í Kouremale.
Þau fyrstu sem létust voru
tveggja ára stúlka og sjötugur
maður, en hann hafði komið frá
Gíneu í síðasta mánuði og farið
um Kouremale. Ekki er talið að
stúlkan hafi smitað neina aðra,
en gamli maðurinn virðist hafa
smitað þrjá aðra sem síðan létust.
Grannt er fylgst með rúmlega
400 manns í viðbót.
„Í fyrstu trúðum við ekki
á ebóluveikina,“ segir Falaye
Keita, sem býr í Kouremale. „Allt
frá því gamli maðurinn dó vitum
við að ebólan er raunveruleg, og
við erum virkilega hrædd um
að þessi sjúkdómur muni koma
til þorpsins okkar.“ Jean-Franc-
ois Delfraissy, yfirmaður ebólu-
teymis á vegum Frakklandsfor-
seta, hefur varað við því að næsti
ebólufaraldur geti sprottið upp í
Malí. - gb
Íbúar í Malí eru farnir að læra á ebóluna eftir fimm dauðsföll:
Hiti mældur á landamærastöð
EFTIRLITS-
STÖÐ VIÐ
LANDA-
MÆRIN
Heilbrigðis-
starfsfólk
tekur á móti
sjúklingum
við landa-
mæri Malí og
Gíneu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?