Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 78
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 66
Það er mjög gott að búa á Íslandi. Hér njóta allir ákveðinna grundvallarétt-
inda sem ekki verða af þeim tekin og eru
vernduð af sjöunda kafla stjórnarskrár
Íslands, mannréttindakaflanum.
MANNRÉTTINDUM er gjarnan skipt
niður í frelsi og réttindi. Ég er hrifnastur
af frelsinu til tjáningar og svo trúfrelsinu.
ÉG myndi ekki vilja búa í landi þar sem
allt er ritskoðað og hægt er að skerða mál-
frelsi manna. Ég vil að allir eigi kost á því
að segja skoðanir sínar umbúðalaust.
NEMA þegar ég er ósammála viðkom-
andi. Þá getur auðvitað verið rétt í
ákveðnum tilvikum að banna fólki að
tjá sig.
HÉR á Íslandi kærum við góða
fólkið okkur ekki um að fá
stefnumótaráðgjafann Julien
Blanc í heimsókn. Hann hefur
tilkynnt á vefsíðu sinni að hann
sé væntanlegur til Íslands í júní
á næsta ári til að halda námskeið fyrir
karlmenn um hvernig sé best að ná sér í
konur, niðurlægja þær og láta þær hlýða.
ÉG er einn af þeim fáu sem átta sig á því
að þetta er ekki í lagi. Almenningur á
Íslandi gerir sér ekki grein fyrir hversu
rangt þetta er þannig að ég skerst í leik-
inn.
ÉG deili greinum af knúz.is og hvet fólk
til þess að sniðganga viðburðinn ef okkur
tekst ekki að stöðva komu mannsins með
undirskriftalistum á netinu. Þannig get ég
látið ljós mitt skína á samfélagsmiðlum og
komið fólki í skilning um hversu frábær
manneskja ég er. Tjáningarfrelsið er jú til
þess að vernda réttar skoðanir og engar
aðrar.
TRÚFRELSISÁKVÆÐIÐ er svo auð vitað
til þess að vernda kristna menningu
okkar og tryggja það að við getum flutt
skólabörnum boðskap Jesú Krists. Ekki til
þess að leyfa múslimum að byggja mosk-
ur. Við erum jú kristin þjóð.
JÁ, ég fagna því að á Íslandi geta menn
tjáð skoðanir sínar um hvaða málefni
sem er en á sama tíma geri ég þá kröfu
að skoðanir sem samræmast ekki mínum
eigin verði bannaðar með öllu. Svona er
ég nú frábær.
Réttindi góða fólksins
BAKÞANKAR
Frosta
Logasonar
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS!
EMPIRE NEW YORK POST
T.V. SÉÐ & HEYRT TIME OUT LONDON
H.J. FRÉTTATÍMINN
MISSIÐ EKKI AF “FEELGOOD” MYND ÁRSINS!
DUMB AND DUMBER KL 5.30 - 8
ST. VINCENT KL. 5.30 - 8 - 10.20
NIGHTCRAWLER KL. 8 - 10.25
GRAFIR OG BEIN KL. 5.50 - 8
BORGRÍKI KL. 5.45 - 10.10
DUMB AND DUMBER KL. 8
DUMB AND DUMBER LÚXUS KL 5.30 - 8
INTERSTELLAR KL 5.30 - 9
INTERSTELLAR LÚXUS KL. 10.25
GRAFIR OG BEIN KL. 5.45 - 8
FURY KL 8 - 10.50
BORGRÍKI KL 5.45
GONE GIRL KL.10.10
KASSATRÖLLIN ÍSL TAL2D KL. 3.30
SMÁHEIMAR ÍSL TAL2D KL. 3.30
DUMB & DUMBER TO 5:40, 8, 10:30
NIGHTCRAWLER 8
BORGRÍKI 2 5:50
KASSATRÖLLINN 2D 5:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Leviathan, síðustu sýningar 17.00
Clouds of Sils Maria 17.30, 20.00, 22.00
Turist 17.45, 20.00
Salóme, síðasta sýning 20.00
20.000 Days on Earth 22.00
París norðursins (Eng sub) 22.15
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-20
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Endurútsetning Bigga Hilmars á
laginu Imagine eftir John Lennon
er komin út á safnplötu í Banda-
ríkjunum. Biggi gaf lagið út í
samstarfi við Pusher Music í Los
Angeles, sem sérhæfir sig í tónlist
fyrir kvikmyndir og sjónvarps-
þætti.
