Fréttablaðið - 13.12.2014, Síða 32

Fréttablaðið - 13.12.2014, Síða 32
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 Það eru allar þessar bækur sem gera okkur kleift að búa hérna. Bækurnar og sundlaugarnar. En það er ekkert hlaupið að því að koma bók á framfæri. Guðrún Vilmundardóttir útgáfustjóri Bjarts Án bóka og tónlistar væri Ísland bara risastór verstöð en það er einmitt kannski það sem stjórnvöld vilja? Því ef þeim tekst að drepa bækur og tónlist þá erum við bara vinnudýr. Tómas Hermannsson útgefandi hjá Sögum Við þurfum að vinna hylli lesenda með hverja einstaka bók. Segjum að ég vildi reyna að spilla fyrir þeim í samkeppni, getið þið bent mér á hvernig ég get gert það? Jóhann Páll Valdimarsson útgefandi hjá Forlaginu 40 BÓKAÚTGEFENDUR eru í Félagi íslenskra bókaútgefenda. Til þess að geta gengið í félagið þarf útgefandi að hafa gefi ð út fj óra bókatitla á undan- gengnu útgáfuári. ÍSLENSKUR BÓKAMARKAÐUR gerir þennan bransa svo dásam- legan er að það eru engin höft.“ Jóhann: „Á Íslandi getur hver sem er gefið út bók og komið henni í dreifingu. Erlendis er oft mun erfið- ara og oft ómögulegt að komast inn á sölustaðina.“ Guðrún: „Það er svo mikil feg- urð fólgin í því. Það eru allar þess- ar bækur sem gera okkur kleift að búa hérna. Bækurnar og sundlaug- arnar. En það er ekkert hlaupið að því að koma bók á framfæri.“ Er erfitt að keppa við risann? spyr ég og gjóa augunum til Jóhanns Páls. Guðrún og Tómas kinka kolli. Jóhann: „Ég er algjörlega ósam- mála því vegna þess sem ég var að segja áðan, við erum alltaf með nýja vöru. Af hverju ætti mér að ganga betur þótt Forlagið sé stærra? Við þurfum að vinna hylli lesenda með hverja einstaka bók. Segjum að ég vildi reyna að spilla fyrir þeim í samkeppni, getið þið bent mér á hvernig ég get gert það?“ Tómas: „Já, ég get það. Þið eruð risastór með starfsmenn allt árið í dreifingu og getið dreift á alla staði. Hafið fleiri í markaðsmálum og svo framvegis. Það segir sig sjálft.“ Vont að veðja vitlaust Hér spinnast heitar umræður um einstaka höfunda sem líkt er við grænar baunir vegna fjöldafram- leiðslu, rætt er um hve mikið hver og einn auglýsir og mjög nákvæm dæmi tekin svo greinilegt er að þau fylgjast vel hvert með öðru. Til að ná athygli þeirra aftur blanda ég mér í umræðuna. En var Gísli í Uppsölum, bók sem þú gafst út, Tómas, ekki söluhæsta bókin fyrir tveimur árum? Jóhann: „Einmitt! Þetta snýst um að vera með réttu bókina. Þetta er ekki flóknara.“ Guðrún: „Já, vera með réttu bók- ina og koma því til skila.“ Er þessi bransi þá eins og spilavíti þar sem veðjað er á bækur og allt lagt undir? Tómas: „Já, maður er hardcore spilafíkill.“ Jóhann: „Og auðvitað getur maður veðjað vitlaust. Eitthvað sem maður taldi að yrði pottþétt sölubók næst aldrei á flug en svo er önnur bók sem maður hefur takmarkaða trú á sem selst í þúsundum eintaka eftir marg- ar endurprentanir. Starf okkar felst mikið í að átta sig á hvernig landið er að leggjast og bregðast við.“ Guðrún: „Já, hlusta á hvíslið.