Fréttablaðið - 09.12.2014, Síða 20
9. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 20TÍMAMÓT
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar móður
okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
HREFNU BJARNADÓTTUR
Skúlagötu 20,
sem lést á Landspítalanum í Fossvogi
4. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B-7 fyrir góða
umönnun.
Þorgerður Ellen Guðmundsdóttir
Guðmunda Björg Jóhannsdóttir Rúnar Guðjónsson
Jóhanna Lára Jóhannsdóttir Halldór Ingi Karlsson
Kolbrún Jóhannsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn
og ástríkur faðir okkar,
HILMIR HÖGNASON
rafvirkjameistari og rithöfundur,
lést að Hraunbúðum, dvalarheimili
aldraðra í Vestmannaeyjum, fimmtudaginn
5. desember. Útför fer fram föstudaginn
12. desember, klukkan eitt.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Alda Björnsdóttir
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður og afa,
ÓLAFS Á. JÓHANNESSONAR
blikksmíðameistara,
Jökulgrunni 10.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki
Líknardeildar LSH í Kópavogi fyrir frábæra
umönnun.
Halldóra Ólafsdóttir
Helga Ólafsdóttir Magnús Jónsson
Ólafur Jón Magnússon Kristín Rut Ragnarsdóttir
Kristín Sigrún Magnúsdóttir
Hjalti Jóel Magnússon
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
áður til heimilis að Einilundi 1, Garðabæ,
lést á Landspítalanum Fossvogi að morgni
sunnudagsins 30. nóvember. Útför hennar
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. desember kl. 15.00.
Ólafur Tryggvi Magnússon
Magnús Karl Magnússon Ellý Katrín Guðmundsdóttir
Atli Freyr Magnússon Steinunn Gestsdóttir
Ásdís Magnúsdóttir Viðar Halldórsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
stjúpmóðir og stjúpamma,
FLÓRA SIGRÍÐUR
EBENEZERSDÓTTIR
lést þriðjudaginn 2. desember á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Ísafirði. Útförin fer fram frá
Ísafjarðarkirkju laugardaginn 13. desember
klukkan 14.00.
Halldór Sigurgeirsson
Guðbjörg Halldórsdóttir Þórbergur Egilsson
Hugrún Þórbergsdóttir
Ólafur Jóhann Þórbergsson
Ásdís Helga Þórbergsdóttir
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
PÁLÍNA MAGNÚSDÓTTIR
frá Reykjum í Fnjóskadal,
lést á dvalarheimilinu Hlíð fimmtudaginn
4. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Hafsteinsson Karítas Erla Jóhannesdóttir
Sólrún Hafsteinsdóttir Sigurður Jónsson
Lára Hafsteinsdóttir Fjölnir Sigurjónsson
Gunnar M. Guðmundsson Erna H. Gunnarsdóttir
Þóra K. Guðmundsdóttir Magnús Hallur Sævarsson
ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
ANNA SIGRÍÐUR HAUKSDÓTTIR
læknaritari, Glósölum 7, Kópavogi,
lést á LSH við Hringbraut föstudaginn
5. desember. Útför hennar verður gerð frá
Lindakirkju þriðjudaginn 16. desember
kl. 13.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á að styrkja líknarfélög.
Ingvar Níelsson
Borghildur Ingvarsdóttir Sigurpáll Jónsson
Anna Kristín, Sigurbjörg, Ingunn og Margrét Sigurpálsdætur
og fjölskyldur þeirra.
MERKISATBURÐIR
1644 Kristín Svíadrottning verður lögráða.
1749 Skúli Magnússon er fyrstur Íslendinga skipaður landfógeti.
1917 Fyrri heimsstyrjöldin: Bretar ná Jerúsalem af Tyrkjaveldi.
1926 Á Stokkseyri verður mikill eldsvoði og brenna sjö hús, en
ekkert manntjón verður.
1945 Íþróttabandalag Siglufjarðar stofnað.
1946 Seinni Nürnberg-réttarhöldin hefjast.
1956 Stærsta skip sem Íslendingar höfðu eignast, Hamrafell,
kemur til landsins. Skipið var 167 m á lengd og gat hvergi lagst
að bryggju á Íslandi nema í Hafnarfirði stærðar sinnar vegna.
1982 Ásmundur Sveinsson myndhöggvari í Reykjavík deyr, 89
ára.
Á þessum degi árið 1960 fór fyrsti þáttur
af bresku sápuóperunni Coronation
Street, sem oft er nefnd Corrie, í loftið en
engan gat órað fyrir velgengni þáttarins.
Handritshöfundurinn Tony Warren hjá
framleiðslufyrirtækinu Granada Tele-
vision í Manchester er maðurinn á bak
við þættina. Hann bar hugmynd sína
undir stofnanda Granada Television,
Sidney Bernstein, en sá hafnaði þátt-
unum. Framleiðandinn Harry Elton fékk
hann hins vegar til að gefa sápuóperunni
tækifæri og voru upprunalega þrettán
þætti framleiddir. Sex mánuðum eftir
að fyrsti þátturinn fór í loftið var Corrie
orðinn vinsælasti þátturinn í bresku sjón-
varpi.
