Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 20
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR FJÖLSKYLDAN | 20
NÁTTÚRA Áhrif brennisteins-
mengunar frá eldgosinu í Holu-
hrauni á vatnalíf og fisk ráðast
fyrst og síðast af því hversu lengi
gosið mun standa. Aðkallandi er að
hefja undirbúning að mælingum í
ám og vötnum vegna mengunar-
innar.
Guðni Guðbergsson, sérfræðing-
ur hjá Veiðimálastofnun, segir það
aðkallandi spurningu hvort gríð-
arlegt magn brennisteinstvíildis
(SO2), sem kemur frá eldstöðinni í
Holuhrauni, kunni að hafa áhrif á
lífríki ef heldur fram sem horfir.
Guðni segir að lengd gossins sé
lykilspurningin. „Þetta er ekki
einfalt og mörg ef. Stóra efið er
hversu lengi kemur þessi eldur
til með að standa og hversu mikið
losnar og fellur á landi,“ segir
Guðni en útskýrir að líklega þurfi
nokkuð til að breytingar verði sem
ógna lífríki.
„Í Skandinavíu, þar sem meng-
unin kom frá iðjuverum, var raun-
in sú að súrt regn hlóðst upp í snjó
og útslag kom í leysingum, þ.e.
sýrustig vatns lækkaði. Það gat
verið banvænt sumum tegund-
um á þeim tíma sem leysingar
stóðu en ástand utan þess almennt
undir hættumörkum,“ segir Guðni.
Mikið hefur dregið úr þeirri meng-
un með minni notkun kola og með
auknum kröfum um notkun minna
mengandi orkugjafa. Enn finnast
áhrif súrnunar í ám og vötnum t.d.
í suðurhluta Skandinavíu og á aust-
urströnd Kanada.
Guðni telur mikilvægt að fara að
huga frekar að mælingum í ám og
vötnum ekki síst því sem viðkem-
ur skipulagningu og fjármögnun
slíkra mælinga, og fylgjast þurfi
sérstaklega með vatni í leysingum
og í snjó, en það er til marks um
hversu alvarlegum augum þessi
mengun er litin, að Veðurstofa
Íslands hefur þegar hafið mæling-
ar á sýrustigi í úrkomu á nokkrum
stöðum.
Veiðimálastofnun hefur fyrr í
vetur bent á að í eldgosum hér á
landi hefur vatnalíf skaðast af
efnum frá gosösku sem losnar með
úrkomu og fer í vötn. Talsverður
skaði varð vegna þessa í eldgosinu
í Eyjafjallajökli og svo í Gríms-
vatnagosinu síðasta. Þá eru þekkt
dæmi um dauða fiska vegna efna-
mengunar í öskufalli frá Heklu, t.d.
á húnvetnsku heiðunum bæði árið
1970 og 1980. svavar@frettabladid.is
Áhrif á lífríki ráðast
af lengd eldgossins
Nauðsynlegt er að hefja undirbúning rannsókna á ám og vötnum vegna meng-
unar frá eldgosinu í Holuhrauni. Það er lengd umbrotanna sem ræður mestu, en
nokkuð mikið þarf til að lífríkið láti á sjá vegna brennisteinsmengunar.
● Þegar brennisteinn kemur í vatn myndast brennisteinssýra sem hefur
áhrif á sýrustig þess. Sýrustig er mælt sem pH-gildi þar sem 7 er hlutlaust,
undir 7 súrt og yfir 7 basískt.
● Íslenskt vatn er yfirleitt basískt, með hátt pH gildi, og þarf því meira til
að slíkt vatn verði súrt. Vatn á jarðfræðilega yngri hluta landsins, það er
gosbeltinu, er yfirleitt basískara og þolir því meiri sýru.
● Lágt sýrustig getur valdið því að ákveðnum tegundum lífvera í ferskvatni
fækkar eða að þær hverfi. Fall í sýrustigi veldur auknum leysanleika á
áljónum (Al) en leysanleiki áls er minnstur við pH 7 en eykst í báðar áttir.
Ál getur síðan haft áhrif á og skemmt tálkn í fiskum og valdið auknum
afföllum og dauða þeirra. Gönguseiði laxa eru viðkvæm fyrir slíku þegar
þau ganga til sjávar þar sem tálkn gegna veigamiklu hlutverki við að við-
halda seltuvægi.
Brennisteinssýran er áhyggjuefnið
HEILBRIGÐISMÁL Níu af þrettán
HIV-smituðum körlum eða 69,2
prósent glíma við risvandamál af
einhverju tagi. Þar af eru sjö, eða
um 54 prósent, með alvarleg ris-
vandamál. Þetta eru niðurstöður
rannsóknar Sigríðar Maríu Krist-
insdóttur læknanema á kynheilsu
HIV-smitaðra karla. Sendur var
spurningalista til 95 HIV-smit-
aðra karlmanna og bárust svör frá
26. Ekki reyndist unnt að reikna
stigafjölda úr krossaspurningum
hjá helmingi svarenda, að því er
kemur fram í grein Sigríðar í rit-
inu Rauða borðanum sem er blað
samtakanna HIV Ísland. Sigríður
getur þess í greininni að tíðnitöl-
urnar hér séu ekki ólíkar tíðnitöl-
um sem birst hafa erlendis. Ekki
sé á hreinu hvað valdi hærri tíðni.
Bent er á að í íslenskri rann-
sókn frá 2006, þar sem karlmenn
voru valdir af handahófi úr sam-
félaginu, hafi algengi ristruflana
hjá 45 til 75 ára verið 35,5 prósent.
Hæst hafi hlutfallið verið hjá 65 til
75 ára eða rúmlega 60 prósent.
Einar Þór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri HIV Ísland, segir
almennt heilsufar HIV-smitaðra
vera að færast í betra horf. „Eldri
lyfin voru sterkari en þau sem er
verið að gefa núna og þau höfðu
ýmsar aukaverkanir í för með sér.
Ýmis heilsufarsvandamál tengd-
ust töku þeirra og náttúrlega því
að vera með veiruna í líkaman-
um. Erfðaþættir spila líka inn í.
Það horfir betur með yngra fólkið
og þá sem ekki eru búnir að vera
lengi með sjúkdóminn.“ - ibs
Rannsókn læknanema á kynheilsu HIV-smitaðra karla sýnir hærri tíðni risvandamála en hjá öðrum:
Fleiri HIV-smitaðir með risvandamál
GÓÐGERÐARMÁL Thorvaldsens-
félagið færði styrktarsjóði göngu-
deildar barna og unglinga með
sykursýki tvær milljónir króna
í tilefni 20 ára afmælis deildar-
innar.
Nýgreiningum barna og ung-
linga með sykursýki-1 fer fjölg-
andi. Á göngudeild barna starfar
þverfaglegt teymi sem veitir
fjölskyldum barna með sykur-
sýki margþætta aðstoð í formi
fræðslu, ráðgjafar og sálfélags-
legs stuðnings. - vh
Færðu félaginu 2 milljónir:
Styrktu börn
með sykursýki
HOLUHRAUN Engin merki eru um að eldgosinu ljúki á næstunni og mengun frá því er stöðug og mikil. MYND/MORTEN S. RIISHUUS
Stóra efið
er hversu lengi
kemur þessi
eldur til með
að standa og
hversu mikið
losnar og
fellur á landi.
Guðni Guðbergsson,
sérfræðingur hjá Veiðimálastofnun.
EINAR ÞÓR JÓNSSON Framkvæmda-
stjóri HIV Ísland segir betur horfa með
yngra fólkið.