“ Bráðsmitandi baktería Þau eru sammála um að enginn fari í þennan bransa til að verða ríkur og Jóhann Páll segir að þá sé nú gáfu- legra að selja grænar baunir. En þrátt fyrir það og álagið sem fylgir starfinu fá þau öll blik í augun þegar þau tala um bókaútgáfu, sérstaklega þá sérstöðu sem bókamarkaður á Íslandi hefur. Guðrún: „Við erum spíttbátar og getum gert hluti hratt. Það hefur sína kosti og galla. Það sem hefur þó breyst er að það er orðin aðeins meiri fyrirhyggja og langtímahugs- un í bransanum.“ Tómas hristir hausinn og segist ekki kannast við það. Tómas: „Þetta er bara heillandi heimur. Það ættu allir að fara í þetta – nema börnin mín.“ Okkur verður litið á Jóhann Pál, sem er sonur útgefanda og á konu og börn sem öll starfa í bransanum, en hann svarar augnatillitinu með: „Þetta er bara smitandi! Þetta er vírus!“ Ég ákveð að ljúka viðtalinu á þessum vinsamlegu nótum. Á meðan við bíðum eftir ljósmyndara er svo metsölulisti vikunnar birtur. Þessi listi er afar mikilvægur þar sem bóksalan mun ná hámarki á næstu dögum. Samkeppnis aðilarnir grúfa sig saman yfir símann hans Tómasar og renna yfir listann. Það kemur nokkurra sekúndu þrúgandi þögn og ég býst við miklum spreng- ingum. En þau eru ótrúlega róleg enda nokkuð sátt við sitt og engin skelfileg áföll. „Ég er glaður,“ segir Tómas og bætir við: „Forlagið getur verið mjög glatt.“ Jóhann getur ekki neitað því en í kjölfarið hefst enn á ný umræðan um risann, auglýsinga- kostnað og grænar baunir. 114 ÚTGEFENDUR standa að baki þeim bókum sem kynntar eru í Bókatíð- indum 2014. 642 PRENTAÐIR TITLAR eru kynntir í Bókatíðindum í ár. Einnig eru 57 raf- bækur og 22 hljóðbækur, eða samtals 721 ný útgáfa. Bóksala hefur dregist saman um 19% frá árinu 2008 ef miðað er við vísitölu. 10% ÞJÓÐARINNAR lásu enga bók á síðasta ári. Hlutfall Íslendinga sem fengu bók í jólagjöf ÁRIÐ 2013 ÁRIÐ 2007 67% 60% VISTHÆFIR BÍLAR Bifreiðar sem uppfylla neðangreindar kröfur teljast visthæfar: a) bifreiðar með brunahreyfil sem gefa frá sér minna en 50 g af koldíoxíði pr. km í blönduðum akstri og með skráða eigin þyngd minni en 1800 kg. b) bifreiðar með brunahreyfil sem gefa frá sér minna en 100 g af koldíoxíði pr. km í blönduðum akstri og með skráða eigin þyngd minni en 1600 kg. c) bifreiðar með brunahreyfil sem ganga fyrir metani og skráð eigin þyngd er minni en 1600 kg. d) bifreiðar sem ganga eingöngu fyrir rafmagni, rafgeymabílar og skráð lengd minni en 5 m. e) bifreiðar sem ganga fyrir vetni og skráð lengd minni en 5 m. Ef bifreið er á nagladekkjum telst hún ekki visthæf. Visthæfum bifreiðum má leggja án endurgjalds í 90 mínútur í gjaldskyld bílastæði borgarinnar og gildir einungis með klukkuskífum útgefnum af Reykjavíkurborg. Ekki er heimilt að framlengja tíma í sama stæði umfram 90 mínútur. Tilkynning frá Reykjavíkurborg vegna breytinga á skilgreiningum á visthæfum bifreiðum. Reglur þessar taka gildi frá og með 1. janúar 2015 og gilda til 31. desember 2016.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.