Fréttablaðið - 13.12.2014, Side 65
atvinna Allar atvinnuauglýsingar vikunnar á visir.isSÖLUFULLTRÚAR Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441
Framkvæmdastjóri þróunarverkefna
Umsóknarfrestur er til og með 12. janúar 2015. Nánari upplýsingar um starfið veita Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) og Ari
Eyberg (ari@intellecta.is) hjá Intellecta í síma 511 1225. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Umsókn um starfið þarf að fylgja
ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Aurora velgerðasjóður var stofnaður 23.
janúar 2007 að frumkvæði hjónanna
Ingibjargar Kristjánsdóttur landslags-
arkitekts og Ólafs Ólafssonar, stjórnar-
formanns Samskipa.
Megintilgangur sjóðsins er að stuðla að
og styrkja menningar- og velgerðamál
á Íslandi og erlendis. Frá stofnun hefur
sjóðurinn og stofnendur hans veitt yfir
600 milljónir króna að jöfnu til verkefna
á Íslandi og í Afríku, einkum til Sierra
Leone. Fram til þessa hefur mestur hluti
þróunaraðstoðar sjóðsins verið í samstarfi
við UNICEF, en yfir 66 skólar hafa verið
byggðir í Sierra Leone, tæplega 300
kennarar notið aðstoðar o. fl. Í Malavi
byggði Aurora sérstaka sjúkraálmu fyrir
börn. Þess utan hefur sjóðurinn styrkt
fjölda smærri verkefna.
Nánari upplýsingar um sjóðinn má finna á
heimasíðu hans www.aurorafund.is
Aurora velgerðasjóður hyggst ráðast í nokkur metnaðarfull verkefni í Sierra Leone á komandi
misserum. Til að stýra þróunarverkefnum Aurora er leitað að framkvæmdastjóra sem sér um
daglega stjórnun þessa verkefnis.
Staðan heyrir beint undir stjórnarformann sjóðsins. Stjórn sjóðsins er skipuð fjórum einstaklingum,
öllum búsettum erlendis. Framkvæmdastjórinn hefur aðsetur í Lausanne í Sviss en dvelur að jafnaði
um 6 mánuði á hverju ári í Sierra Leone.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Þekking og reynsla af aðferðafræði
verkefnastjórnunar
Mjög góð enskukunátta er mikilvæg
Reynsla af stjórnunarstörfum
Mjög góð samskiptahæfni
Aðlögunarhæfni, frumkvæði og öguð
vinnubrögð
Þekking og reynsla af þróunarsamvinnu
er til bóta
ráðgjöf ráðningar rannsóknir
Intellecta, Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225
Starfssvið:
Dagleg stjórnun og rekstur verkefnisins
Undirbúningur, eftirlit og eftirfylgni með
framkvæmd verkefna
Áætlanagerð
Skýrslur og greinargerðir
Samskipti við stjórnvöld og stofnanir á
ýmsum stjórnsýslustigum í Sierra Leone
Samvinna og samskipti við framkvæmda-
aðila þróunarverkefna og hagsmunaaðila
Samskipti og samvinna við fulltrúa annarra
veitenda þróunaraðstoðar
Kjörið tækifæri fyrir einstakling sem hefur náð góðum árangri í starfi og langar að takast á við nýjar áskoranir
á sviði þróunarmála á erlendri grund.
Gagnaveita Reykjavíkur auglýsir laust til umsóknar starf framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Leitað er að reyndum stjórnanda og leiðtoga sem
hefur eldmóð og áhuga til að stýra Gagnaveitunni inn í nýja tíma.
Gagnaveitan er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur og á hún og rekur
umfangsmikið ljósleiðarakerfi á Suðvesturlandi. Starfsmenn eru 30
talsins og ársvelta stefnir í tvo milljarða króna.
Starfssvið framkvæmdastjóra:
Stýrir daglegum rekstri fyrirtækisins og gætir jafnvægis milli
samfélagslegra, fjárhagslegra og umhverfislegra sjónarmiða.
Hrindir í framkvæmd stefnu fyrirtækisins og framtíðarsýn.
Ber ábyrgð á áætlanagerð, eftirfylgni áætlana, gæðastjórnun,
fjármálastjórnun og þekkingar- og starfsmannastjórnun.
Ber ábyrgð á framkvæmdum á vegum fyrirtækisins
og öryggismálum starfsmanna.
Ber ábyrgð á samskiptum við viðskiptavini, starfsmenn,
birgja og aðra hagsmunaaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Þekking á sviði fjarskiptamála er kostur.
Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur.
Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar auk færni í að móta
og innleiða framtíðarsýn.
Hæfni í að styðja öflugan hóp samstarfsmanna til ábyrgðar og nýta
hæfileika allra starfsmanna með samráði og upplýsingaflæði.
Samskipta- og tjáskiptahæfileikar, greiningarhæfni, metnaður,
frumkvæði og heilindi.
Sótt er um starfið á ráðningarsíðu Gagnaveitu Reykjavíkur, starf.or.is/gagnaveitan.
Umsóknarfrestur er til og með 5. janúar 2015.
Umsjón með úrvinnslu umsókna hefur Sólrún Kristjánsdóttir, starfsmannastjóri, sem veitir
nánari upplýsingar á: starf@gagnaveita.is.
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Bæði konur og karlar
eru hvött til að sækja um starfið.
VIÐ LEITUM AÐ
FRAMKVÆMDASTJÓRATENGIR ÞÚ
VIÐ OKKUR?
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A