Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 2
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FRÉTTIR
FIMM Í FRÉTTUM GOLDEN GLOBE OG SJÚKLINGAR Í LÍFSHÆTTUGLEÐIFRÉTTIN
➜ Hrafnhildur Lúthersdóttir
sundkona komst inn á topp 22 í
þremur greinum á HM
í sundi í Katar, í 200
m bringusundi,
50 metra
bringu-
sundi og
100 m
bringu-
sundi.
Björguðu 408
flóttamönnum
Á þriðjudag bjargaði áhöfn
varðskipsins Týs 408 sýr-
lenskum flóttamönnum úr
flutningaskipi sem statt
var 165 sjómílur austur af
Möltu. Neyðarboð bárust
frá skipinu snemma um
morguninn og var með
hjálp eftirlitsflugvéla
mögulegt að staðsetja
skipið. „Tilfinningin að
standa frammi fyrir svona verkefni er alveg ótrúleg og eiginlega ólýsanleg,“
sagði Einar Valsson, skipherra á varðskipinu Tý.
Jóhann Jóhannsson tónlistar-
maður var tilnefndur til Gol-
den Globe-verðlaunanna
fyrir tónlist sína í kvik-
myndinni The Theory of
Everything. Hann er til-
nefndur fyrir bestu frumsömdu tónlistina.
Eygló Harðardóttir
félagsmálaráðherra
lýsti þeirri skoðun
sinni að mikilvægast
væri að Fæðingar-
orlofssjóður færi
að lögum og endurgreiddi það sem
oft ekið hefur verið af foreldrum.
Ólafur Ólafsson, fyrr-
verandi landlæknir,
sagði það svívirðilegt
að staðan væri sú að
sjúklingar væru í lífs-
hættu vegna þess að
ekki hefði verið samið við lækna.
Bergur Þorri Benjamíns-
son, varaformaður Sjálfs-
bjargar, benti á að örorkulíf-
eyrisþegar gætu ekki nýtt sér
úrræði ríkisstjórnarinnar um
að nota hluta tekna sinna
skattfrjálst inn á höfuðstól fasteignaveðlána.
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
Jólagjafabréf VITA
Afsláttur frá 2.000 til 20.000 kr.
SAMFÉLAG Elite fyrirsætumiðlunin
á Íslandi býður fyrirsætum samn-
ing til sex ára sem er óuppsegjan-
legur af hálfu fyrirsætunnar nema
hún hætti fyrirsætustörfum. Samn-
ingur sem Fréttablaðið hefur undir
höndum og var boðinn 15 ára stúlku
felur í sér sex ára skuldbindingu við
fyrirtækið en af því að hún er undir
lögaldri áttu foreldrar hennar að
skrifa undir samninginn fyrir henn-
ar hönd. Þykir þetta nokkuð langur
samningur en hjá Eskimo sem er
einnig íslensk fyrirsætuskrifstofa,
eru samningar einungis gerðir frá
eins til þriggja
ára og eru upp-
segjanlegir af
há lfu beggja
aðila.
Samningarnir
eru staðlaðir frá
Elite samsteyp-
unni að utan en
Elite á Íslandi
starfar með leyfi
frá þeim og er
gert að vinna eftir þeirra reglum.
Samkvæmt samningnum þá getur
fyrirsætan ekki sagt honum upp
nema hún ætli sér að hætta í fyrir-
sætustörfum. Ákveði hún að byrja
aftur að vinna sem fyrirsæta þá
tekur samningurinn aftur gildi.
Eins kemur fram að: „komi til
þess að fyrirsætunni verði ókleift
að sinna starfsskyldum sínum t.d.
vegna veikinda, barnsburðar eða
náms, framlengist gildistími samn-
ingsins um þann tíma.“
Margrét María Sigurðar dóttir,
umboðsmaður barna, segir for-
eldra bera meginábyrgð á velferð
barna sinna og beri að setja hags-
muni þeirra ávallt í forgang. „For-
eldrar eiga því ekki að samþykkja
slíka samninga ef þeir telja þá með
einhverjum hætti ósanngjarna eða
skaðlega fyrir barnið,“ segir Mar-
grét.
„Jafnvel þó að foreldrar sam-
þykki svona samning þá tel ég ekki
rétt að líta svo á að hann skuld-
bindi barn til lengri tíma. Það er
óeðlilegt að að foreldrar geti skuld-
bundið barn, sem ef til vill hefur
ekki aldur og þroska til að skilja
samning, í mörg ár. Þetta er hins
vegar álitamál sem yrði að leysa úr
hverju sinni, til dæmis út frá efni
samningsins og aðstæðum að öðru
leyti,“ segir hún en tekur fram að þó
þurfi líka að virða óskir barnsins.
„Mikilvægt er að virða rétt barna
til að hafa áhrif á eigið líf og ef það
er eindregin ósk barns að vinna
við fyrirsætustörf eiga foreldrar
að hlusta á þá skoðun og taka tillit
til hennar í samræmi við aldur og
þroska. Ég á erfitt með að sjá að það
geti talist barni fyrir bestu að skrifa
undir samning sem skuldbindur
það í mörg ár og tel raunar álitamál
hvort slíkur samningur gæti yfir
höfuð talist bindandi fyrir barnið
til lengri tíma.“
Gísli Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Elite, vildi ekki tjá sig um
efni samningsins þegar Frétta blaðið
leitaði eftir því. Bað hann um að fá
spurningar sendar skriflega en
veitti svo ekki svör við þeim. Segi
hann samninginn trúnaðarmál milli
skrifstofunnar og fyrirsætunnar og
því geti hann ekki tjáð sig um hann.
viktoria@frettabladid.is
Aðeins 15 ára boðinn
sex ára samningur
BROT Á RÉTTINDUM BARNA? Elite fyrirsætuskrifstofan býður fyrirsætum sex ára
samning sem er ekki uppsegjanlegur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
MARGRÉT MARÍA
SIGURÐAR-
DÓTTIR
Fyrirsætusamningur sem Elite bauð 15 ára stúlku felur í sér sex ára bindingu við
fyrirtækið. Umboðsmaður barna segir foreldra ekki eiga að samþykkja slíka samn-
inga telji þeir þá ósanngjarna eða skaðlega. Elite segir samninginn trúnaðarmál.
