Fréttablaðið - 09.12.2014, Side 25

Fréttablaðið - 09.12.2014, Side 25
 | FÓLK | 5 SÖLUSTAÐIR OG UPPLÝSINGAR Melissa Dream-töflurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. Svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu samfélagi sem veldur því að svefntruflanir eru gríðarlega algengar. Ef þú færð ekki nægan svefn geturðu fengið bauga undir augun, húðin orðið föl og einnig getur það valdið þyngdaraukningu þar sem þú eykur framleiðslu á hormónum sem kalla fram hungurtilfinningu. EKKERT HEFUR REYNST EINS VEL „Ég hafði verið í vandræðum með svefn og slökun í töluverðan tíma, segir Elsa Ásgeirsdóttir. „Ég starfa sem klæðskeri og hönnuður og starfinu fylgir oft mikið álag. Stundum er ég nánast ofvirk og hausinn oft fullur af hugmyndum sem ég þarf að framkvæma,“ segir hún og brosir. „Ég náði alltaf að sofna en náði ekki að sofa alla nóttina, var oft vöknuð um klukkan fjögur á næturnar og átti erfitt með að sofna aftur. Það sem er líka gott við Melissu er að nú heyrir fótapirringur sögunni til, en ég átti það til að vera slæm af fótapirringi þegar ég var komin í háttinn.“ Elsa las sér til um Melissa Dream-töflurnar eftir að hún sá þær auglýstar og ákvað að prófa. „Mér leist líka vel á þær þar sem þetta er náttúruleg lausn, mér líkar það betur. Ég hef prófað mjög margt til að ná að hvílast og sofna en ekk- ert annað hefur reynst mér svona vel. Þetta er það eina sem hefur hjálpað mér hingað til! Mér líður svo miklu betur eftir að ég næ fullum svefni, er í betra jafnvægi allan daginn og þá verður allt annað líka í betra jafnvægi. Til dæmis um það þá fer ég einu sinni á ári til læknis í eftirlit og mælingar. Eftir síðustu heimsókn fékk ég bestu niðurstöður sem ég hef hingað til fengið, það sannaðist hvað svefninn er mikilvægur fyrir heilsuna og alla líðan.“ LAUS VIÐ FÓTAÓEIRÐ Sigríður Helgadóttir fór að nota Melissa Dream þegar hún var búin að eiga nokkr- ar andvökunætur vegna fóta óeirðar sem truflaði svefn hennar. „Fótaóeirðin var mjög óþægileg og hélt fyrir mér vöku en ég er ekki vön að vera andvaka. Ég fór að leita mér ráða, þá sá ég reynslusögur í blöðunum um Melissa Dream. Ég fór að lesa mér til um vöruna og ákvað að prófa, því það sakaði ekki að reyna.“ Sigríður tekur tvær töflur klukkutíma fyrir svefn þegar henni finnst hún þurfa á því að halda. „Þá næ ég að sofna fljótlega og svo finn ég ekki fyrir þessum fótapirringi. Það sem mér finnst líka æðislegt við þessar töflur er að þær eru nátt- úrulegar og hafa engin eftirköst þegar maður vaknar. Ég þarf ekki að taka þær á hverju kvöldi en mér finnst ég ná að slaka svo vel á þegar ég tek þær. Ég er mjög ánægð með Melissa Dream og ég mæli með því fyrir alla sem eiga erfitt með svefn.“ ENGAR BYLTUR LENGUR Dagbjört Jóna Guðnadóttir hefur tekið Melissa Dream í þrjá mánuði og vaknar nú út- hvíld á morgnana. „Í um eitt ár hafði ég átt erfitt með að sofna á kvöldin. Ég hef verið með mikla verki í líkamanum sem stafa af slitgigt en eftir að ég byrjaði að taka Mel- issa Dream finn ég mjög mikinn mun. Ég slaka miklu betur á þegar ég leggst upp í og er fljót að sofna á kvöldin. Byltur til að finna rétta stellingu til að sofna heyra sögunni til eftir að ég fór að taka Melissa Dream.“ SLAKAR BETUR Á Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt erfitt með svefn og fundist erfitt að slaka á vegna þreytu og verkja. „Eftir að ég byrjaði að taka Melissa Dream fyrir fjórum mánuðum hef ég fundið miklar breytingar til hins betra. Ég tek tvær töflur um það bil klukku- tíma fyrir svefn á kvöldin og ég finn að ég slaka betur á og þreytuverkir og fótapir- ringur hafa minnkað mikið. Ég vakna úthvíld og mér líður almennt betur í líkamanum eftir að ég byrjaði að taka Melissa™.“ SKAÐLEGT FYRIR LÍKAMANN Svefnleysi veldur því að líkaminn endur- nýjar sig hægar, sem getur veikt ónæmis- kerfið. Í raun getur svefnleysi verið mjög skaðlegt fyrir líkamann. Það er ekki óalgengt að vinir og samstarfsmenn hafi áhyggjur af þér. Svefnleysi er svo skaðlegt fyrir fólk að það er viðurkennt sem áhrifarík pyntingar- aðferð. Til þess að hjálpa þér við að losna við hvíldar- og svefnlausar nætur ættir þú að prófa Melissa Dream-töflurnar. Sítrónu- melis-töflurnar viðhalda góðum og endur- nærandi svefni. SOFÐU BETUR MEÐ MELISSA DREAM Í gegnum aldirnar hefur sítrónumelis (lemon balm), Melissa officinalis, verið vinsæl með- al grasalækna. Þaðan dregur varan nafn sitt, Melissa Dream. Þessar vísindalegu samsettu náttúruvörur eru hannaðar til að aðstoða þig við að sofa betur og vakna endurnærð/ ur og innihalda ekki efni sem hafa sljóvg- andi áhrif. Sítr ónumelis-taflan inniheldur náttúrulegu amínó sýruna L-theanine, sem hjálpar til við slökun auk alhliða B-vít amína, sem stuðla að eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess inniheldur taflan mikið af magnesíum, sem stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og dregur þar með úr óþægindum í fótum og handleggjum og bætir svefn. Í BETRA JAFNVÆGI OG SEFUR VEL ICECARE KYNNIR Melissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur. Þetta er ekki lyf heldur nátt- úruleg vítamín og jurtir. ÚTHVÍLD Unnur Hjartardóttir hefur lengi átt erfitt með svefn en líður mun betur eftir að hún byrjaði að taka Melissa Dream. MYND/VALLI SLAKAR BETUR Á Dagbjört finnur miklu minna fyrir verkjum vegna slitgigtar eftir að hún fór að taka Melissa Dream. Hún slakar betur á og er fljótari að sofna. MYND/VALLI FLJÓT AÐ SOFNA Sigríður slakar vel á og sefur betur þegar hún tekur Melissa Dream enda laus við fóta óeirð þegar hún tekur töflurnar. MYND/STEFÁN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.