Fréttablaðið - 20.11.2014, Page 40

Fréttablaðið - 20.11.2014, Page 40
FÓLK|TÍSKA FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs- ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447 Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Orkering er handverk sem er talið eiga uppruna sinn í ítölskum nunnuklaustrum fyrir rúmum fimm hundruð árum. Hand- verkið er notað í dúka, blúndur til skreytingar á íslenska þjóðbúningn- um, blúndu á peysufatabrjóst, blúndu á skírnarkjóla, skart og fleira. Þor- gerður Kjartansdóttir, sem er alltaf kölluð Togga, lærði að orkera með því að horfa á myndbönd á netinu. „Ég hef alltaf verið handavinnukona og heklað mikið. Fyrir þó nokkru síðan fór ég að hekla skartgripi en fannst heklið ekki nógu fínlegt í skartið. Þá fór ég að grúska á netinu og rakst á þessa handavinnuaðferð og lærði hana í fyrstu tilraun. Ég vissi ekki fyrr en seinna að þetta væri notað á íslenska þjóðbúninginn. Núna hanna ég eigin mynstur en mér finnst skemmtilegast að hanna skartið alveg frá grunni.“ Nokkrar aðferðir eru til við að orkera en sú aðferð sem Togga notar náði ekki mikið til Íslands á fyrri öld- um. „Flestir nota svokallaða skyttu við að orkera en ég nota nál. Á Vikt- oríutímanum í Englandi var orkering efristéttarhandavinna því skyttan var úr silfri og útskornum beinum og því mjög dýr. Á átjándu öld kom nálin til sögunnar þannig að almúginn fór að orkera líka. Fínu frúrnar urðu svo móðgaðar yfir að allir gátu orkerað að þær kölluðu aðferðina með nálinni „betlarablúndugerð“ en í raun sést enginn munur á þessu tvennu,“ segir Togga og brosir. Hún gerir líka hálsmen og armbönd úr perlum í mörgum litum. „Ég er mjög rómantísk í mér og þess vegna hef ég valið rómantíska og fallega liti saman í perluskartið. Mér finnst líka gaman að blanda saman perlunum og orkeruðum blúndum og blómum,“ segir hún. Leyndardómsfull á svip bætir hún því við að ýmislegt nýtt sé í bígerð. „Ég er alveg á kafi við að stúdera nýja handavinnu en ég er ekki tilbúin að segja frá henni fyrr en ég kem með línu í þess konar skarti sem verður vonandi fyrir jól.“ Skartið hennar Toggu má skoða nánar á Facebook-síðu hennar. ELSKAR AÐ ORKERA SKART Þorgerður Kjartansdóttir orkerar fallegt skart úr garni. Orkering er það kallað þegar blúndur eru hnýttar með skyttu eða sérstakri orkeringar-nál. RÓMANTÍSKT Perluskartið er í rómantískum litum en Toggu finnst gaman að blanda saman perlunum og orkeruðum blúndum og blómum. HANDAVINNUKONA Togga uppgötvaði orkeringu á netinu og hannar nú sína eigin skartgripi með aðferðinni. AÐSENDAR MYNDIR BLÚNDUGERÐ Togga gerir blúndugerð eða orkeruð hálsmen, eyrnalokka og armbönd. Í skartið notar hún aðallega egypska bómull sem heldur sér vel. FALLEGT Fyrr á öldum var orkering efristéttarhandavinna. Í dag hannar Togga fallegt skart með því að orkera. Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Flottir kjólar Kr. 14.900.- Str. S-XXL nýtt kortatímabil Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is l n Be dVers uni lla onnaStærðir 38-58 Af öllum vörum frá VIKUTILBOÐ 25% AFSLÁTTUR Swanson – ánægðustu viðskiptavinirnir í USA árið 2013. Söluaðilar á Íslandi á www.swanson.is. 16 tegundir góðra gerla Sérvalin steinefni Má taka hvenær sem er dags Probiotic 16 Strain Betri melting!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.