Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 82
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 70
17 ára
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
6 (0)
Fór til KR
Hörður Fannar Björgvinsson
Benedikt Októ Bjarnason Ósvald Jarl Traustason
Jóhannes Karl Guðjónsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Haukur Baldvinsson Aron Þórður Albertsson
Arnþór Ari Atlason
Guðmundur Magnússon
Ásgeir Marteinsson
Hafsteinn Briem
19 ára
Kom til Fram
2008
Leikir (mörk)
6 (0)
Fór til
ÍBV
34 ára
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
18 (2)
Fór til
Fylkis
23 ára
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
18 (4)
Fór til
Án liðs
19 ára
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
15 (1)
Fór til
Breiðabliks
31 árs
Kom til Fram
2013
Leikir (mörk)
40 (3)
Fór til
Án liðs
20 ára
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
13 (3)
Fór til
Án liðs
21 árs
Kom til Fram
2014
Leikir (mörk)
20 (3)
Fór til
Breiðabliks
24 ára
Kom til Fram
2013
Leikir (mörk)
41 (3)
Fór til
Víkings
18 ára
Kom til Fram
2013
Leikir (mörk)
16 (1)
Fór til
Án liðs
23 ára
Kom til Fram
2014 (uppalinn
en fór 2011)
Leikir (mörk)
45 (4)
Fór til Án liðs
FÓTBOLTI Flóttinn mikli úr Safa-
mýri náði nýjum hæðum í gær
þegar miðjumaðurinn Ásgeir
Marteinsson varð ellefti leikmað-
urinn sem yfirgefur Fram eftir
að liðið féll úr Pepsi-deild karla
í knattspyrnu í sumar. Þar með
hefur heilt byrjunarlið sagt skilið
við Fram eftir að tímabilinu lauk.
Frá byrjun síðasta tímabils
eru í heildina fjórtán leikmenn
farnir því samningi var sagt
upp við Björgólf Takefusa, Einar
Már Þórisson fór aftur til KV og
Ögmundur Kristinsson var seldur
til Randers í Danmörku.
Óvissa ríkir um þrjá leikmenn
til viðbótar. Aron Bjarnason vill
komast til ÍBV, markvörðurinn
Denis Cardaclija er að íhuga
stöðu sína og þá er framherjinn
Guðmundur Steinn Hafsteins-
son eftirsóttur af liðum úr Pepsi-
deildinni. Hann virðist þó vera
einn af sárafáum sem ekki voru
með uppsagnarákvæði í samningi
sínum.
Fram notaði 25 leikmenn á
síðustu leiktíð og eru nú fjórtán
farnir sem fyrr segir. Það eru
því í besta falli ellefu eftir, en í
versta falli átta fari Aron, Denis
og Guðmundur Steinn.
Sjö af leikmönnunum ellefu
sem farnir eru eftir að tímabilinu
lauk sömdu við Fram fyrir leik-
tíðina. Þeir tóku þátt í nýju verk-
efni Safamýrarliðsins sem sótti
unga og efnilega leikmenn og los-
aði sig við alla útlendinga. Bjarni
Guðjónsson átti að stýra þessari
uppbyggingu og gerði það í eitt
ár áður en hann lét af störfum og
tók við KR.
Er þessi hópur nógu góður?
Leikmenn hafa nýtt sér uppsagnar-
ákvæði í samningum sínum til að
losna frá félaginu og þykir mörg-
um furðulegt að leikmenn sem
fengnir voru í nokkurra ára upp-
byggingu hafi átt jafn einfalda
undankomuleið og raun ber vitni.
„Við sömdum við þessa menn
þannig að það væri uppsagnar-
ákvæði hjá þeim og félaginu ef
illa færi. Við höfðum trú á verk-
efninu, en ef við myndum falla þá
væri liðið líklega ekki nógu gott.
Þessi hópur tók við Fram sem bik-
armeistara og í Evrópukeppni og
féll, þannig að ég spyr: Var hóp-
urinn nógu góður?“ segir Sverrir
Einarsson, formaður knattspyrnu-
deildar Fram, við Fréttablaðið um
samningagerðina fyrir tímabilið.
