Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 38
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 38
Hann Ásgeir býr á 12. og efstu hæð í blokk í Kópavogi. „Það er kalt á toppnum,“ gantast hann í dyra-símann við blaða-
mann. Hann býr nánast í flug-
hæð og hefur gluggasýn yfir
fjöllin. Hann er með forláta staf
úr sverðantilópuhorni og skeftið
er úr tönn af vörtusvíni úr einni
af veiðiferðum hans í Namibíu
og í glannalegri jólapeysu, með
plastvasa framan á. Í plastvas-
anum geymir hann iPad og á
skjánum snarkar arineldur.
„Þetta er orðin algjör árátta hjá
mér, þessar jóla peysur,“ segir
hann og býður blaðamanni inn í
íbúð sína sem óhætt er að segja
að sé engin venjuleg blokkaríbúð.
Hann stingur við. Árið 2009 lenti
Ásgeir í alvarlegu flugslysi sem
hann hefur ekki jafnað sig á.
Heimili hans ber því glöggt
vitni að þar býr veiðimaður og af
allra ævintýralegustu gerð. Einn
stofuvegginn hefur hann þakið
með rauðleitum sandi úr Kala-
hari-eyðimörkinni. Í eldhúsinu
hangir uppi rass af vörtusvíni.
Hinum megin við eldhúsvegginn
er höfuð svínsins.
Um alla veggi eru hausar af
dýrum. Þrjár fínlegar antilópur
horfa yfir stofuna, virðulegur og
stór sebrahestur er í höfuðsæti. Í
eldhúsinu risastór grár gnýr. Auk
þess eru ótal myndir og munir
úr veiðiferðum Ásgeirs. Ljós úr
hornum og útskornum strútseggj-
um, spjót, skildir og fagurlega
útskorin viðarhúsgögn.
Skipuleggur veiðiferðir til Namibíu
Þær eru heldur óhefðbundnar
veitingarnar sem hann býður
upp á. Þurrkað antilópukjöt sem
hann hefur fengið að gjöf og hefð-
bundin íslensk jólakaka sem hann
býður blaðamanni að skola niður
með jólaöli. Í einu horni eldhúss-
ins er risavaxin kynlífsdúkka
sem hann segir hafa verið keypta
í gríni. „Ég tek hana með í veiði-
ferðir fyrir veiðifélagana,“ segir
hann og réttir blaðamanni þurrk-
að kjötið. „Þetta er kjarnafæði,
þurrkuð antilópa. Sonur minn vill
fá þetta með sér í nesti í skólann.“
Ásgeir stendur í stórræðum.
Hann byggir sér risastórt hús
í miðri Kalahari-eyðimörkinni
með útisundlaug. Í Namibíu líður
honum vel, þar hefur hann bund-
ist fólki tryggðaböndum og unir
sér við veiðar á villidýrum. Þótt
hann byggi húsið fyrir fjölskyld-
una ætlar hann að skipuleggja
nokkrar veiðiferðir fyrir fólk,
fáa í einu. „Pálmi Gunnarsson
tón listar maður ætlar að fara með
mér og veiða tígurfisk á næst-
unni. Ég vil að fólk njóti þess að
ferðast með mér og skjóta, hvort
sem það er með myndavél eða
byssu. Kalahari-eyðimörkin er
ægifögur og mikil upplifun að
ferðast þangað.“
Fögur og villt náttúra
Ásgeir kynntist Namibíu í flug-
ferðum sínum. Hann hóf störf við
Cargolux árið 1995 og flaug með
félaginu víða um heim. „Ég er enn
skráður til heimilis í Lúxemborg,
þar leigi ég íbúð hjá vini mínum.
Heimili mitt á Íslandi er aðeins
eitt af mörgum heimilum. Ég er
mikill flökkumaður. Ég flaug
með Cargolux allt þar til ég lenti
í flugslysi 2009. Oft var flogið til
Afríku og stoppað í nokkra daga.
Þá vildi ég nota tímann og í stað
þess að hanga á hóteli og horfa á
sjónvarpið fór ég á veiðar.“
Sveinbjörn Bjarnason flug-
stjóri kynnti hann fyrir Oujan
Van Wyk, bónda í ferðaþjónustu,
og nú byggir hann lúxushús sitt á
landi hans. „Þetta er bara eins og
að eiga sumarhús fyrir austan,“
segir Ásgeir og segir tilkostnað-
inn ekki meiri. Byggingarkostn-
aður sé ekki hár í Namibíu. „Það
er bæði gott og öruggt að dvelja
þarna, þeir sem koma þarna með
mér verða undrandi á því hversu
mikil líkindi eru með Evrópu og
Namibíu. Glæpir eru fátíðir og
fólkið gott. Og náttúran, hún er
engu lík. Fögur og villt.“
Hann sýnir blaðamanni ljós-
myndir af byggingu hússins og
hugmyndir sínar um frekari
innan hússhönnun. Hann hefur
fest kaup á dýrindis ljósakrónu úr
hornum sem verður skreytt með
strútseggjum. Úti verður sund-
laug sem hægt verður að kæla sig
niður í eftir veiðar dagsins.
