Fréttablaðið - 13.12.2014, Qupperneq 72
| ATVINNA |
www.tskoli.is
Skólaliði óskast
við Tækniskólann
Áhugasamir sendi inn umsókn ásamt ferilskrá
á gsi@tskoli.is merkt „Skólaliði“ fyrir 4. janúar 2015.
Starfssvið skólaliða er fjölbreytt þjónusta við nemendur
og starfsfólk skólans. Meðal verkefna er að hafa umsjón
með ræstingu og viðhaldi, sem og að huga að öryggi
nemenda og húsnæðis.
Staða félagsráðgjafa
hjá Mosfellsbæ
Auglýst er laus til umsóknar staða félagsráðgjafa
við barnaverndar- og ráðgjafardeild fjölskyldusviðs
Mosfellsbæjar.
Barnaverndar- og ráðgjafardeild er önnur tveggja deilda
fjölskyldusviðs samkvæmt nýju skipuriti. Helstu verkefni
deildarinnar eru barnaverndarmál, félagsleg ráðgjöf,
fjárhagsaðstoð, forvarnir og fræðsla. Í Mosfellsbæ búa
um 9.500 íbúar og eru börn og unglingar fjölmennur
aldurshópur.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Nám í félagsráðgjöf og starfsréttindi í greininni
er skilyrði.
• Framhaldsmenntun er kostur.
• Þekking og reynsla af vinnu við barnavernd
og félagsþjónustu er skilyrði.
• Frumkvæði, metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Lipurð í mannlegum samskiptum.
• Hæfni til að tileinka sér nýjungar.
• Góð alhliða tölvukunnátta.
Umsóknarfrestur er til og með 29. desember 2014.
Gott væri ef umsækjandi gæti hafið störf í janúar.
Umsókn ásamt ferilskrá og kynningarbréfi með
rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skal send á netfangið
mos@mos.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Ósk B. Filippíudóttir
deildarstjóri barnaverndar- og ráðgjafardeildar.
Netfang bof@mos.is og sími 525-6700.
Laun eru skv. kjarasamningi Félagsráðgjafafélags
Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Mosfellsbæjar eru karlar
jafnt sem konur hvattir til að sækja um starfið.
Tæknimaður
Multivac A/S á Íslandi selur og þjónustar Multivac
pökkunarvélar ásamt því að vera sölu og þjónustuaðili
hjá mörgum leiðandi vélaframleiðendum í matvælaiðnaði
sem eru í samstarfi við Multivac á heimsvísu.
Við leitum að sérhæfðum tæknimanni, helst með
menntun í rafvirkjun, vélfræði eða sambærilegum iðnaði.
Umsækjandi þarf helst að hafa 2-4 ára starfsreynslu í
rafvirkjun og/eða viðhaldsvinnu við framleiðsluvélar.
Viðkomandi þarf að vera metnaðarfullur og lausna-
miðaður með góða þjónustulund. Nauðsynlegt er að
umsækjandi hafi gott vald á enskri tungu í ræðu og riti.
Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini og
vinnu á vettvangi. Þjónustan er talsvert sérhæfð og í
upphafi er unnið í nánu samstarfi við aðra starfsmenn
félagsins, bæði hér heima og erlendis. Viðkomandi þarf
að vera tilbúin að ferðast því starfsþjálfun fer að hluta til
fram erlendis.
Í boði er starf hjá metnaðarfullu alþjóðlegu fyrirtæki í
stöðugri framþróun. Áhugasamir sendið starfsumsókn
og ferilskrá á magnus.sigurdsson@is.multivac.com
Kaldrananeshreppur auglýsir
laust starf á leikskólanum
Drangsnesi.
Leikskólakennaramenntun æskileg.
Allar upplýsingar í síma 451 3277
Norlandair auglýsir eftir flugmönnum til starfa á Twin Otter
og flug á B200 King Air með aðsetur á Akureyri.
Umsóknir óskast sendar á skj@norlandair.is eigi síðar en 22. desember 201 .
.
Hæfniskröfur
• Gilt Atvinnuflugmannsskírteini
• Gild Blindflugsáritun (IR)
• Gild fjölhreyflaáritun (MEP)
• Hafa lokið námskeiði í áhafnasamstarfi (MCC)
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Lágmarkstímakröfur flugmanns eru 500 heildarflugstundir
Eftirfarandi þarf að fylgja umsókninni
• Afrit af flugskírteini
• Afrit af heilbrigðisvottorði
• Afrit af sakavottorði
• Afrit af einkunnum bóklegs atvinnuflugnáms
• Sundurliðun á flugtímum og afrit af síðustu 100 klst. úr loggbók
• Ferilskrá (CV)
Norlandair er flugfélag á Akureyri. Félagið leggur áherslu
á leiguflug á Grænlandi ásamt því að sinna áætlunarflugi
frá Akureyri til Vopnafjarðar, Þórshafnar, Grímseyjar og
Constable Pynt á Grænlandi.
www.gardabaer.is
AÐSTAÐA FYRIR
SJÚKRAÞJÁLFARA OG
TENGDA STARFSEMI
Garðabær auglýsir hér með eftir
umsóknum frá áhugasömum aðilum til
að koma að nýtingu á nýrri aðstöðu fyrir
sjúkraþjálfun á Ísafold, hjúkrunarheimili
og þjónustumiðstöð í Garðabæ.
Sjúkraþjálfari hjúkrunarheimilisins nýtir
aðstöðuna að hluta.
Aðstaðan er 215m² að stærð og skiptist
í vel búinn tækjasal, hreyfisal, tvö
meðferðarherbergi og búningsklefa.
Húsnæðið verður til sýnis fimmtudaginn
18. desember milli kl. 13:00 – 15:00 og
þriðjudaginn 6. janúar milli kl.13:00 –
15:00.
Áhugasamir geta sótt sér kynningar-
gögn á heimasíðu Garðabæjar,
www.gardabaer.is. Skila skal
umsóknum til Þjónustuvers Garðabæjar,
Garðatorgi 7, 210 Garðabæ eigi síðar en
9. janúar 2015 kl. 12:00.
kopavogur.is
Kópavogsbær
Spennandi störf
hjá Kópavogsbæ
Leikskólar
· Leikskólakennari á Læk
· Sérkennari eða þroskaþjálfi í Fífusali
Grunnskólar
· Starfsfólk í dægradvöl í Vatnsendaskóla
· Íþróttakennari við Vatnsendaskóla
· Forfallakennari í Kársnesskóla
· Þroskaþjálfi í Hörðuvallaskóla
· Skólaliðar og dægradvöl í Hörðuvallaskóla
Velferðarsvið
· Starfsfólk á heimili og hæfingarstöð fyrir
fatlað fólk
· Starfsmenn á heimili fatlaðs fólks
Nánari upplýsingar og fleiri störf er að finna á
vef Kópavogsbæjar
Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Vakin er athygli á að öll laus störf hjá bænum
eru auglýst www.kopavogur.is
13. desember 2014 LAUGARDAGUR8