Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 28
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Líffræðikennari á Íslandi spurði
hóp 16 ára unglinga við hvað líf-
fræðingar starfa. Fyrst var dauða-
þögn, engin svör. Eftir dágóða
stund nefndi einn nemandi að líf-
fræðingar gætu jú kannski kennt.
Ef þetta er staða raungreina í
huga barna og unglinga er ekki
furða að skortur sé á raunvísinda-
og tæknimenntuðu fólki á Íslandi
í dag. Starfsvettvangur raunvís-
indamenntaðs fólks hjá hátækni-
fyrirtækjum og -stofnunum, s.s. í
líftækni, nanótækni, hafrannsókn-
um, vistheimt, jöklarannsóknum
og loftslagsfræðum er nemendum
oft ókunnur.
Efling náttúrufræðimenntunar
er afar brýn. Atvinnulífið kallar
á skýrari tengingu við skólana og
óskar eftir hæfu raunvísinda- og
tæknimenntuðu fólki, stjórnmála-
menn kalla á markvissari og öfl-
ugri náttúrufræðimenntun vegna
slakari frammistöðu íslenskra
nema í alþjóðlegum samanburðar-
könnunum og skólakerfið kallar
eftir vel menntuðum raungreina-
og tæknikennurum.
Menntavísindasvið Háskóla
Íslands leggur um þessar mundir
sitt af mörkum til eflingar náttúru-
fræðimenntunar og áhuga nem-
enda á náttúruvísindum og tækni
með NaNO verk-
efninu (Náttúru-
vísindi á nýrri
öld). Verkefnið
er margþætt;
símenntunar-
námskeið fyrir
kennara um ný
vísindi; kennslu-
ráðgjöf; gagna-
b a n k i f y r i r
kennara með
viðfangsefnum
náttúruvísinda
og tækni 21. aldar; viðburðir með
náttúrufræðikennurum þar sem
þeir læra hver af öðrum og fagleg
einangrun þeirra rofnar; rann-
sóknir á náttúrufræðimenntun á
Íslandi ásamt fleiru.
Meiri samvinnu
Starfsfólk NaNO hefur nú þegar
verið í samstarfi við ýmsa aðila
í vinnu sinni. Þar má nefna Haf-
rannsóknastofnun, Matís, Sjávar-
klasann, Raunvísindastofnun
Háskólans, Lyfjafræðideild HÍ,
ORF líftækni, Orkuveitu Reykja-
víkur, Landbúnaðarháskóla
Íslands, Landgræðsluna, Sorpu,
Umhverfis- og auðlindaráðuneyt-
ið, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
og Landsvirkjun. Menntavísinda-
svið HÍ hefur einnig kallað á aðila
vinnumarkaðarins, Mennta- og
menningarmálaráðuneytið, Sam-
band íslenskra sveitarfélaga og
fleiri aðila til að halda umræðunni
um náttúrufræðimenntun gang-
andi og stilla saman strengi.
Nú er kominn tími til að vinna
meira saman, vinna að símenntun
kennara með markvissari hætti,
tengja skólana betur atvinnulífinu,
leyfa nemendum að fjalla í ríkari
mæli um nútímaviðfangsefni vís-
inda í skólum ásamt því að þjálfa
nemendur í að takast á við álita-
mál og flókin viðfangsefni. Þann-
ig búum við nemendur betur undir
framtíðina í samfélagi sem ekki er
ljóst hvað ber í skauti sér.
Þegar nemendur eru spurðir
hvað líffræðingar og annað raun-
greinafólk gerir ættu þeir að sjá
fyrir sér hlaðborð af störfum með
fjölbreytta möguleika í náttúru og
vísindum sem snúa að rannsóknum
og þróun vara, tækja og hugmynda
sem bæta líf okkar og auka sjálf-
bæra nýtingu auðlinda.
Hvert viljum við stefna? Tökum áskoruninni!
Við erum bjartsýn fjöl-
skylda og ánægð með að
fá að ala dóttur okkar
upp á Íslandi. En áhyggj-
urnar af því að þurfa að
treysta íslenskum grunn-
skólum fyrir tíu árum
af ævi hennar skyggja
á. Hvern hryllir ekki
við því að setja börn-
in sín inn á stofnun þar
sem 30% drengja og
14% stúlkna ná ekki grunn-les-
skilningi? Þegar menntamála-
ráðherra talaði um skólakerfið á
Hrafnseyri þann 17. júní og ósk-
aði eftir umræðu og tillögum að
umbótum fannst okkur hann tala
til okkar. Við ákváðum að kynna
okkur kennslu á grunnskólastigi
og komumst að því að heima-
kennsla gæti leyst mörg vanda-
mál sem ráðamenn glíma nú við.
Í heimakennslu eru foreldr-
arnir kennarar svo heim-
ili og skóli verða eitt. Árið
1746 varð það lögbundin
skylda foreldra að kenna
börnum sínum að lesa og
síðan þá hafa heimaæf-
ingar verið mikilvægasti
þáttur lestrarkennslu.
Til eru ótal aðferðir við
heimakennslu en allar
hafa þær meiri sveigjan-
leika í tíma og efnistök-
um en skólakennsla. Efnið má
nálgast út frá áhugasviði og getu
hvers barns en þar með má fara
yfir breiðara svið og kafa dýpra
ofan í fræðilegan bakgrunn eða
hagnýtingu þegar hugur stendur
til. Rannsóknir sýna að heima-
kennsla býr börnin betur undir
framhaldsmenntun og vinnu-
markað en skólarnir.
Margir halda að börn sem fá
heimakennslu skorti félagsfærni.
Fjöldi nemenda lendir þó úti á
kanti í skólakerfinu, á erfitt með
að sitja undir eintali kennara, er
útilokaður af samnemendum eða
líður af einhverjum ástæðum
ekki vel. Í heimakennslu gefst
góður tími til tómstundastarfs og
virkrar samfélagsþátttöku. Börn-
unum líður betur, eru öruggari
með sig og að sjálfsögðu er ein-
elti nánast óþekkt.
Brot á jafnræðisreglu
Það kemur flestum á óvart að
heimakennsla sé lögleg á Íslandi,
enda hefur u.þ.b. einn nemandi
fengið heimakennslu frá 2008.
Áhugi foreldra er til staðar, en
regluverkið bannar í reynd for-
eldrum að nýta þann sjálfsagða
rétt að kenna börnum sínum
sjálfir. Hins vegar mega grunn-
skólakennarar kenna heima, ef
þeir fylgja námsskránni í einu
og öllu. Þetta fyrirkomulag er
óþolandi, skýrt brot á jafnræð-
isreglu stjórnarskrárinnar og
þekkist ekki neins staðar annars
staðar. Vissulega hafa grunnskól-
arnir sínu hlutverki að gegna og
eðlilegt að hafa styrka umgjörð
um heimakennsluna, en ef kerf-
ið útrýmir skipulega allri sam-
keppni, þarf ekki að koma nein-
um á óvart að gæði kennslunnar
fari hríðversnandi.
Við höfum sex ár til að gefa
dóttur okkar færi á heima-
kennslu, en okkur langar ekki
að flytja til Danmerkur, Frakk-
lands eða annarra landa þar
sem heimakennsla er vel skipu-
lögð og árangursrík. Við ætlum
að berjast fyrir fleiri valkost-
um í menntun barna. Mennta-
málaráðherra gæti svarað eigin
ákalli um aukinn árangur grunn-
skólakerfisins og afnumið ein-
faldlega skilyrði um kennara-
menntun í gildandi reglugerð.
Námsskrána, og skilyrði um að
fylgja henni nákvæmlega eftir,
þyrfti líka að endurskoða, en þar
gætum við lært af þeim þjóð-
um sem hafa skýra umgjörð um
heimakennslu. Loks hvetjum við
alla til að kynna sér kosti heima-
kennslu, árangurinn og umsagnir
foreldra.
Er heimakennsla leyfð á Íslandi?
Það hefur ekki farið fram
hjá neinum að læknar
eru nú í kjarabaráttu og í
fyrsta sinn að nýta verk-
fallsrétt. Samt sem áður
sinna þeir neyðarþjónustu.
Slíkt er ekki sjálfgefið í
hörðum kjaradeilum. Siða-
bálkur lækna, eiður þeirra
og ábyrgðartilfinning ráða
því að á stundum sem þess-
um mæta læknar til vinnu
til að sinna bráðveikum.
Læknar sæta skerðingu á
rétti til kjarabaráttu skv.
lögum, sem aðrar stéttir telja sjálf-
sagt að ganga að vísum. Það er því
með ólíkindum að viðsemjandinn
skuli reyna að nýta sér slíka stöðu.
Höfðu dregið í hartnær ár að setj-
ast að samningaborðinu og reyna
nú að draga samningaviðræðurn-
ar á langinn.
Hjá læknum er mælirinn fullur.
Ástandið er óviðunandi. Ekki bara
vegna þess að launaþróun hefur
ekki haldið í horfinu borið saman
við aðrar háskólamenntaðar starfs-
stéttir, hvort heldur um er að ræða
grunnlaun eða þróun heildar-
tekna. Líka vegna þess að mönnun
í læknastöður hefur dregist saman
meðan annars staðar fjölgar hjá
ríkinu. Læknar fást ekki til starfa.