Eins og Jurassic Park
Í stofunni er hattastandur með
þremur vígalegum veiðihöttum
úr antilópuskinni. Á standinum er
uppstoppuð grænkemba (iguana-
eðla). Ansi vígaleg. „Íbúðin mín
var einu sinni eins og Jurassic
Park. Þetta er hann Illugi. Ég lét
stoppa hann upp. Konan var ofsa-
lega hrædd við hana,“ segir hann
frá og nefnir atvik þar sem eðlan
slapp út og gekk berserksgang.
Hún komst upp í gluggasyllu og
þar óx henni ásmegin og ruddi
niður vösum. „Bitið í þessu er svo
öflugt. Ef hann hefði verið kven-
kyns þá hefði ég nefnt hann Berg-
ljótu,“ segir hann og glottir við.
Hann mátar einn hattinn fyrir
ljósmyndara og býðst svo til að
sýna þau vopn sem eru á heim-
ilinu. Sýnir boga sem hann er
byrjaður að prófa að veiða með.
Vopnin geymir hann í læstum
skáp í þvottahúsinu. Hann opnar
bogatöskuna í svefnherberginu,
þar eru líka ótal uppstoppaðir
fuglar, uglur og hrafnar. Hann
spennir bogann og sýnir hand-
tökin. Hann tekur líka upp hrein-
dýrabyssuna sem er vígaleg. „Því
miður er aðalbyssan mín úti, ég
hefði viljað sýna ykkur hana.“
Tekur synina með
Allir veggir heimilis hans virðast
skreyttir framandi dýrum. Ásgeir
segir veiðarnar fjölbreyttar. Hann
veiðir helst antilópur, sebrahesta
og vörtusvín í Afríku. Hér heima
fer hann í lax og silung, hreindýr
og fuglaveiðar. Hver er erfiðasta
veiðin? „Ég veit það ekki, ekk-
ert kemur upp í hugann. Það er
íslenska rjúpan sem er erfiðast að
veiða,“ segir hann og skellir upp
úr. En mest framandi?
Það er bæði gott og
öruggt að dvelja þarna,
þeir sem koma þarna með
mér verða undrandi á því
hversu mikil líkindi eru
með Evrópu og Namibíu.
Glæpir eru fátíðir og fólkið
gott. Og náttúran, hún er
engu lík. Fögur og villt.
Íbúðin mín var einu
sinni eins og Jurassic Park.
Þetta er hann Illugi. Ég lét
stoppa hann upp. Konan var
ofsalega hrædd við hana.
Þetta er kjarnafæði,
þurrkuð antilópa. Sonur
minn vill fá þetta með sér í
nesti í skólann.
➜ Margir Íslendingar hafa starfað í Namibíu
Namibía
Windhoek Botsvana
Sambía
Suður-Afríka
Angóla
★
Namibía er stórt land.
Um 825.000 m2
Íbúarnir eru
um 2,1 milljón
7% þjóðarinnar
eru hvítir
Árið 1990 varð Namibía
sjálfstætt ríki
Landamærin liggja að
Angóla, Sambíu,
Botsvana og Suður-Afríku.
Fiskveiðar og vinnsla á fiski er vaxandi iðngrein í Namibíu og
hafa margir Íslendingar starfað í landinu að þróun iðnaðarins.
Veiðir villt dýr og byggir sér
hús í Kalahari-eyðimörkinni
Ásgeir Guðmundsson flugstjóri er með þekktari og ævintýralegustu veiðimönnum landsins. Hann stundar veiðar í
Namibíu og þar byggir hann sér lúxushús í miðri Kalahari-eyðimörkinni. Hann tekur unga syni sína oft með í veiðiferðir.
EKKERT VENJULEGT HEIMILI Ævintýramaðurinn Ásgeir Guðmundsson býr á 12.hæð í blokk en heimili hans er engin venjuleg blokkaríbúð. Hér á myndinni má sjá eðluna
Illuga sem hann stoppaði upp. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjanabjorg@frettabladid.is