Fréttablaðið - 20.11.2014, Síða 80
HAUKAR - SNÆFELL 77-80 (69-69)
Stig Hauka: LeLe Hardy 39 (13 frák., 7 stoðs., 6
stolnir), Sólrún Gísladóttir 12, Guðrún Ámunda-
dóttir 6, Sylvía Rún Hálfdanardóttir 6, AuðurÓlafs-
dóttir 5, María Lind Sigurðardóttir 4, Dagbjört
Samúelsdóttir 3, Þóra Kristín Jónsdóttir 2.
Stig Snæfells: Kristen Denise McCarthy
29 (16 frák., 8 stolnir), Hildur Sigurðardóttir 18,
Gunnhildur Gunnarsdóttir 10 (13 frák.), Berglind
Gunnarsdóttir 9, María Björnsdóttir 8, Helga
Hjördís Björgvinsdóttir 3, Rebekka Rán Karlsdóttir
2, Hugrún Eva Valdimarsdóttir 1.
BREIÐABLIK - KEFLAVÍK 68-76
Stigahæstar: Arielle Wideman 24, Unnur Lára
Ásgeirsdóttir 12, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 9,
Berglind Karen Ingvarsdóttir 9 - Carmen Tyson-
Thomas 22. Sara Rún Hinriksdóttir 13, Bríet Sif
Hinriksdóttir 10, Lovísa Falsdóttir 8, Marín Laufey
Davíðsdóttir 8, Ingunn Embla Kristínardóttir 7.
HAMAR - GRINDAVÍK 49-73
Stigahæstar: Þórunn Bjarnadóttir 18, Salbjörg
Ragna Sævarsdóttir 10, Heiða B. Valdimarsdóttir
9 - Rachel Tecca 20, Pálína Gunnlaugsdóttir
17, María Ben Erlingsdóttir 10, Guðlaug Björt
Júlíusdóttir 7, Petrúnella Skúladóttir 7.
VALUR-KR 80-58
DOMINOS-DEILD KVENNA Í KÖRFUBOLTA
KÖRFUBOLTI Grindvíkingar hafa
komist í fimm af síðustu sex
úrslitaleikjum í deild og bikar en
byrjun þessa tímabils í Dominos-
deild karla hefur reynt á skap
manna í Grindavíkinni. Fjögur
töp í fyrstu sex leikjunum er eitt-
hvað sem menn eiga ekki að venj-
ast í Grindavík eftir sigursæl ár
á undan.
Það eru þó þrjú vandræðaleg
töp Grindavíkurliðsins á útivelli
sem stinga mest í augu en liðið
hefur tapað þremur fyrstu úti-
leikjum tímabilsins með 30 stig-
um að meðal tali. Varnarleik-
ur Grindavíkurliðsins í þessum
leikjum hefur örugglega verið
mikil pína fyrir þjálfarann Sverri
Þór Sverrisson sem lagði líf og
sál sína í varnarleikinn sem leik-
maður. Grindvíkingar hafa fengið
á sig 106 stig að meðaltali í þessum
þremur útileikjum og skotnýting
mótherjanna jókst í hverjum leik.
Kanaleysi og meiðsli lykilmanna
afsaka kannski töpin en ekki skell-
ina. Nú er svo komið að Grindavík-
urliðið þarf að fara að vinna leiki
ætli liðið sér að keppa um fjögur
efstu sætin inn í úrslitakeppnina.
Grindvíkingar eiga á hættu að
missa ÍR-inga upp fyrir sig og að
detta niður í 10. sæti deildarinnar
takist þeim ekki að enda útivallar-
matröð sína í Seljaskólanum í
kvöld. ÍR-ingar hafa aðeins unnið
einn af sex leikjum sínum en stóðu
vel í heimamönnum í Keflavík í
síðasta leik þar sem Bandaríkja-
maðurinn Trey Hampton lék sinn
fyrsta leik.
Grindvíkingar frumsýndu líka
nýjan Kana í síðustu umferð en
Rodney Alexander varð að sætta
sig við tap á heimavelli á móti
Njarðvík í fyrsta leik.
Það fara þrír aðrir leikir fram í
kvöld. Njarðvík tekur á móti Snæ-
felli í Ljónagryfjunni, Tindastóls-
maðurinn Darrel Lewis fær sína
gömlu liðsfélaga úr Keflavík í
heimsókn á Krókinn og Stjörnu-
menn taka á móti Fjölni í Garða-
bænunum. Tindastólsliðið hefur
unnið alla leiki nema einn þegar
Stólarnir töpuðu í framlengingu á
móti toppliði KR. - óój
Endar útivallarmartröðin í kvöld?
