Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 16

Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 16
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 16 UMHVERFISMÁL Losun gróðurhúsa- lofttegunda frá þeim 3.900 ferkíló- metrum votlendis sem þurrkaðir hafa verið með framræslu hér á landi er miklu meiri en er frá allri brennslu jarðefnaeldsneytis og iðn- aði á hverju ári. Eins og Fréttablaðið greindi frá hefur hátt í helmingur alls votlendis á Íslandi verið ræstur fram. Í þess- um tilgangi voru grafnir um 33.000 kílómetrar af skurðum. Veruleg- ur hluti þessa lands er ekki nýttur en þetta inngrip í náttúruna hefur víðtæk áhrif og endur heimt lands er talin aðkallandi umhverfismál. Slík endurheimt á 20 ára tímabili til ársins 2012 var sex ferkílómetrar þegar allt er talið. Það sem vitað er núna, en ekki þegar skurðirnir voru flestir grafn- ir, er að framræsla votlendis veldur oxun eða bruna á lífrænum efnum í mold sem stuðlar að losun koltví- sýrings (CO2) út í andrúmsloftið. „Þessi losun er mjög mikil á Íslandi. Endur heimt votlendis hefur því mjög fjölþætt gildi bæði sem nátt- úruverndaraðgerð og til þess að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda,“ benda nefndarmenn á í fyrr- nefndri skýrslu. Í svari umhverfis- og auðlinda- ráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar, þingmanns Sam- fylkingarinnar, um þetta tiltekna atr iði kemur fram að losun frá framræstu vot- lendi hér á landi var 7,74 milljónir tonna CO2-ígilda árið 2012. Losun vegna orkunotk- unar var hins vegar 1,55 millj- ónir tonna og vegna iðnaðarferla 1,88 milljón- ir tonna þetta ár. Losun frá fram- ræstu mólendi var því 226% meiri en saman lögð losun vegna orkunotk- unar og iðnaðarferla hér á landi. „Alþjóðasamfélagið er sífellt meira að krefjast verndar á vot- lendissvæðum og endurheimtar þeirra sem hefur verið raskað. Allt hefur þetta verið til skoðunar hjá stjórnvöldum en aldrei verið sett- ir fjármunir í að gera þetta,“ segir Guðmundur Halldórsson, rann- sóknar stjóri hjá Landgræðslunni, sem er þeirrar skoðunar að hefjast verði handa. Verkefnið sé tímafrekt enda inngripið í náttúru Íslands gríðarlegt. „Það tekur langan tíma fyrir landið að gróa saman aftur, eftir að það er búið að rista það í sundur með þessum hætti,“ segir Guðmundur og bætir við að það sé ekki síst vegna losunar gróðurhúsa- lofttegunda, þótt aðrir þættir spili inn í þá mynd. svavar@frettabladid.is Losar 226% meira en iðnað- ur og samgöngur samtals Rök fyrir stóraukinni endurheimt votlendis sem ræst hefur verið fram á Íslandi er gríðarleg losun gróðurhúsa- lofttegunda frá uppþurru landinu. Losun framræsts lands hér er metin 7,74 milljónir tonna CO2-ígilda. Hestmýri í landi Mávahlíðar við Hest í Borgarfirði var fyrsta svæðið sem endur- heimt var á vegum Votlendisnefndarinnar haustið 1996. Gömlum uppgreftri með skurðbökkum var ýtt ofan í skurði og þeim lokað. Allt í allt var fyllt upp í um 2 kílómetra af framræsluskurðum. Hestmýrin er um 35 hektara hallamýri sem ræst var fram í tilraunaskyni af Rannsóknastofnun landbúnaðarins fyrir um 30 árum. Margvíslegar rannsóknir fóru fram í mýrinni áður en hún var ræst fram og einnig var fylgst með breytingum á henni eftir framræsluna. Rannsóknir voru hafnar aftur í mýrinni þegar ákveðið var að gera þar tilraun með endurheimt. Gerðar voru mælingar á gróðurfari, jarðvatnsstöðu, fugla- og skordýralífi og losun gróðurhúsalofttegunda. Mælingar sem gerðar voru á jarðvatnsstöðu í mýrinni sumarið 1997 sýndu að svæðið blotnaði mikið upp við aðgerðirnar. Rannsóknir á losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda í mýrinni leiddu í ljós að við endurheimt færist kolefnisbúskapur mýrlendis í svipað horf og áður og geta votlendisins til að binda koltvísýring úr andrúmslofti er endurheimt. VEL GERLEGT AÐ ENDURHEIMTA LANDGÆÐIN FRAMRÆST LAND Landið grær með tímanum en skilvirkasta aðferðin er að fylla skurðina aftur í heild sinni. MYND/JÓN GUÐMUNDSSON GUÐMUNDUR HALLDÓRSSON ORKUMÁL Landsnet áætlar að kostnaður fyrir tækisins við umhverfismat vegna áforma um lagningu háspennulínu um Sprengisand nemi á bilinu 100 til 150 millj- ónum króna. Þetta kemur fram í svari Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, iðnaðar- og viðskipta- ráðherra, við fyrirspurn Svandísar Svavars- dóttur, þingmanns Vinstri grænna. Einnig kemur þar fram að Landsnet hafði frumkvæði að því að farið yrði í umhverfis- mat á 220 kílóvatta háspennulínu sem myndi fara um Sprengisand og ná milli Suður- og Norðurlands. „Mat á umhverfisáhrifum Sprengisands- línu er á frumstigi og á þessu stigi ómögu- legt að áætla nákvæmlega kostnað við matið,“ segir í svari iðnaðarráðherra. Landsnet vill reisa Sprengisandslínuna vegna þess að byggðalínan, sem var tekin í notkun árið 1984, ber ekki alla þá raforku sem flytja þarf á milli landshluta. - hg Landsnet hafði frumkvæði að því að farið yrði í mat vegna áforma um háspennulínu um Sprengisand: Umhverfismatið gæti kostað 150 milljónir RAFLÍNUR Hugmyndin um háspennulínu um Sprengi- sand hefur verið gagnrýnd af Náttúruverndarsamtök- um Íslands og Landvernd. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM NÝSKÖPUN Fyrirtækið Pólar Tog- hlerar hefur fengið vilyrði fyrir styrk frá Evrópusambandinu til vöruþróunar á stýranlegum tog- hlerum. Styrkurinn er 7,5 milljón- ir sem notast við gerð markaðs- og áreiðanleikakönnunar sem frek- ara þróunarstarf mun byggja á. Sú þróun lýtur að notkun við togveiðar og einnig fyrstu skref í þróun á stýranlegu tækninni til mun stærri hlera sem notaðir eru við rannsóknir á olíusetlögum. - shá Fá 7,5 milljónir til þróunar: Fá Evrópustyrk vegna toghlera
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.