Endurnýjun er of hæg. Meðalaldur
hækkar of hratt. Fleiri verk á færri
hendur. Yfirfullar göngudeild-
ir og biðtími eftir þjónustu leng-
ist. Lækkandi þjónustustig. Sam -
keppnis grundvöllur ríkisrekna
heilbrigðiskerfisins hefur farið
halloka fyrir betri kjörum og
vinnuaðstæðum á öðrum vettvangi.
Á meðan Íslendingum
fjölgar ört fækkar læknum
og vinnuálagið vex í heilsu-
gæslu og á sjúkrahúsum
landsins. Frá janúar 2007
til desember 2013 fækkaði
stöðugildum lækna um tæp
tvö prósent og fer ástand-
ið versnandi. Ásókn í sér-
hæfða þjónustu Landspítal-
ans er vaxandi. Sjúkdómar
hlýða ekki fyrirmælum um
niðurskurð og jafnvægi í
ríkisreikningi. Halda þarf
í við og innleiða nýjungar
í meðferð. Til þess þarf nýtt blóð
í starfsemina. Velmenntaða sér-
fræðilækna. Viðhalda þekkingar-
brunni og bæta þjónustu. Kenna
nemum í heilbrigðisfögum og þjálfa
unga lækna. Á því byggist framtíð
kerfisins.
Ekki við sama borð
Á sama tíma og læknar hverfa frá
störfum og þeim fækkar hefur
ríkið fjölgað stöðugildum ljós-
mæðra um 25%, háskólamenntuð-
um starfsmönnum stjórnarráðsins
(FHSS) um 29%, BHM-starfsmönn-
um um 19%, verkfræðingum um
sjö prósent og hjúkrunarfræðing-
um um þrjú prósent.
Fjármálaráðuneytið hefur nýlega
lýst því yfir að kostnaður ríkis-
ins við að ganga til samninga við
Læknafélag Íslands þýði óviðráð-
anlega hækkun á útgjöldum rík-
isins, sérstaklega launakostnaði.
Þegar þróun launakostnaðar ríkis-
ins vegna ofangreindra starfsstétta
á þessu tímabili er skoðuð kemur
í ljós að heildarútgjaldahækkun
vegna kjarasamnings Læknafé-
lags Íslands var aðeins um 31%,
en hjúkrunarfræðinga 55%, ljós-
mæðra 120%, verkfræðinga tæp
60%, BHM 81% og FHSS 95%.
Læknar hafa ekki setið við sama
borð. Tekjur þeirra eða heildar-
laun hafa hækkað langminnst á
tímabilinu eða um 34%. Hjá öðrum
ofangreindum stéttum hafa heild-
arlaun hækkað á bilinu 47% til
52%. Mestu munar þó í saman-
burði við ljósmæður þar sem hækk-
un í heildarlaunum á milli 2007
til 2013 var 77% eða 46% meiri
en hjá læknum. Í þessu umhverfi
er læknum nú boðin 3% hækkun.
Þess vegna þurfa læknar að grípa
til aðgerða. Engum blöðum er um
það að fletta að læknar hafa setið
eftir. Vaxandi álagi hefur ekki
verið mætt með fjölgun stöðugilda
eins og í öðrum geirum ríkisins.
Sérfræðilæknar fást ekki til starfa
við núverandi aðstæður og almenn-
ir læknar stoppa stutt við. Læknar í
starfi á heilbrigðisstofnunum ríkis-
ins krefjast umtalsverðrar og sann-
gjarnrar leiðréttingar á launalið-
um. Fjölga þarf starfandi læknum,
bæta grunnlaun þeirra og starfsað-
stæður.
Skertur verkfallsréttur –
áhrif á launaþróun lækna
MENNTUN
Guðni Þór
Þrándarson
➜ Margir halda að börn
sem fá heimakennslu skorti
félagsfærni. Fjöldi nemenda
lendir þó úti á kanti í skóla-
kerfi nu, á erfi tt með að sitja
undir eintali kennara, er
útilokaður af samnemendum
eða líður af einhverjum
ástæðum ekki vel.
➜ Efl ing náttúrufræði-
menntunar er afar brýn.
Atvinnulífi ð kallar á skýari
tengingu við skólana og ósk-
ar eftir hæfu raunvísinda- og
tæknimenntuðu fólki.
➜ Samkeppnisgrundvöllur
ríkisrekna heilbrigðiskerfi s-
ins hefur farið halloka fyrir
betri kjörum og vinnuað-
stæðum á öðrum vettvangi.
MENNTUN
Birgir U.
Ásgeirsson
framhaldsskóla-
kennari
Ester Ýr Jóns-
dóttir
framhaldsskóla-
kennari
Svava Péturs-
dóttir
grunnskólakennari
KJARAMÁL
Reynir
Arngrímsson
varaformaður
Læknafélags
Reykjavíkur
Save the Children á Íslandi