Grindvíkingar heimsækja ÍR-inga í Seljaskólann með þrjá stóra skelli á bakinu.
LIGGJA Í VALNUM Ómar Sævarsson, fyrirliði Grindavíkur, í leik á móti Haukum sem
er einn af útileikjunum sem Grindavíkurliðið hefur tapað stórt. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ÚTILEIKIR GRINDAVÍKUR
Í DEILDINNI Í VETUR:
20 STIGA TAP FYRIR HAUKUM 77-97
- Haukar mest 23 stigum yfir í leiknum.
25 STIGA TAP FYRIR STJÖRNUNNI 78-103
- Stjarnan mest 28 stigum yfir í leiknum.
45 STIGA TAP FYRIR KR 73-118
- KR mest 53 stigum yfir í leiknum.
HANDBOLTI Stórleikur kvöldsins í Olís-deild karla er heimsókn FH-inga til Hauka í
Schenker-höllina á Ásvöllum. Leikur Hafnarfjarðarliðanna hefst klukkan 20.00. Það er
jafnan mikil hátíð í Hafnarfirði í kringum leiki liðanna enda erfitt að finna meiri ríg
milli félaga á Íslandi.
Árið 2014 hefur þegar boðið upp á metframboð af viðureignum Hauka og FH
sem mætast í kvöld í sínum níunda mótsleik á árinu. Auk deildarleikjanna og
leiks í árlegu Hafnarfjarðarmóti fór undanúrslitaviðureign liðanna í úrslitakeppn-
inni í oddaleik og liðin mættust einnig í undanúrslitum bikarsins.
Haukar steinlágu í síðasta leik á Akureyri, en FH-ingarnir eru fjórum stigum og
þremur sætum á undan nágrönnum sínum í töflunni. Hvort það hjálpar FH-ingum
eitthvað í kvöld verður að koma í ljós en þeir hvítu og svörtu eiga margar slæmar
minningar frá Haukaleikjum ársins.
Haukaliðið er nefnilega með mikla yfirburði í leikjum liðanna á árinu þar sem það
hefur unnið sex af átta leikjum, þar af fjóra síðustu leikina eftir að FH komst í 2-0 í
undanúrslitaeinvígi liðanna í úrslitakeppninni síðasta vor. Haukarnir unnu þá þrjá leiki
í röð og sendu FH-liðið í sumarfrí. - óój
Hafnarfj arðarliðin mætast í níunda sinn á árinu 2014
ERFITT Magnús Óli Magnússon
og félagar í FH hafa bara unnið
tvo af átta leikjum ársins á móti
Haukum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT 20. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR
LANDSLIÐSFERILL KOLBEINS SIGÞÓRS.
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22
2010LEIKIR 2011 2012 2013 2014
84 90 18 15 90 90 78 84 45 58 90 60 89 90 90 90 90 90 90 45 75 90 90 90 90 90 90
SPILAÐAR MÍNÚTUR
37. m 89. m 86. m 4. m 34. m 27. m 65. m 56. m 47. m 46. m60. m 54. m12. m 77. m
90. og
29. m
176 mín
án marks
304 mín
án marks
244 mín
án marks
283 mín
án marks
FÓTBOLTI Kolbeinn Sigþórsson
hefur ekki skorað í 283 mínútur
með íslenska landsliðinu og eftir
ótrúlegt markaskor hans í lands-
liðsbúningnum undanfarin ár er
þetta eitthvað sem stuðnings-
menn íslenska landsliðsins eiga
ekki að venjast.
Íslenska þjóðin er vön góðu
Íslenska þjóðin hefur heldur betur
vanist góðu frá aðalmarkaskor-
ara sínum undanfarin ár sem var,
fyrir þessa markaþurrð, búinn að
skora í 15 af 24 landsleikjum sínum.
Heimsklassatölfræði Kolbeins
hefur kallað á meiri kröfur og um
leið áhyggjur yfir markaleysinu nú.
Kolbeinn hefur aðeins einu sinni
þurft að bíða lengur eftir marki
með landsliðinu en hann skoraði
ekki í 304 mínútur eftir að hann
kom til baka eftir axlaraðgerð í árs-
byrjun 2013.
Umrótið í kringum Kolbein
hjá félagsliði hans Ajax
er ekki að hjálpa til og
margir bíða eftir því að
hann komist að hjá liði
sem spilar meira upp á
styrkleika hans.
Íslenska landslið-
ið náði ekki að halda
áfram sigurgöngu
sinni í Tékklandi um
helgina og fyrsta
tapið er staðreynd.