Að sögn Bigga var þetta
skemmtilegt en mjög krefjandi
verkefni, þar sem hann ákvað
að víkja langt frá upprunalegri
útgáfu Lennons, breyta hljómun-
um og laglínunni og búa til sína
persónulegu útgáfu, sem ein-
kennist af lágstemmdri píanó- og
strengjaútsetningu, rödd og dans-
takti.
„Ég er búinn vera svolítið
fyrir það að „covera“ eitt og eitt
af mínum uppáhaldslögum. Ég
tók [Leonard] Cohen um árið og
svo núna þetta. Pusher Music
var spennt fyrir því að gera eitt-
hvað svoleiðis með mér, þannig að
okkur datt í hug að ráðast á þenn-
an háa garð sem þetta lag er,“
segir Biggi, sem þurfti að taka
á honum stóra sínum við endur-
útsetninguna. „Þetta var ekkert
grín. Ég gerði nokkrar útgáfur og
þurfti að kljást mikið við þetta lag.
Ég sneri öllu við, því það er alls
ekki hægt að toppa upprunalegu
útgáfuna,“ segir hann. „Ég bjó
hálfpartinn til nýtt lag úr þessu en
notaði laglínur og hluti frá gamla
módelinu.“
Biggi má ekki gefa lagið út hér
á landi fyrr en á næsta ári en er
samt vongóður um að hann fái
undanþágu og geti leyft Íslend-
ingum að heyra það frá og með 8.
desember, deginum sem Lennon
var myrtur. „Mig langar að gefa
út lagið þegar slokknar á Friðar-
súlunni og halda smá lífi í kall-
inum.“
Nýverið gerði Biggi einnig tón-
list við kynningarstiklu alþjóðlegu
sjónvarpsþáttaraðarinnar Olive
Kitteridge með Frances McDorm-
and og Bill Murray í aðalhlutverk-
um. Sýningar á þættinum hefjast
á bresku sjónvarpsstöðinni Sky í
desember.
Biggi hefur verið með fleiri járn
í eldinum. Hann var tónlistarstjóri
fyrir leikhúsverkið Strengi, sem
listahópurinn Vinnslan framleiddi
og sýndi á dögunum í Tjarnarbíói,
auk þess sem hann er þessa dag-
ana að semja og hljóðrita tónlist
fyrir heimildarmyndina Suður-
landið. Hún fjallar um samnefnt
farmskip sem fórst við Noregs-
strendur árið 1986. Elf Films
framleiddi myndina og leikstjóri
var Ágústa Einarsdóttir.
Nánar upplýsingar um tónlist
Bigga má finna á vefsíðu hans,
Biggihilmars.com.
freyr@frettabladid.is
Endurútsetti lagið Imagine
fyrir bandaríska safnplötu
Biggi Hilmars gaf lagið út í samstarfi við Pusher Music sem sérhæfi r sig í tónlist fyrir kvikmyndir og þætti.
BIGGI HILMARS Endurútsetningin var skemmtilegt verkefni, að sögn Bigga Hilmars. MYND/MARÍA KJARTANSDÓTTIR
Mig langar að gefa
út lagið þegar slokknar á
friðarsúlunni og halda
smá lífi í kallinum
Eigendur Topshop hafa áfrýjað
dómi um að tískuverslunin megi
ekki selja föt með mynd af söng-
konunni Rihönnu.
Verslunin þurfti að fjarlægja
stuttermaboli og önnur föt með
myndum af söngkon-
unni úr hillum sínum
á síðasta ári. Rihanna
hafði kvartað yfir
fötunum og taldi að
aðdáendur hennar
myndu halda að
hún hefði gefið
samþykki sitt
fyrir þeim, sem
hún gerði ekki.
Dómstólar
voru sammála
poppstjörn-
unni en núna
hafa eigendur
Topshop sem
sagt áfrýjað og
telja sig hafa
rétt til þess að
selja fötin á
nýjan leik.
Topshop
áfrýj ar dómi