Síðan þá hafa verið framleiddir
rúmlega átta þúsund þættir og árið 2010
státaði Corrie af þeim heiðri að vera sú
sápuópera sem hefur verið lengst í loftinu
í heiminum. Þættirnir voru frumsýndir á
ITV og eru enn sýndir á stöðinni og eru
taldir ein helsta orsök þess að sjónvarps-
stöðin heldur enn velli.
Coronation Street fjallar um íbúa
götunnar Coronation Street sem er í
uppspunna bænum Weatherfield sem
byggður er á Salford á Norðvestur-Eng-
landi. - lkg
ÞETTA GERÐIST: 9. DESEMBER ÁRIÐ 1960
Fyrsti þáttur Coronation Street fer í loft ið
„Ég held upp á daginn þannig að ég er búinn að ákveða
að gera nákvæmlega ekki neitt,“ segir leikarinn og rit-
höfundurinn Ævar Þór Benediktsson. Hann fagnar þrí-
tugsafmæli sínu í dag en síðustu vikur og mánuðir hafa
verið annasöm hjá afmælisbarninu sem gaf nýverið út
bókina Þín eigin þjóðsaga.
„Ég hef verið að lesa upp úr bókinni og árita nánast
alla daga síðan um miðjan október. Dagurinn í dag er
sá eini sem ég hélt algjörlega lausum. Það var meðvit-
uð ákvörðun. Ég fer örugglega og fæ mér gott að borða
með kærustu minni og systkinum en annars ætla ég
bara að sofa út og hafa það næs. Þetta er eini dagurinn
síðustu vikurnar sem ég hef leyft mér það og örugg-
lega eini dagurinn alveg fram að jólum sem það gerist,“
segir Ævar sem ætlar síðan að halda afmælisveislu
fyrir vini og vandamenn um helgina. Aldurinn leggst
vel í hann.
„Mér finnst ég búinn að vera 27 ára í þrjú ár. Þessar
tölur, 28 og 29, hafa eiginlega týnst. Ég held að þetta
sé miklu meira sjokk fyrir foreldra mína en nokkurn
tímann mig. Ég er elstur af okkur systkinunum og ég
held að þetta sé áfangi fyrir mig en áfall fyrir foreldra
mína. En þau eru ung í anda þannig að ég hef litlar
áhyggjur af þeim,“ segir hann hlæjandi. Þetta ár hefur
verið gjöfult fyrir Ævar og skilur hann því við þrítugs-
aldurinn sáttur.
„Það er búið að ganga svakalega vel og Þín eigin
þjóðsaga er fyrsta bókin hjá Forlaginu til að komast í
þriðju prentun. Ég er einnig búinn að heyra sögur af
foreldrum sem keyra um allan bæ til að reyna að finna
eintök því krakkarnir heimta bókina. Það er frábært
að krakkar séu að lesa og tengir inn í lestrarátak sem
ég byrjaði með í haust og stendur til 1. febrúar,“ segir
Ævar. Margir kannast einnig við hann úr sjónvarpinu
sem Ævar vísindamann en ný þáttaröð hefst á RÚV
eftir áramót. Forskot verður tekið á sæluna þann 27.
desember með sérstökum áramótaþætti.
„Þá sprengjum við til dæmis flugeld inni til að sýna
hversu hættulegt það er og hversu mikilvægt er að
fylgja leiðbeiningum á flugeldum. Að sjálfsögðu var
þetta allt saman gert í samstarfi við slökkvilið og
björgunarsveit.“
Hann hlakkar til að takast á við nýtt afmælisár
„Ég er bara rétt að byrja og held ótrauður áfram. Það
stefnir allt í að næsta ár einkennist af mikilli sköpun og
rosalega miklu af skrifum. Ég ætla að leikstýra í fyrsta
skipti. Ég leikstýri nemendum í Fjölbrautaskólanum í
Garðabæ eftir áramót í söngleik sem gerður er upp úr
Bítlalögunum. Maður á alltaf að reyna að ögra sér á ein-
hvern hátt og þetta er stærsta ögrunin á næsta ári. Svo
verð ég vonandi meira í sjónvarpi og skrifa allavega
tvær bækur eins og ég gerði á þessu ári. Maður á ekki að
eyða tíma í eitthvað sem manni þykir leiðinlegt. Tíminn
líður alltaf hraðar og hraðar og ef maður getur á maður
að finna eitthvað að gera sem kveikir í manni. Ég held að
það geri mann að betri listamanni og betri manneskju.
Þannig að ég ætla að skapa sem mest og líða vel og láta
öðrum líða vel.“ liljakatrin@frettabladid.is
Áfangi fyrir Ævar en
áfall fyrir foreldrana
Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson fagnar þrítugsafmæli sínu í dag.
Hann ætlar að nýta daginn í að gera ekki neitt eft ir annasamar vikur.
ÆVAR BLÓMSTRAR Árið hefur verið listamanninum gjöfult og tekur
hann því nýja fagnandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Maður á ekki að eyða tíma í
eitthvað sem manni þykir leiðin-
legt. Tíminn líður alltaf hraðar
og hraðar og ef maður getur á
maður að finna eitthvað að gera
sem kveikir í manni.