Fréttablaðið - 13.12.2014, Qupperneq 24
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 24
Það var mjög samtímis
að gamlir útvarpsmenn
klóruðu saman fornt efni
í Efstaleiti til heiðurs
Margréti Indriða dóttur
fréttastjóra og birtist
njósnasaga Styrmis Gunn-
arssonar, löngum rit-
stjóra á Morgun blaðinu.
Bæði höfðu það hlutverk
að sinna fréttaflutningi
og upplýsa almenning
um gang mála í lýðveld-
inu Íslandi svo og í ver-
öld víðri. Margrét nam
fræði sín í Bandaríkjun-
um í lok seinna stríðs og er líklega
fyrsti Norður-Íslendingurinn með
blaðamannapróf úr háskóla upp á
vasann. Fram til þess tíma höfðu
Ameríkanar haldið sig við Monró-
kenninguna og voru ekki að káss-
ast upp á annarra manna jússur.
Blaðakonan Margrét Indriða-
dóttir kom uppfull af almanna-
útvarpi að vestan og fór brátt að
starfa á fréttastofu Útvarps niðri
á Klapparstíg. Endaði með því að
hún setti rækilega bæjarbraginn á
fréttastofunni með gott veganesti
frá heiðarlegum Könum.
Gerðist nú allt í skjótri svipan
eftir stríðið að ameríski herinn
dró lappirnar að fara og lét síðan
Íslendinga kalla yfir sig enn meiri
her. Þá er Margrét Indriðadóttir
að segja fréttir af Klapparstígnum
ásamt fleira fólki sem hélt það ætti
að bera sannleikanum vitni. Auk
þess að skila starfi sínu á frétta-
stofunni ól Margrét brátt önn fyrir
eiginmanni sínum Thor Vilhjálms-
syni og tveimur sonum. Vildi til að
þau fengu íbúðarkytru yfir frétta-
stofunni þarna á Klapparstígnum
svo hægt var að skreppa upp til
að bía börnunum þegar við lá eða
skáldið fékk hríðir.
Þegar fram liðu stundir í köldu
stríði, sem Íslendingar flestir
stóðu utan við, var ekki tekið út
með sældinni að reka almanna-
útvarp. Skuggabaldrar bögguðu
fréttamenn ár og síð og alla tíð.
Beittu hótunum um starfsmissi og
verri kárínum. Slíkt hefur áhrif
þegar til lengdar lætur og
hverjum manni næst að
vernda hreiður sitt. Svona
gekk þetta lengi lengi en
einhvern veginn tókst
fréttastofunni að klappa
steininn og ekki varð
þaggað niður í henni. Datt
fáum í hug á þeirri tíð að
kæfa útvarpið í fæðingu
þó ekki væri nema fyrir
veður fregnirnar. Raf-
hlöður í dreifðum byggð-
um voru einmitt sparaðar
miðað við veðurfregnir og
viðtækið á við hvert annað
amboð eða heyvinnuvél á bænum.
Útvarpið dafnaði og varð líka að
sjónvarpi og þjóðin fylkti sér um
hvorttveggja undrið. Varð að öfl-
ugu menningartæki og hljóðminja-
safni eins og hjá öðrum alvöru-
þjóðum í veröldinni. Enn þann
dag í dag treystir þjóðin á áreiðan-
leika fréttastofu Útvarps og hefur
ekki látið stöðugar rógsgreinar
Morgunblaðsins slá sig út af lag-
inu. Þar sem ritstjórinn heimtar
að sagan verði endurskrifuð eins
og í einræðisríki. Og dálítið bilað
þar sem við lifum á tímum upplýs-
ingar og gagnsæis, en hann trúir á
mátt endurtekningarinnar eins og
alræmdir karlar sögunnar.
Í Efstaleiti kom saman fjöldi
gamalla útvarpsmanna og -kvenna
að heilsa upp á Möggu Indriða og
hún flutti sjálf tölu, fyndin og
nastý. Fengu sumir ekki varist
þeirri hugsun að kannski væri
þetta æfing að útför Útvarpsins.
Almannaútvarpsins sem þjóðin
treystir í gleði og sorg og Mar-
grét ásamt fleira góðu fólki lagði
drög að.
Árvakurt njósnahreiður
Einmitt á þessum dögum skreið
fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins
úr skápnum og upplýsti í ritverki
stoltur, að Morgunblaðið hefði
verið njósnahreiður um langt skeið
og var það mjög samtímis því að
útvarpsfólkið var að berjast við
að móta stofnun sem nauðsynleg
þykir með siðuðum þjóðum. Á pari
við þjóðleikhús og þjóðminjasafn,
tölum nú ekki um sinfóníuhljóm-
sveit.