Íslenska liðið fékk
vissulega færi til
að ná í stig en Kol-
beinn var meira í því
að hjálpa til að búa til færi fyrir
félagana en komast í færin sjálf-
ur.
Sextánda markið gegn Tyrkjum
Kolbeinn skoraði sitt sextánda
landsliðsmark í sigrinum á Tyrkj-
um í fyrsta leik undankeppninnar
en hann var þá að spila sinn 24.
landsleik.
Kolbein
vantar
aðeins eitt
mark til
að jafna
Ríkharð
Jónsson,
annan
marka-
hæsta leikmann íslenska lands-
liðsins frá upphafi. Hér fyrir
neðan má sjá yfirlit yfir lands-
liðsferil Kolbeins og magnað
markaskor hans í landsliðsbún-
ingnum.
Á undan Eiði í leikjum og árum
Eiður Smári á metið en hann
hefur átta marka forskot á Kol-
bein, Eiður Smári jafnaði
met Ríkharðs í sínum
41. leik (28 ára
gamall) og bætti
það sjö leikjum
síðar (29 ára
gamall).
Kolbeinn
e r e n n
bara 24
ára gam-
all og ekki
b ú i n n a ð
spila nema 27
landsleiki. Metið hans Eiðs Smára
er því enn í stórhættu.
Kolbeinn þurfti að bíða eftir
landsliðsmarki í 304 mínútur fyrri
hluta árs 2013 en þegar marka-
stíflan brast skoraði hann í fimm
landsleikjum í röð og setti nýtt
met. Sú markaveisla endaði ekki
fyrr en hann meiddist illa á ökkla í
fyrri hálfleik í fyrri umspilsleikn-
um við Króata.
Brestur stíflan á næsta ári
Það er lífsnauðsynlegt fyrir
íslenska landsliðið að koma Kol-
beini aftur í gang á næsta ári
þegar seinni hluti undankeppn-
innar fer fram og það mun reyna
á íslenska landsliðið við að tryggja
sér sæti á stórmóti í fyrsta sinn.
Bresti stíflan með sama hætti og
síðast ætti íslenska landsliðið hins
vegar að vera í góðum málum á
árinu 2015. ooj@frettabladid.is
Er Kolbeinn nokkuð kólnaður?
Kolbeinn Sigþórsson náði ekki að skora í síðustu þremur leikjum íslenska fótboltalandsliðsins og er þetta í fyrsta sinn á landsliðsferl-
inum sem hann hefur spilað þrjá heila landsleiki í röð án þess að skora. Búinn að bíða í 283 mínútur eft ir að ná Ríkharði Jónssyni.
Þjálfari óskast
Stjórn Frjálsíþróttadeildar Fjölnis,Grafarvogi.
Áhugasamir hringið í síma 697-8898 eða
sendið póst á fjolamaria@hotmail.com
Frjálsíþróttadeild Fjölnis í Grafarvogi óskar eftir þjálfara.
Um er að ræða þjálfun barna og unglinga og þátttöku
í að efla starfsemi deildarinnar í samstarfi við stjórn og
yfirþjálfara. Einstaklingar með reynslu og/eða
íþróttanám að baki eru hvattir til að hafa samband.
Boðhlaupshópur Frjálsíþróttasambands Íslands verður með
spretthlaupskeppni í Kringlunni á sunnudaginn kemur en
þetta er sprettkeppni og fjáröflunarviðburður á Blómatorginu.
Stóra markmið Boðhlaupshópsins er að komast á alþjóðleg
stórmót í boðhlaupum í fyrsta skipti, en horft er meðal
annars til Evrópumeistaramótsins í Amsterdam árið 2016.
Ísland var ekki langt frá því að ná inn sveit á EM í Zürich.
Frjálsíþróttasamband Íslands hefur samþykkt að stuðla
að aukinni þjálfun boðhlaupssveitanna en sprettkeppnin
er haldin til að kynna þetta spennandi verkefni og um
leið að gefa fólki kost á að styrkja hópinn.
Frá klukkan 14.00 til 15.00 verður 60 metra hlaup karla, kvenna
og frægra einstaklinga, en meðal þeirra sem hafa boðað þátttöku
eru Steindi, Erpur, Dýri Kristjánsson, Gillz, Ívar Guðmundsson,
alþingismaðurinn Haraldur Einarsson, Evert Víglunds, Ragna Ingólfs-
dóttir, Vala Grand, Margrét Edda Gnarr og Ilmur Kristjánsdóttir.
Kringluspretturinn 2014
SIGUR Á GÖMLU FÉLÖGUNUM Gunn-
hildur Gunnarsdóttir var með tvennu
gegn sínu gamla félagi í sigri í framleng-
ingu á Ásvöllum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI