Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 16
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 16
FERÐAÞJÓNUSTA Fjölgun fag-
menntaðs starfsfólks í ferða-
þjónustu er langt frá því að
vera nægilega hröð og hefur
engan veginn haldið í við fjölg-
un ferðamanna síðastliðin ár.
Framboð menntunar er sundur-
leitt, samráð fræðsluaðila skort-
ir og utanumhald um málefni
menntunar í ferðaþjónustu er
ófullnægjandi. Samhliða fjölgun
ferðamanna hefur fyrirtækjum
fjölgað um 72 prósent frá árinu
2008.
Þetta er meðal þess sem
kemur fram í nýrri greiningu
sem KPMG vann að beiðni
Ferðamálastofu á framboði
og fyrirkomulagi menntunar
tengdrar ferðaþjónustu og þörf-
um greinarinnar þar að lútandi.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri segir að niðurstöður vinn-
unnar gefi til kynna að farið sé
að reyna á þanþol atvinnugrein-
arinnar þegar kemur að því
að tryggja vandaða þjónustu.
Við því þurfi að bregðast. „Of
miklar hindranir virðast vera
innbyggðar í kerfið til þess að
tryggja að vöxtur og fagþekking
haldist í hendur og það verður
ein af megináskorunum ferða-
þjónustunnar á næstu árum að
tryggja að gæði, fagmennska og
tækifæri til þekkingaröflunar
og þjálfunar þeirra sem starfa í
greininni verði leiðarljós þróun-
arinnar,“ segir Ólöf.
Spurð í hvaða vandræðum
ferðaþjónustan geti lent ef
skortur á fagmenntuðu vinnu-
afli verður viðvarandi segir
Ólöf: „Eigi atvinnugreinin að
vaxa með sjálfbærum hætti og
í sátt við land og þjóð verður
að tryggja að menntunartæki-
færin séu í samræmi við þarfir
atvinnurekenda og starfsfólks,
þannig að hægt sé að tryggja
gæðin. Verði sú ekki raunin er
hætt við að orðspor Íslands sem
áfangastaðar ferðamanna bíði
skaða af. Í ljósi þess að um 40
prósent erlendra ferðamanna
segjast hafa tekið ákvörðun um
Íslandsferð á grunni ábendinga
frá vinum og vandamönnum og
með hliðsjón af þeirri áherslu
sem okkar gestir leggja á mikil-
vægi gestrisni og gæða, er hætt
við að þetta hefði afar neikvæð
áhrif á atvinnugreinina í heild.“
svavar@frettabladid.is
Of
miklar hindr-
anir virðast
vera inn-
byggðar í
kerfið til þess
að tryggja að
vöxtur og fagþekking
haldist í hendur.
Ólöf Ýrr Atladóttir,
ferðamálastjóri.
Ferðaþjónustuna bráðvantar
fleiri menntaða starfsmenn
Skortur á fagmenntuðu starfsfólki innan ferðaþjónustunnar er tilfinnanlegur og getur orðið dragbítur á vöxt
greinarinnar til framtíðar litið. Að óbreyttu gæti orðspor Íslands sem ferðamannastaðar beðið skaða af.
Rauði þráður greiningarinnar er að gap sé á milli fjölgunar ferðamanna
og fagmenntaðs starfsfólks, en það sé hins vegar skiljanlegt þar sem
aukning ferðamannastraumsins til landsins er fordæmalaus í heiminum.
Til lengri tíma litið telst ljóst að mati aðila innan ferðaþjónustunnar og
fræðslustofnana, sem KPMG ráðfærði sig við, að ef ekkert verður að gert
muni verða erfitt að veita öllum þessum fjölda ferðamanna þá þjónustu
sem þeir þarfnast, og sérstaklega verði að horfa til fjölgunar fagmennt-
aðra í hótelstjórnun, framreiðslu, matreiðslu og afþreyingariðnaðinum.
Því er lagt til að stofnað verði fræðsluráð sem hefði yfirsýn yfir málefni
menntunar í ferðaþjónustu þar sem ættu sæti fulltrúar stjórnvalda og
hagsmunaaðila innan greinarinnar.
➜ Ferðamönnum fjölgar hraðar en fagfólki
SLYS Rúmlega fjörutíu einstak-
lingar drukkna á hverri einustu
klukkustund, og drukknun er á
meðal tíu algengustu dánaror-
saka barna og ungmenna í hverj-
um einasta heimshluta.
Upplýsingaskrifstofa Samein-
uðu þjóðanna greinir frá þessum
niðurstöðum úr skýrslu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO). Önnur niðurstaða WHO
er að 372 þúsund manns drukkna
á ári hverju.
Aðrar sláandi niðurstöður í
skýrslunni eru m.a. að meira en
helmingur þeirra sem drukkna
er undir 25 ára aldri. Hæsta hlut-
fallslega dánartíðnin er á meðal
barna, fimm ára og yngri. - shá
Algengt að börn drukkni:
Um 372 þúsund
drukkna á ári
Í HÆTTU? Þeir sem drukkna eru helst
börn og ungmenni. NORDICPHOTOS/AFP
Í HEIMSÓKN Tilhneiging meðalfyrirtækis í ferðaþjónustu er að ráða ófaglært starfs-
fólk og litlar kröfur eru gerðar um menntun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HEILBRIGÐISMÁL Fuglaflensa af
stofni H5N8 kom upp á kalkúna-
búi í Þýskalandi 4. nóvember
síðastliðinn, í varphænum í Hol-
landi 14. nóvember og sama dag í
aliöndum á Englandi.
Matvælastofnun á Íslandi telur
litla hættu á að fuglaflensan
berist hingað til okkar, vegna
strangra innflutningshafta sem
hér gilda. - jhh
H5N8 í fyrsta sinn í Evrópu:
Ný fuglaflensa