Fréttablaðið - 20.11.2014, Qupperneq 76
20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 64
www.netto.is
| Mjódd · Salavegur · Hverafold · Akureyri · Höfn ·
Grindavík · Reykjanesbær · Borgarnes · Egilsstaðir · Selfoss · Grandi | Kræsingar & kostakjör
SPARIKLÆDDIR
SPJÁTRUNGAR
TÖFFARAR Eigendur GK
Reykjavík og SUIT, þau Guð-
mundur Hallgrímsson og
Ása Ninna Pétursdóttir.
SKEMMTU SÉR VEL Þeir Jakob H. Magnússon, Bjarni Snæð-
ingur og Hreinn Breiðfjörð voru hæstánægðir með sýninguna.
KRÓKÓDÍLAMAÐURINN
Aron Bergmann Magn-
ússon stillti sér upp með
þessum forláta krókódíl.
Árleg herrafatasýning verslunarinnar Kormáks
og Skjaldar var haldin með pompi og prakt í
Þjóðleikhúskjallaranum á þriðjudagskvöld. Á sýning-
unni var meðal annars kynnt ný herrafatalína Kor-
máks og Skjaldar í samstarfi við Gunnar Hilmars-
son og starfsmenn verslunarinnar. Boðið var upp
á skemmtiatriði og uppistand, en sýningin markar
upphaf jólaundirbúnings hjá mörgum og er talin
einn af hápunktum skemmtanalífs Reykjavíkur.
STÓRGLÆSILEGIR
Herramennirnir stilltu
sér upp í lok sýningar.
GOLFARI Þessi piltur
var klæddur í glæsi-
legan golffatnað.
VÍGALEGUR
Leikarinn Vignir
Rafn Valþórs-
son leikari
sýndi sínar
bestu hliðar.
EIGANDINN SJÁLFUR Kormákur
Geirharðsson lét sitt ekki eftir liggja.
SÆT SAMAN Parið
Jóhann Wium og
Ásdís Rán.
„Ég er eiginlega að bjóða heim
í vinnustofuna til að geta leyft
fólki að upplifa þessa stemningu
og kveikja á öllum skynfærum,
þetta er gjörningur sem fólk á að
upplifa á margbreytilegan hátt,“
segir myndlistarmaðurinn Ing-
var Björn Þorsteinsson sem mun
framkvæma gjörninginn United
Transformation á sviði Gamla bíós
27. nóvember.
Ingvar, sem er stundum kenndur
við popplist, mun notast við fjóra
mennska pensla sem hann tengir
við tákn úr verkinu The Largest
Artwork, sem kallað er stærsta
samfélagsmiðlalistaverk í heimi.
„Hugmyndin var að sameina heim-
inn í að gera eitthvað skemmtilegt
en í kringum 78.000 manns frá 138
löndum tóku þátt. Þegar þú fórst
inn á verkið las tölvan á hvaða stað
þú værir og hversu marga vini þú
ættir á Facebook og þá myndaðist
ákveðið tákn.
Í United Transformation mun
ég sameina þessa tvo heima og fá
fjórar stelpur til að mála líkama
sína. Þá stýri ég þeim á milli tákn-
anna sem ég mála,“ segir Ingvar
en gjörningurinn verður tvinn-
aður við tónlistarflutning hljóm-
sveitarinnar Vakar og rapparans
Blaz Roca. „Ég valdi sitthvora tón-
listarstefnuna til að skapa ákveðna
stemningu,“ segir Ingvar sem
lofar góðri skemmtun. - þij
Tónlist og mennskir
penslar í gjörningi
Ingvar Björn Þorsteinsson fl ytur í næstu viku gjörn-
ing upp úr „stærsta samfélagsmiðlalistaverki heims“.
SAMRUNI TVEGGJA HEIMA Vök, Ingvar og Blaz Roca ásamt tveimur mennskum
penslum. MYND/BADDI
„Við erum báðar haldnar þráhyggju
um hugmyndina um rokkstjörnur,“
segir Halla Ólafsdóttir dansari, sem
ásamt Amöndu Apetrea sýnir verk-
ið DEAD Beauty and the Beast á
Reykjavík Dance Festival.
„Verkið DEAD Beauty and the
Beast er sjálfstætt framhald af verk-
inu okkar Beauty and the Beast, sem
hefur farið sigurför um heiminn.
Verkið er enn í vinnslu og við munum
deila hluta af verkinu með áhorfend-
um,“ segir Halla. Fyrra verkið var
rokktónleikar, dulbúnir sem dans-
sýning, og því fannst þeim liggja
vel við að næsta verk yrði plata og
í gegnum gerð plötunnar semja þær
dansverk. Textana sem þær skrifa
segir Halla vera blöndu af ljóði
(poem) og klámi (porn) sem þær
kalla „poernm“. „Við erum mikið að
vinna með kynlíf, kynhegðun, mun-
inn á fantasíu og veruleika og alls
kyns klisjur. Það vonandi leiðir til
þess að við fáum aðrar hugmyndir en
þessar fyrirframákveðnu. Við erum
að leika okkur með klisjur og þá
hluti sem okkur finnast skemmtileg-
ir,“ segir Halla. Síðustu tvö ár hefur
Halla unnið með hljómsveitinni The
Knife, sem kom fram á sínum síð-
ustu tónleikum á Iceland Airwaves.
„Það var ótrúlegur lúxus að vera með
þeim svona lengi, þar sem verkefnin
í dansinum eru yfirleitt tímabundin.
Þarna gafst okkur tækifæri til þess
að búa til verk í lotum og það að geta
farið frá hugmyndinni og komið að
henni aftur gefur henni eigið líf,“
segir Halla. - asi
Dans í gegnum plötu
Halla Ólafsdóttir sýnir verkið DEAD Beauty and the
Beast á Reykjavík Dancefestival í næstu viku.
ÚR DEAD
BEAUTY
AND THE
BEAST
Halla, í
pelsinum,
ásamt
Amöndu
Apetrea.
Í United Transform-
ation mun ég sameina
þessa tvo heima og
fá fjórar stelpur til að
mála líkama sína.