HEILBRIGÐISMÁL Frestun ríflega sjö
hundruð skurðaðgerða vegna verk-
fallsaðgerða lækna kostar Landspít-
alann um þrjú hundruð og fimmtíu
milljónir króna. Forstjóri Land-
spítalans óttast frekari aðgerðir og
áhrif þeirra á sjúklinga.
Fimmtu lotu verkfallsaðgerða
lækna sem staðið hafa síðan í lok
október lauk í fimmtudag. Aðgerð-
irnar hafa haft gríðarlega áhrif
á heilbrigðiskerfið, sér í lagi í á
Landspítalann.
Þannig hefur spítalinn þurft að
fresta ríflega 700 skurðaðgerð-
um, um 100 hjartaþræðingum, 800
myndgreiningarrannsóknum og
3.000 dag- og göngudeildarkomum.
Kostnaður spítalans vegna
þessa er mikill en Páll Matthías-
son, forstjóri Landspítalans, sagði
í Fréttum Stöðvar 2 í gær að erfitt
væri að meta hann með vissu.
„Við vitum það þó að um það bil
350 milljóna kostnaður mun hljót-
ast af því að vinna niður það sem
hefur safnast aukalega í aðgerð-
um sem hafa frestast í verkfalls-
aðgerðum undanfarna tvo mánuði
þannig að það eru um það bil 350
milljónir,“ segir Páll.
Læknar hafa boðað hertar
verkfallsaðgerðir strax á nýju
ári. Páll óttast áhrif þeirra á
sjúklingana og segir að erfitt
sé að sjá hvernig spítalinn geti
tryggt öryggi þeirra.
„Okkur virðist að það sé í raun
og veru óhugsandi að þær verk-
fallsaðgerðir geti gengið. Það mun
hafa slíka röskun á allri starfsemi
í för með sér og trufla öryggi ef
boðaðar verkfallsaðgerðir lækna
í janúar verða að veruleika,“ segir
Páll og bætir við að það muni
stefna í óefni mjög fljótt. - lvp
Frestun um 700 skurðaðgerða vegna verkfallsaðgerða kostar 350 milljónir:
Erfitt að tryggja öryggi sjúklinga
MIKIL ÁHRIF Forstjóri Landspítalans
óttast frekari verkfallsaðgerðir og áhrif
þeirra á sjúklinga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HÚSAFRIÐUN Komnir eru nýir eig-
endur að húsunum á Landsíma-
reitnum, en þar var meðal annars
skemmtistaðurinn Nasa til húsa.
Eigendaskiptin áttu sér nokkurn
aðdraganda en gengu í gegn í vik-
unni. Þetta kemur fram í vikulegu
fréttabréfi Dags B. Eggertssonar
borgarstjóra. Dagur segir að hótel-
áform á reitnum verði lögð til hlið-
ar að sinni á meðan kannaðir eru
nýir möguleikar á annarri notkun
húsnæðisins.
Til standi að endurreisa Nasa
sem lifandi tónleikastað og að aug-
lýst verði eftir rekstraraðilum á
næstunni. Áfram verði stefnt að
endurgerð húsanna sem snúi að
Ingólfstorgi. - sks
Hætt við hótelbyggingu:
Nasa aftur
tónleikastaður
LÖGREGLUMÁL Ekki er útilokað að
lögreglumaðurinn sem í fyrra-
dag var dæmdur í 30 daga skil-
orðsbundið fangelsi snúi aftur
til starfa hjá lögreglunni. Þetta
segir Snorri Snorrason, formaður
Landssambands lögreglumanna,
aðspurður um stöðu lögreglu-
mannsins. Snorri segir að fundað
verði á næstu dögum um framtíð
lögreglumannsins.
Lögreglumaðurinn var dæmd-
ur til að greiða konu bætur en
málið snerist um harkalega hand-
töku.
Atvikið vakti mikla athygli en
myndband náðist af handtökunni,
sem átti sér stað á Laugavegi í
miðbæ Reykjavíkur. - ak
Dæmdur fyrir handtöku:
Snýr mögulega
aftur til starfa
KÍNA Hurð skall nærri hælum á Yunlianghe-veginum í Zhenjiang í
Kína á föstudag. Vegurinn hrundi og það myndaðist fimm metra breið
og tveggja metra djúp hola í veginum. Bíll af gerðinni Ford Sedan
rétt slapp við að lenda ofan í holunni en hann var svo hífður upp með
krana. Vegurinn var lagður fyrir tveimur árum og nú er verið að rann-
saka ástæður þess að holan myndaðist. - vh
Ford Sedan slapp þegar jörðin opnaðist á ótrúlegan hátt:
Tveggja metra hola í veginum
HURÐ NÆRRI HÆLUM Eins og sjá má var bíllinn næstum farinn ofan í holuna sem
var tveggja metra djúp og fimm metra breið. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY