Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 8

Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 8
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8 STJÓRNSÝSLA „Þetta er réttlætis- mál. Völdin voru tekin af mér og ég var svipt völdum yfir 17 ára syni mínum, dreng sem ég ber alla ábyrgð á. Þjóðskrá yppir bara öxlum og telur sig ekkert geta gert,“ segir Hulda Ragnheiður Árnadóttir, móðir 17 ára drengs. Eftir að Hulda Ragnheiður skráði sig í sambúð svipti Þjóð- skrá hana fjárhagslegu forræði yfir syninum, þrátt fyrir að hún væri með fullt forræði og forsjá yfir honum. Hulda Ragnheiður og sambýlis- maður hennar skráðu sig í sambúð fyrir skömmu. Hulda Ragnheið- ur hafði í áratug haft ein fullt og óskorað forræði yfir syni sínum og var hann í hennar forsjá. Við það að Hulda og sambýlismaður henn- ar skráðu sig í sambúð hætti hún að fá senda reikninga stílaða á son hennar. „Ég fæ þau svör frá Þjóð- skrá að það sé vegna þess að sam- býlismaður minn er eldri en ég. Regl- urnar hjá stofnuninni eru einfaldar og eru á þá leið að sá sem elstur er á heimilinu hafi þá höfuðábyrgð að taka við öllum reikningum ófjárráða barna sem skráð eru á sama heimil- isfangi. Nú hefur þessu verið breytt, gegn vilja mínum, eftir áratugalangt sjálfstæði. Sem sjálfstæð kona þykir mér þetta ákveðin niðurlæging.“ Hulda taldi í fyrstu að um smá- vægileg mistök hefði verið að ræða þegar reikningur frá heilsugæslu kom inn um lúguna, stílaður á sam- býlismann hennar. „Við hlógum yfir þessu og héldum að einhver á heilsu- gæslustöðinni hefði ákveðið þetta sisona sjálfur. Við eftirgrennslan kom allt annað í ljós. Þetta er komið út um allt kerfi. Bankarnir kaupa gagnagrunna af Þjóðskrá. Reikn- ingar koma því ekki á heimabank- ann minn, ekki heimabanka sonar míns, heldur sambýlismanns míns,“ segir Hulda Ragnheiður. Ingveldur Hafdís Karlsdóttir, deildarstjóri almannaskráningar Þjóðskrár, segir kröfur samfélags- ins kalla á breytingar. „Þjóðskrá hvorki skráir forræði barna né tengsl þeirra. Börn undir lögaldri eru hins vegar tengd fjölskyldunúmeri þess sem er elstur á lögheimili barnsins. Það segir ekkert um forsjá barnsins né hverjir eru foreldrar þess. Rétt er að vekja athygli á því að Þjóðskrá Íslands er fullkunnugt um nauðsyn þess að börn séu vensluð við foreldra í Þjóðskrá óháð því hvar lögheimili þeirra eru skráð. Skráning slíkra upplýsinga er nauðsynleg fyrir hinar ýmsu stofnanir, fyrirtæki og ekki síst foreldra barna. Mikill vilji er hjá Þjóðskrá Íslands til þess að skrá og fanga vensl barna við foreldra í Þjóðskrá og miðla þeim upplýsingum áfram. Hins vegar hefur ekkert fjár- magn fengist til þess að þróa þjóð- skrárkerfið og því lítið áunnist í að koma til móts við þarfir hagsmuna- aðila þótt viljinn sé sannarlega fyrir hendi. Hulda Ragnheiður segir þetta kannski ekki hafa mikil áhrif á dag- legt líf sitt en geta kannski skipt höf- uðmáli fyrir aðra sem búa við sömu aðstæður,“ segir Ingveldur Hafdís. „Þjóðskrá segir þetta vera þær reglur sem hún vinni eftir. Nú er fjöl- skyldan ein heild á einu fjölskyldu- númeri og ekkert hægt að breyta því. Horft er blint á fjölskyldunúmerið í gagnagrunninum án þess að horft sé á fjölskyldumynstrið. Það er enginn vandi að breyta þessum reglum og færa þær í átt að nútímanum.“ Hulda Ragnheiður og sambýlis- maður hennar eru með aðskil- inn fjárhag og stefna þau ekki á að breyta því. „Hver stofn- unin bendir á aðra til að lagfæra skráninguna; Þjóðskrá bendir á bankann, bankinn á sýslumanns- embættið sem aftur bendir mér á Þjóðskrá.“ sveinn@frettabladid.is Svipt fjárræði yfir syni sínum Hulda Ragnheiður Árnadóttir, móðir 17 ára pilts, hætti að vera skráð fyrir reikningum í nafni sonar síns eftir að hún hóf sambúð að nýju. „Sem sjálfstæð kona þykir mér þetta ákveðin niðurlæging,“ segir Hulda Ragnheiður. Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, er einn þeirra sem hafa sett fram gagnrýni á gagna- grunna Þjóðskrár og flutt þingmál sem taka á skráningu barna og ólíkum fjölskyldugerðum. „Tölvan er allt of mikið að segja nei hjá Þjóðskrá. Við í Bjartri framtíð höfum verið með þingmál sem taka á þessu og verið samþykkt. Til dæmis að það þurfi að uppfæra skráningu á ólíkum fjölskyldumynstrum, að börn búa til dæmis á tveimur heimilum og umgengnis- foreldrar eru líka foreldrar sem þarf að skrá sérstaklega. Þetta snýst fyrst og fremst um að veruleiki barna er miklu flóknari en endurspeglast í tölvu Þjóðskrár. Það er greinilegt að það þarf að gera meira og gagnagrunnur Þjóðskrár verður að endurspegla veruleikann. Ég efast ekki um að starfsmenn Þjóðskrár séu allir af vilja gerðir til að laga þetta. Tölvan verður að fara að segja meira já,“ segir Guðmundur. „Tölvan segir nei“ GUÐMUNDUR STEINGRÍMSSON RÉTTLÆTISMÁL Þjóðskrá svipti móður 17 ára drengs fjárhagslegu forræði yfir syn- inum þegar hún skráði sig í sambúð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Þetta er réttlætismál. Völdin voru tekin af mér og ég var svipt völdum yfir 17 ára syni mínum, dreng sem ég ber alla ábyrgð á. Hulda Ragnheiður Árnadóttir Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is ORKUMÁL Einn þriggja sérleyfis- hafa á Drekasvæðinu, hópur undir forystu Faroe Petroleum, hefur fallið frá olíuleitinni. Orku- stofnun barst í gær erindi frá Faroe Petroleum þar sem til- kynnt er að félagið ásamt sam- starfsaðilum þess, Petoro Iceland og Íslensku kolvetni, skili sérleyfi sínu, sem útgefið var 4. janúar 2013. Í tilkynningu frá Íslensku kol- vetni segir að niðurstöður frum- rannsókna bendi til þess að næsti áfangi muni ekki skila tilætluð- um árangri. - kmu Faroe Petroleum hættir við: Skilar sérleyfi á Drekasvæðið STJÓRNMÁL Borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins lögðu fram til- lögu á borgarráðsfundi á fimmtu- dag um að mótaðar yrðu reglur um greiðslur fyrir aukinn bygg- ingarrétt á þegar byggðum eða úthlutuðum lóðum. Lögðu þeir til að mótuð yrði gjaldskrá fyrir aukinn bygg- ingarrétt sem fenginn sé með breyttu deiluskipulagi hvort sem um er að ræða óbyggðar lóðir eða þar sem byggingarmagn er aukið verulega í eldri hverfum. Tóku þeir fram að í nýrri gjald- skrá þyrfti að taka tillit til þess að slíkt gjald hefði ekki áhrif á einstaklinga sem hyggjast ráðast í eðlilegar endurbætur. Afgreiðslu tillögunnar var frest- að. - vh Tillaga sjálfstæðismanna: Vilja móta regl- ur um greiðslur VILJA REGLUR Sjálfstæðismenn vilja reglur um byggingarétt. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.