Styrmiskynslóðin í Sjálfstæðis-
flokknum hafði ýmist tögl eða
hagldir í útvarpsráði og beitti þar
áhrifum sínum. Lét sér það nægja
og var ekki með kröfur uppi um
að Ríkisútvarpið færi í dauða-
klefann. Þótt penir lögfræðingar í
Varðbergi þægju stöðug ferðalög
Ameríkana og svæfu í lokrekkj-
um flugmóðurskipa í brælu, var
þeim ekki efst í huga að eyðileggja
þjóðar útvarp sitt. Hlutverk þeirra
var að njósna um verkamannafjöl-
skyldur þegar þeir komu í land, því
æ sér gjöf til gjalda. Arftakarnir
sem nú hafast við á Alþingi telja
hins vegar Ríkisútvarpið, sem
þjóðin stólar á, þjóðhættulega
stofnun og nærtækasta verkefnið
að ráðast gegn því eins og vofu
kommúnismans forðum og er orða-
lag annars ritstjóra Morgunblaðs-
ins og skálds í heiðurslaunaflokki.
Í Framsóknarflokknum fundust
ætíð menningarmenn forðum daga
sem áttuðu sig á nauðsyn þjóðarút-
varps og hljóðminjasafns og slíkt
væri einn af hornsteinum sjálf-
stæðs lýðveldis. Ekkert annað orð
en plebbi kemur hins vegar upp í
hugann þegar litið er yfir fram-
sóknarhjörðina á Alþingi að und-
anskildu sæmilega meinandi fólki
sem maular jólakökuna sína í
kaffistofunni og þiggur kaupið sitt
um mánaðamót. En þegar plebba-
liðið í framsókn og styrkjadreng-
irnir í Sjálfstæðisflokknum ná
saman er voðinn vís. Hér ætlar
hvort tveggja að verða Íslands
óhamingju að vopni. Ríkisútvarp-
ið er komið í klefann, það verður
dregið um barkann fyrir jól eins
og horfir.
Dregið um
barkann á þjóðarútvarpinu
Opið bréf til
stjórnmálamanna
Kæri stjórnmálamaður
Mig langar að biðja þig
um hjálp og kannski
fyrst af öllu áheyrn, því
ég er gríðarlega áhyggju-
fullur og trúi varla að
þú gerir þér grein fyrir
hversu alvarlegt ástandið
á vinnustaðnum mínum
er orðið og í hvað stefnir.
Ég gríp því til þess ráðs
að skrifa þér beint. Í nokkur ár
höfum við sem vinnum á „gólfinu“
á Landspítalanum valið þá
leið að ræða við okkar yfir-
menn um hversu alvarlegt
ástandið er orðið í von um
að það skili sér til yfir-
stjórnar spítalans og síðan
til þín. Þetta er ekki að
virka, því hversu hátt sem
kallað hefur verið hefur
ástandið farið hratt versn-
andi.
Þegar rætt hefur verið
um í hvað stefni á Land-
spítalanum hefur mönnum
orðið tíðrætt um myndlíkinguna
að spítalinn nálgist hengiflug. Við
sem áður vorum nefnd og vinnum
á gólfinu höfum ekki verið í nein-
um vafa um að spítalinn fór fyrir
löngu fram af þessu hengiflugi
en svo myndlíkingunni sé haldið
áfram þá blasir núna við næsta
hrun niður í svarta hyldýpisgjá,
sem gæti reynst ómögulegt að
komast upp úr.
Þetta er hrikaleg lýsing, en því
miður rétt að mínu mati og til að
grípa til annarrar myndlíkingar
þá sjá læknar fyrir sér heilbrigðis-
kerfi sem er að blæða út og ekk-
ert er aðhafst. Svo vitnað sé í mjög
umfjallað mál í fjölmiðlum þegar
maður var í lífshættu vegna hníf-
stungu í hjartað. Þar hefði ekki
dugað að setjast á rökstóla og setja
plástur á sárin meðan ákveðið
væri hvað ætti að gera. Nei, þá og
nú þarf að bregðast skjótt við. Að
líkja spítalanum við sjúkling sem
hefur fengið hnífstungu í hjart-
að er dramatískt en alls ekki eins
langt frá lagi og í fyrstu mætti
halda.
Ein af mörgum yfirvofandi
hættum sem styðja þessa samlík-
ingu er sú staðreynd að fjöldi, jafn-
vel mikill meirihluti, svæfinga- og
gjörgæslulækna hyggst segja upp
stöðum sínum við spítalann ef ekki
verður samið við lækna fyrir ára-
mót. Hvað um það, gætir þú hugs-
að, þetta eru varla meira en 15-25
læknar. En til að taka af allan
vafa um afleiðingarnar þá yrðu
þær eitthvað á þessa leið: Nánast
engar skurðaðgerðir verða fram-
kvæmdar, fæðandi konur fá ekki
deyfingar, keisaraskurðir verða
ekki framkvæmdir, gjörgæslu-
meðferð verður nánast engin.
