Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 64
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 52
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 9-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
BÆKUR ★★★★ ★
Ástarmeistarinn
Oddný Eir Ævarsdóttir
BJARTUR
Oddný Eir Ævarsdóttir hlaut ein-
róma lof fyrir síðustu bók sína
Jarðnæði sem á dögunum hlaut
Evrópsku bókmenntaverðlaunin.
Það var fyllilega verðskuldað lof
og það er því með talsverðri eftir-
væntingu sem maður hefur lest-
urinn á nýju skáldsögunni hennar
Ástarmeistaranum. Eins og nafnið
bendir til er ástin hér í forgrunni
en sagan er þó nánast eins langt frá
hefðbundinni ástarsögu og hægt er
að komast. Þetta er engin „strákur
hittir stelpu og eftir smá misskiln-
ing og spillandi afskipti vonds fólks
ná þau saman og lifa hamingjusöm
upp frá því“. Svo óralangt frá því.
Hér eru reyndar ýmis ljón í vegi
elskendanna, en ljónin eru flest
innra með þeim sjálfum og alfar-
ið á þeirra sjálfra ábyrgð að takast
á við þau. Eftir hálfmisheppnaða
tilraun til að ná saman í holdinu
bregða elskendurnir verðandi á
það ráð að skrifast á, tefla bréf-
skák, í leit sinni að ástinni. Hverju
bréfi lýkur með einum leik í skák-
inni, sem reyndar segir þeim sem
hvorki þekkir haus né sporð á skák
ansi lítið, en er skemmtilegt tvist.
Leikurinn berst víða og elskend-
urnir ganga fram af bæði sjálfum
sér og öðrum í tilraunum sínum til
að finna uppsprettu ástarinnar og
þó enn frekar kynorkunnar. Kyn-
orkulaus manneskja getur ekki
kynnst ástinni samkvæmt þessari
bók.
Bókin ber skýr höfundarein-
kenni Oddnýjar Eirar; hina fersku
sýn á mannlegt eðli og náttúruna,
bæði innan manns og utan, kristal-
tæran stíl þar sem nánast hvert orð
er þrungið merkingu og ekkert japl
og jaml og fuður, og heimspekilega
nálgun á viðfangsefnið. Undirtónn-
inn er þó háerótískur en meira að
segja samfaralýsingar, sem alltof
oft vilja verða yfirmáta tilgerðar-
legar eða klénar vísanir í klámbók-
menntir, tekst henni að gera hrein-
ar og beinar, fullkomlega eðlilegan
lið í lýsingum á daglegu lífi fólks og
athöfnum. Maður tekur ofan fyrir
slíku tilgerðarlausu hispursleysi.
Persónusköpunin er svo kapítuli
út af fyrir sig. Aðalpersónurnar
Fjölnir og Anna eru vel skapaðar
og tiltölulega venjulegar manneskj-
ur sem við þekkjum öll en auka-
persónur fá gjarna ýktari drætti
og eru sumar hverjar frekar goð-
sögulegar staðalímyndir en eftir-
myndir raunverulegs fólks. Það
er þó greinilega ekki fyrir neina
slysni því þannig tekst höfundi
að láta þær vísa út fyrir verkið í
ýmis önnur verk, bæði forn og ný,
og bæta þannig enn einni vídd við
söguna.
Undirtitill bókarinnar er Blind-
skák, sem á vel við og tengist bæði
skákþemanu fyrrnefnda og þeirri
staðreynd að ástin er alltaf ófyrir-
sjáanleg og engin leið að segja fyrir
um næsta leik. Raunar mætti lesa
þessa sögu sem kennslubók í ástar-
leit en hún er þó mun breiðari og
umfangsmeiri en svo að slíkur
stimpill eigi við. Hér er einfald-
lega öll lífshamingjan undir. Fyrst
og fremst er þó Ástarmeistarinn
fantalega skemmtileg og frum-
leg saga sem fær lesandann til að
hugsa málin upp á nýtt og sjá ástina
og lífið frá óvæntu sjónarhorni. Það
er sannarlega ekkert smá afrek.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Frumleg og fersk
ástarsaga sem opnar lesandanum
nýjar víddir.
Ástin er ekki sinueldur
ODDNÝ EIR ÆVARSDÓTTIR „Maður tekur ofan fyrir slíku tilgerðarlausu hispurs-
leysi,“ segir Friðrika Benónýsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Húsráð Gunnarshúss
stendur fyrir vikuleg-
um höfundakvöldum í
Gunnarshúsi fram að
jólum. Á hverju fimmtu-
dagskvöldi mæta tveir
höfundar og spjalla um
bækur sínar, lesa aðeins
úr þeim, og síðan gefst
áhorfendum kostur á að
spyrja. Meiningin er að
lyfta jólabókavertíðinni
aðeins upp úr fari hinna
hefðbundnu upplestrar-
kvölda og gefa hverri
bók og hverjum höfundi
meiri tíma.
Í kvöld mæta þau
Bjarni Bjarnason og
Sigurbjörg Þrastardóttir,
lesa upp og svara spurn-
ingum Hildigunnar
Þráinsdóttur um nýút-
komnar bækur sínar,
Hálfsnert stúlka og Kátt
skinn (og gloría). Allir
eru velkomnir á meðan
stólar leyfa.
Bjarni og Sigurbjörg í Gunnarshúsi
Sigurbjörg Þrastardóttir og Bjarni Bjarnason lesa úr nýjum bókum sínum.
HÖFUNDAKVÖLD Sigurbjörg Þrastardóttir og Bjarni Bjarnason verða höfundar kvöldsins í
Gunnarshúsi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR/GVA