Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 18
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 18
Harpa ohf. óskar eftir útfærðum tillögum um rekstur
sem fellur að starfsemi hússins og eykur fjölbreytni
hennar. Reksturinn þarf að tengjast hlutverki Hörpu
og vera á sviði tónlistar, menningar, ferðamennsku
eða ráðstefnuhalds.
Til ráðstöfunar er tæplega 80 m2 rými á 1. hæð Hörpu,
þar sem áður voru 12 Tónar. Við val á rekstrar aðilum
verður styrkleiki vöru og þjónustu, þekking, reynsla, geta
og viðskiptahugmynd lögð til grundvallar. Einungis aðilar
sem hafa haldgóða reynslu af rekstri koma til greina.
Allar nánari upplýsingar veitir fasteignastjóri Hörpu,
Sunna Hrönn Sigmarsdóttir, sunna@harpa.is.
Umsóknum ásamt tilbúinni viðskiptaáætlun skal skila til
Huldu Kristínar Magnúsdóttur, huldakristin@harpa.is,
eigi síðar en kl. 14, 23. desember 2014.
Komdu í góðan
félagsskap
Verslunar- og
þjónusturými
www.harpa.is
UPPLÝSINGATÆKNI Fjar skipta-
fyrir tækjum er skylt að láta fólk
vita af hættu á hærri rukkunum
fyrir gagnamagn í farsíma en
gilda innan Evrópska efnahags-
svæðisins þegar það ferðast til
landa utan svæðisins.
Í nýrri ákvörðun Póst- og fjar-
skiptastofnunar (PFS) er áréttað
að láta þurfi notendur vita þegar
þeir ferðast til landa þar sem
gagnaþök eru ekki í gildi. Þannig
hafi Hringdu brotið gegn ákvæði
um tilkynningaskyldu í reglu-
gerð ESB um reiki, þegar notandi
fékk við komu til Tyrklands bara
upplýsingar um verð, en ekki að
verðþak væri ekki í gildi. - óká
Meira er rukkað utan EES:
Senda á SMS
með viðvörun
FARSÍMI Íslensku símafélögin eiga að
vara fólk við skorti á verðþaki þegar það
ferðast í útlöndum.
SKIPULAGSMÁL Forsvarsmenn
Hótels Skógafoss vilja að héraðs-
nefnd Rangæinga taki þátt í að
greiða kostnað við malbikun bíla-
stæða við hótelið.
Í erindi frá Eyju Þóru Einars-
dóttur og Jóhanni Frímannssyni
er lagt til að verði héraðsnefnd
ekki við því að borga í bílastæð-
inu þá verði lóð Hótels Skógafoss
stækkuð þannig að hún nái yfir
hið malbikaða svæði. Héraðs-
nefndin ákvað að afla frek-
ari gagna um málið og frestaði
afgreiðslu þess. - gar
Krafa frá Hótel Skógafossi:
Borgi stæði eða
stækki lóðina
SKÓGAFOSS Mikil uppbygging er við
náttúruperluna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
NEYTENDUR Yggdrasill hefur í
samráði við Heilbrigðiseftir-
lit Hafnarfjarðar- og Kópa-
vogssvæðis innkallað líf rænan
barnamat vegna of mikils
magns atrópíns í vörunum.
Á heimasíðu Matvælastofn-
unar segir að atrópín sé nátt-
úrulegt eiturefni í jurtum sem
geti valdið einkennum á borð
við oföndun, ringlun og óróa.
Um er að ræða vörurnar
Holle Organic Millet Porridge
with rice með lotunúmer-
unum L14103 og L13219 og
Holle Organic Millet Porridge
apple-pear með lotunúmerinu
L13239.
Jafnframt segir á heimasíðu
Matvælastofnunar að stofn-
unin hafi fengið tilkynningu
í gegnum evrópska hraðvið-
vörunarkerfið RASFF um inn-
köllunina.
Vörurnar voru innkallaðar
í Þýskalandi, Austurríki og
Tékklandi þann 25. nóvember
síðastliðinn. Þær upplýsingar
fengust hjá heilbrigðiseftirlit-
inu að tilkynning hefði borist
til Íslands þann 11. desember.
Þá hefði strax verið farið að
undirbúa innköllun varanna. - ibs
Of mikið af eiturefni í lífrænum barnamat Holle:
Holle-barnamatur
innkallaður
HIRSIGRAUTUR Þetta er önnur tegund
barnamatarins sem hefur verið innkallaður.
BRETLAND Meiriháttar truflun varð
á flugsamgöngum á Bretlandseyj-
um og víðar í Evrópu eftir að loft-
rýminu yfir London var lokað í 35
mínútur síðdegis í gær.
Bilun í tölvukerfi flugstjórnar-
stöðvarinnar í Swanwick, sem stýr-
ir flugumferð yfir London, olli því
að loka þurfti lofthelginni.
Búið var að fella niður 66 flug
frá Heathrow-flugvellinum í Lond-
on þegar Fréttablaðið fór í prentun
í gærkvöldi. Búist var við því að
fleiri flug yrðu felld niður eftir því
sem leið á kvöldið. Þá urðu tafir á
hundruðum flugferða í gær vegna
lokunarinnar á flugvöllum um alla
Evrópu. Flugum Wow air og Ice-
landair til London síðdegis í gær
seinkaði um tvær klukkustundir
og kvöldflugi flugfélaganna aftur
til Keflavíkur seinkaði um klukku-
stund. Talið er að tafir á flugumferð
geti áfram orðið í dag, laugardag,
vegna lokunar lofthelginnar í gær.
Martin Rolfe, talsmaður NATS,
Tölvubilun setur flug
í Evrópu úr skorðum
Mikil truflun varð á flugsamgöngum víða um Evrópu vegna þess að loftrýminu
yfir London var lokað í 35 mínútur síðdegis í gær. Orsök lokunarinnar var bilun
í tölvukerfi. Samgönguráðherra Bretlands hefur farið fram á rannsókn á málinu.
HEATHROW Lokun
loftrýmisins hafði
áhrif á flugferðir
þúsunda ferða-
langa á Heathrow
og fleiri flugvöllum
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
félagsins sem rekur flugstjórnar-
stöðina í Swanwick, sagði að orsök
bilunarinnar væri ókunn en rann-
sókn stæði yfir. Rolfe gat þó sagt að
búið væri að útiloka árás hakkara
á tölvukerfið.
Patrick McLoughlin, sam-
gönguráðherra Bretlands, var
afar ósáttur við stöðuna. „Trufl-
anirnar af þessari stærðargráðu
eru óásættan legar og ég hef farið
fram við NATS að atvikið sem átti
sér stað í kvöld verði rannsakað til
hlítar,“ hefur The Guardian eftir
McLoughlin.
Bilanir í flugstjórnarstöðinni
Swanwick hafa verið tíðar síðan
stjórnstöðin opnaði árið 2002, sex
árum á eftir áætlun. Kostnaður við
byggingu stjórnstöðvarinnar fór
tvöfalt fram úr áætlun. Ár er síðan
að bilun kom upp í símkerfi stjórn-
stöðvarinnar sem olli meiriháttar
truflun á flugi. ingvar@frettabladid.is