Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 40
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Orkering er handverk sem er talið eiga uppruna sinn í ítölskum nunnuklaustrum fyrir
rúmum fimm hundruð árum. Hand-
verkið er notað í dúka, blúndur til
skreytingar á íslenska þjóðbúningn-
um, blúndu á peysufatabrjóst, blúndu
á skírnarkjóla, skart og fleira. Þor-
gerður Kjartansdóttir, sem er alltaf
kölluð Togga, lærði að orkera með
því að horfa á myndbönd á netinu.
„Ég hef alltaf verið handavinnukona
og heklað mikið. Fyrir þó nokkru
síðan fór ég að hekla skartgripi en
fannst heklið ekki nógu fínlegt í
skartið. Þá fór ég að grúska á netinu
og rakst á þessa handavinnuaðferð
og lærði hana í fyrstu tilraun. Ég vissi
ekki fyrr en seinna að þetta væri
notað á íslenska þjóðbúninginn. Núna
hanna ég eigin mynstur en mér finnst
skemmtilegast að hanna skartið alveg
frá grunni.“
Nokkrar aðferðir eru til við að
orkera en sú aðferð sem Togga notar
náði ekki mikið til Íslands á fyrri öld-
um. „Flestir nota svokallaða skyttu
við að orkera en ég nota nál. Á Vikt-
oríutímanum í Englandi var orkering
efristéttarhandavinna því skyttan var
úr silfri og útskornum beinum og því
mjög dýr. Á átjándu öld kom nálin
til sögunnar þannig að almúginn fór
að orkera líka. Fínu frúrnar urðu svo
móðgaðar yfir að allir gátu orkerað
að þær kölluðu aðferðina með nálinni
„betlarablúndugerð“ en í raun sést
enginn munur á þessu tvennu,“ segir
Togga og brosir.
Hún gerir líka hálsmen og armbönd
úr perlum í mörgum litum. „Ég er
mjög rómantísk í mér og þess vegna
hef ég valið rómantíska og fallega liti
saman í perluskartið. Mér finnst líka
gaman að blanda saman perlunum
og orkeruðum blúndum og blómum,“
segir hún. Leyndardómsfull á svip
bætir hún því við að ýmislegt nýtt
sé í bígerð. „Ég er alveg á kafi við að
stúdera nýja handavinnu en ég er
ekki tilbúin að segja frá henni fyrr en
ég kem með línu í þess konar skarti
sem verður vonandi fyrir jól.“
Skartið hennar Toggu
má skoða nánar á
Facebook-síðu
hennar.
ELSKAR AÐ ORKERA
SKART Þorgerður Kjartansdóttir orkerar fallegt skart úr garni. Orkering er það
kallað þegar blúndur eru hnýttar með skyttu eða sérstakri orkeringar-nál.
RÓMANTÍSKT Perluskartið er í rómantískum litum en Toggu finnst gaman að
blanda saman perlunum og orkeruðum blúndum og blómum.
HANDAVINNUKONA Togga uppgötvaði orkeringu á netinu og hannar nú sína
eigin skartgripi með aðferðinni. AÐSENDAR MYNDIR
BLÚNDUGERÐ Togga gerir blúndugerð eða orkeruð hálsmen, eyrnalokka og
armbönd. Í skartið notar hún aðallega egypska bómull sem heldur sér vel.
FALLEGT Fyrr á öldum var orkering efristéttarhandavinna. Í dag hannar Togga fallegt skart með því að orkera.
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Flottir kjólar
Kr. 14.900.-
Str. S-XXL
nýtt kortatímabil
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
l n Be dVers uni lla onnaStærðir 38-58
Af öllum vörum frá
VIKUTILBOÐ
25% AFSLÁTTUR
Swanson – ánægðustu viðskiptavinirnir í USA árið 2013.
Söluaðilar á Íslandi á www.swanson.is.
16 tegundir góðra gerla
Sérvalin steinefni
Má taka hvenær sem er dags
Probiotic 16 Strain
Betri melting!