„Það er alveg ljóst að miðað við
hvernig þetta fór þá hefðum við
gert fullt af breytingum og það var
líka gott fyrir okkur að vera ekki
bundnir. Sumir leikmannanna auð-
velduðu okkur bara vinnuna.“
Fæstir leikmannanna sem farn-
ir eru hafa sest niður með for-
ráðamönnum Fram og tilkynnt að
þeir vildu nýta uppsagnarákvæði
sín eða ræða framtíð sína. „Ég er
búinn að fá einhverja 6-8 pósta frá
umboðsmönnum um að viðkom-
andi leikmenn hafi nýtt sér upp-
sagnarákvæði sín. Þeir hafa ekk-
ert talað við okkur,“ segir Sverrir.
Enginn annar í spilinu
Hann álasar strákunum ekkert
fyrir ákvarðanir þeirra en finnst
lélegt að menn yfirgefi félagið án
þess að kveðja og sumir hverjir
ekki búnir að finna sér önnur lið.
„Þetta er vissulega fúl staða
fyrir okkur sem fórum af stað með
þetta. Maður er auðvitað pínulítið
sár að menn fari án skýringa og
það er eiginlega það sem ég sætti
mig ekki við. Þetta er eins og að
vera í tilfinningasambandi þar
sem maður veit ekki hvað gerðist.
Það er ekki einu sinni annar karl
í spilinu,“ segir Sverrir léttur og
vitnar til þess að nokkrir leikmann-
anna sem farnir eru hafi ekki fund-
ið sér nýtt félag.
Fara ekki á taugum
Þó meiri hluti liðsins sem spilaði
í fyrra sé farinn frá Fram hefur
Sverrir engar áhyggjur af stöðu
mála. Kristinn Rúnar Jónsson, nýr
þjálfari liðsins, var með 20 leik-
menn á æfingu í vikunni.
„Við erum búnir að fá sex stráka
inn í hópinn sem eru uppaldir hjá
félaginu og svo er fullt af ungum
strákum sem eru tilbúnir að koma
og spila fyrir Fram. Leikmenn-
irnir sem sem við fengum í fyrra
eru ekki einu ungu leikmennirnir
á Íslandi. Svo má ekki gleyma því
að þjálfarinn okkar stýrði U19 ára
landsliðinu í átta ár. Það er mikið af
leikmönnum sem hafa farið í gegn-
um hann og hafa trú á honum og
vilja spila fyrir hann,“ segir Sverr-
ir sem lofar því að Fram rísi á ný.
„Við förum ekkert á taugum yfir
þessu. Fram er orðið 108 ára gam-
alt félag með fullt af sögu. Fram
fer upp aftur. Vonandi verður það
strax en við sjáum til. Fram verð-
ur aftur með gott lið í efstu deild,“
segir Sverrir. tomas@365.is
Fram mun koma upp aft ur
Ásgeir Marteinsson varð í gær elleft i leikmaðurinn sem yfi rgefur Fram eft ir að liðið féll úr Pepsi-deildinni á
síðasta tímabili. Í heildina eru fj órtán leikmenn farnir frá því að síðasta tímabil hófst. Formaður knattspyrnu-
deildar Fram hefur engar áhyggjur en líkar illa að engir leikmannanna gefi upp ástæður fyrir brottför.
HÖFÐU TRÚ Á VERKEFNINU Sverrir
Einarsson, formaður knattspyrnudeildar
Fram. RÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Tómas Þór
Þórðarson
tomas@frettabladid.is
LEIKMENNIRNIR SEM ERU FARNIR FRÁ FRAM
➜ Leikmennirnir ellefu sem farnir
eru eftir tímabilið og Fréttablaðið
stillir upp til gamans í byrjunarliðinu
hér að ofan spiluðu samtals 238
leiki fyrir Fram. Það gerir 21,6 leik að
meðaltali á hvern sem nær ekki heilu
tímabili í Pepsi-deildinni.
F
A
S
T
U
S
_E
_0
5
.0
2
.1
3
Fastus býður uppá hágæða
japanska hnífa og önnur
eldhúsáhöld sem unun er
að vinna með þegar
matarundirbúningur
stendur sem hæst.
Komdu í verslun okkar,
Síðumúla 16 og skoðaðu
úrvalið af áhöldum sem
fagmenn, jafnt sem áhuga-
menn geta ekki án verið
í góðu eldhúsi.
Síðumúli 16 • 108 Reykjavík
Sími 580 3900 • www.fastus.is
Verslun opin mán-fös 8.30 -17.00
Veit á vandaða lausn