Fréttablaðið - 20.11.2014, Blaðsíða 62
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 50
„Dagskráin verður í stíl við yfir-
skriftina á tónleikaröðinni Á ljúf-
um nótum. Okkur finnst svo hentugt
að bjóða upp á hugljúft hádegi með
innilegri tónlist á föstudegi,“ segir
Eygló Rúnarsdóttir, félagi í Íslenska
sönglistahópnum um hádegistón-
leikana í Laugarneskirkju á morg-
un.
„Allt eru þetta trúarleg verk
við biblíutexta, eða úr öðrum
ritum, afar falleg lög og öll sung-
in án undir leiks,“ útskýrir Eygló.
Hún segir tónlistina spanna þrjár
aldir, því elsta tónskáldið, Antonio
Lotti, sé fætt 1667 og það yngsta
sé tuttugustu aldar tónskáldið Jón
Ásgeirsson. „Við ákváðum að taka
Faðirvorið hans Jóns sem lokalag á
tónleikunum.“
Íslenski sönglistahópurinn hefur
verið til frá haustinu 2010 er hann
var stofnaður í tengslum við Dag
íslenskrar tungu. Hann er skipaður
menntuðu söngfólki. „Hin í hópn-
um eru öll meira lærð en ég, maður
verður að velja sér gott fólk til að
vinna með,“ segir Eygló glaðlega.
Tónleikarnir hefjast klukkan
12 og taka um hálfa klukkustund.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur og
ekki er posi á staðnum.
gun@frettabladid.is
Faðirvor Jóns Ásgeirs-
sonar sem lokalag
Íslenski sönglistahópurinn fl ytur trúarlega tónlist án undirleiks í Laugarnes-
kirkju í hádeginu á morgun og nefnir tónleikana Libera me.
ÍSLENSKI SÖNGLISTAHÓPURINN „Hin í hópnum eru öll meira lærð en ég, maður verður að velja sér gott fólk til að vinna
með,“ segir Eygló, sem er önnur frá vinstri á myndinni.
„Gullleit hefur verið við lýði á Íslandi allt frá aldamót-
unum 1900 þegar framfarahugur Íslendinga var sem
mestur. Ég ætla aðeins að fjalla um frumkvöðlana,“
byrjar Hjalti Franzson jarðfræðingur þegar forvitn-
ast er um fyrirlestur hans í Hönnunarsafni Íslands á
Garðatorgi í kvöld klukkan 20. „Svo ætla ég að segja
frá hvernig gull verður til og lýsa því hvernig leitar-
svæðin voru valin.“
Hjalti starfar hjá Íslenskum orkurannsóknum og
hefur leitað gulls frá 1989. „Aðferðafræðin verður
sífellt hnitmiðaðri,“ segir hann og kveðst ætla að
lýsa niðurstöðum leitarinnar. „Svo ætla ég að tæpa á
hvernig vinnsluferlið er þegar búið er að taka ákvörð-
un um gullvinnslu.“ Sér hann fyrir sér að það gerist
innan tíðar? „Við erum ekki búin að finna námu, en
getum sýnt fram á að gull verður til í íslenska jarð-
hitakerfinu við sérstakar aðstæður og höfum fundið
svæði sem við teljum áhugavert að halda áfram rann-
sóknum á.“
Hjalti segir Þormóðsdal í Mosfellssveit stað númer
eitt hjá gullleitarmönnum nútímans, rétt eins og á
dögum Einars Ben. „En við erum með fleiri svæði
sem hafa sýnt góð merki,“ tekur hann fram. Hann
segir litlar upplýsingar til um tilraunavinnslu gulls
á Íslandi til þessa og engar um hluti unna úr íslensku
gulli. gun@frettabladid.is
Allt um gull í íslenskri náttúru
Dr. Hjalti Franzson jarðfræðingur segir sögu gullleitar og lýsir möguleikum á
gullvinnslu á Íslandi í fyrirlestri í Hönnunarsafni Íslands í kvöld.
GULLLEITARMAÐURINN „Við erum ekki búin að finna námu
en getum sýnt fram á að gull verður til í íslenska jarðhitakerf-
inu við sérstakar aðstæður,“ segir jarðfræðingurinn Hjalti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sýningunni Orðaævintýri í Nor-
ræna húsinu lýkur á laugardaginn
með sköpunarsmiðju fyrir alla
fjölskylduna. Davíð Stefánsson,
einn sýningarstjóra Orðaævintýr-
is, stýrir smiðjunni. Smiðjan hefst
klukkan 14 og er öllum opin.
Hugmyndin er einföld: Fjöl-
skyldur mæta til leiks, fá inn-
blástur og innspýtingu af hálfu
umsjónar manns og svo freistar
hver fjölskylda þess að skapa eigin
sögu í sameiningu og með hand-
leiðslu. Bíómynd? Skáldsaga? Smá-
saga? Örsaga? Ljóðsaga? Mynda-
saga? Það skiptir ekki máli hvert
formið er – bara að mæta með
opinn huga og sjá hvað gerist.
Aldurinn skiptir heldur ekki
máli – bara frelsi og fúsleiki til að
prófa að skapa með börnum sínum
og foreldrum, að því er fram
kemur í kynningu.
Orðaævintýrið var opnað þann
4. október síðastliðinn og hefur
verið ein vinsælasta sýning Nor-
ræna hússins síðustu ár.
- fsb
Orðaævintýri lýkur með sköpunarsmiðju
Davíð Stefánsson skáld stýrir sköpunarsmiðju fyrir alla fj ölskylduna í Norræna húsinu á laugardag.
STÝRIR SKÖPUN
Davíð Stefánsson skáld
mun leiða sköpunar-
smiðju í Norræna hús-
inu á laugardag.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kristín Tómasdótt-
ir heldur fyrirlest-
ur í Ljósmynda-
safni Reykjavíkur
á morgun klukkan
12. Í fyrirlestri
sínum mun Kristín
fjalla um sýn sína
á ljósmyndasýninguna Stelpu-
menning eftir Lauren Greenfield
sem stendur yfir í safninu. Kristín
mun tengja efni sýningarinnar við
sína upplifun af stelpumenningu á
Íslandi. - fsb
Stelpumenn-
ing í Ljós-
myndasafni
iPhone
viðgerðir