Í stórum dráttum, mesti hluti
bráðaþjónustu leggst af og venju-
leg starfsemi spítalans eins og
við þekkjum hana lamast endan-
lega. Þetta er þjónusta sem núna
er veitt þrátt fyrir verkfall svo
það sé á hreinu. Og þó að þú vild-
ir bjarga þessum bráðveiku sjúk-
lingum til útlanda yrði það líka
erfitt þar sem þessir sérfræðing-
ar sjá að mestu um þann flutning.
Af þessari lýsingu mætti halda
að íslenskir læknar og þá sér-
staklega svæfinga- og gjörgæslu-
læknar væru gjörsneyddir allri
ábyrgðar tilfinningu. Nei, því er
einmitt alveg öfugt farið, við telj-
um okkur ekki siðferðilega né fag-
lega fært að horfa upp á að þessu
fársjúka kerfi blæði út án aðgerða.
Fossblæðing
Þessi svokallaða læknadeila snýst
að mínu mati alls ekki um pró-
sentutölur eða samanburð við
aðrar stéttir heldur um hvort ein-
hver vilji er til að stöðva þessa
fossblæðingu og að byrjað sé að
lækna heilbrigðiskerfið okkar á
ný. Aðgerðir lækna snúast um það
hvort læknar haldist á Íslandi og
að tryggja að læknar flytjist heim
til Íslands að loknu námi til að
viðhalda eðlilegri nýliðun og heil-
brigðu heilbrigðiskerfi. Þetta er
ekki flóknara.
Titillinn á þessu bréfi er: Graf-
alvarlegt mál – klínískt eða póli-
tískt. Það er vegna þess að mér
finnst við, þ.e.a.s. þú og ég, hafa
mismunandi skilning á þessu hug-
taki. Þú, að þetta sé fínt innlegg
þegar þú vilt sýna okkur umbjóð-
endum þínum (kjósendum) hversu
áhyggjufullur þú ert þótt þú sért
þá þegar ákveðinn í að bíða af þér
storminn. Í minni starfsstétt þýðir
grafalvarlegt ástand að sjúkling-
urinn minn er í bráðri lífshættu
og það verði að bregðast við strax
(bara til að hafa orðið strax líka
á hreinu, virðist vefjast fyrir
sumum ykkar, þá þýðir það hjá
okkur nú þegar!). Að vísu getur
ástandið verið orðið það alvarlegt
að við náum ekki að bjarga sjúk-
lingnum en þá förum við strax til
aðstandenda og tjáum þeim með
algjörlega sönnum og eins nær-
gætnum hætti og mögulegt er um
yfirvofandi dauða sjúklingsins og
reynum að styðja þá og hugga.
Í hreinskilni, kæri stjórnmála-
maður, þá finnst mér þú hafa tvo
möguleika í stöðunni. Í fyrsta lagi
að stuðla að því með öllum til tækum
ráðum að samið verði við lækna á
þeim grunni að læknar fáist til að
starfa á Íslandi. Í öðru lagi verður
þú í þeirri erfiðu aðstöðu að þurfa
að tilkynna aðstandendum (þjóð-
inni) yfirvofandi andlát (hrun) heil-
brigðiskerfisins.
Með innilegu þakklæti fyrir
áheyrnina og von um hjálp við
fyrri kostinn.
Grafalvarlegt ástand – klínískt eða pólitískt
RÚV
Finnbogi Her-
mannsson
fv. frétta- og dag-
skrárgerðarmaður
og nú rithöfundur í
Hnífsdal
HEILBRIGÐISMÁL
Felix Valsson
svæfi nga- og
gjörgæslulæknir og
þyrlulæknir
➜ Aðgerðir lækna snúast
um það hvort læknar haldist
á Íslandi og að tryggja að
læknar fl ytjist heim til Ís-
lands að loknu námi til að
viðhalda eðlilegri nýliðun …
➜ Hér ætlar hvort tveggja
að verða Íslands óhamingju
að vopni. Ríkisútvarpið er
komið í klefann, það verður
dregið um barkann fyrir jól
eins og horfi r.
FA
S
TU
S
_E
_5
5
.1
2
.1
4
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Brýnt
í jólasteikina
Keramik hnífabrýni
Goursharp Pro
Kr. 5.157,-
Laugavegi 176 Glerártorgi lindesign.is
Íslenski bókapúðinn
Verð 11.840 kr
með fiðurfyllingu