Fréttablaðið - 13.12.2014, Síða 75
ÚTBOÐ
Sveitarfélagið Árborg óskar eftir tilboðum í:
„Endurgerð Tryggvagötu 2015“.
Verklok eru 1. ágúst 2015.
Verkið felur í sér endurgerð á Tryggvagötu, þverun hennar
yfir Austurveg (þjóðveg 1) og áfram til suðurs á um 200m
löngum kafla. Skipta skal um jarðveg í götunni og endurnýja
allar lagnir þ.m.t. fráveitu, vatnsveitu, hitaveitu, rafveitu og
fjarskiptalagnir. Leggja skal burðarlög og malbik, ásamt
kantsteinum, gangstéttum og hraðahindrunum.
Helstu magntölur eru:
- Gröftur 6.800 m3
- Fleygun 1200 m3
- Neðra burðarlag 6.800 m3
- Fráveitulagnir 590 m
- Hitaveitulagnir 340 m
- Vatnsveitulagnir 300 m
- Malbikun 2.300 m2
Útboðsgögn verða afhent á rafrænu formi frá og með
miðvikudeginum 17. des. 2014. Þeir sem hyggjast gera tilboð
í verkið skulu hafa samband við Auði Guðmundsdóttur í síma
4801500, eða með tölvupósti á audurg@arborg.is. Gefa þarf
upp nafn, heimilisfang, síma og netfang og fær viðkomandi í
kjölfarið send útboðsgögn í tölvupósti. Tilboðum skal skilað
til framkvæmda-og veitusviðs Árborgar, Austurvegi 67,
fyrir kl:11:00 miðvikudaginn 14. janúar 2015, en þá verða þau
opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Framkvæmda og veitusvið Árborgar
Rangárþing ytra
Verðlaunaafhending vegna hugmyndasam-
keppni um deiliskipulag og hönnun á Land-
mannalaugasvæðinu
Sveitarfélagið Rangárþing ytra, í samvinnu við Umhverfis-
stofnun og Félag íslenskra landslagsarkitekta (FÍLA), efndi
til samkeppni um skipulag og hönnun Landmannalauga-
svæðisins.
Dómnefnd hefur nú lokið störfum sínum og munu niðurstöð-
ur verða kynntar miðvikudaginn 17. desember n.k. kl. 17.00 í
húsakynnum Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1-3, Hellu,
2. hæð. Veitt verða verðlaun fyrir vinningstillögu.
Um forvalssamkeppni var að ræða þar sem 4 teymi unnu
hvert að sinni tillögu. Þær verða hengdar upp til sýnis og
kynningar.
Ferðaþjónustuaðilar, fagfólk, fjölmiðlar og áhugafólk er hvatt
til að koma og fagna þess¬um mikilvæga áfanga sem nú
hefur náðst.
f.h. verkkaupa
Ágúst Sigurðsson,
Sveitarstjóri Ranárþings ytra
Innkaupadeild
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Strandblakvöllur í Laugardal,
útboð nr. 13368
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/utbod
Til leigu
Laxdalshús á Akureyri
Laxdalshús er elsta
hús bæjarins, byggt
1795. Akureyrarbær
eignaðist húsið 1942.
Það var friðað árið
1978 og endurbyggt
í upphaflega mynd.
Laxdalshús er af
svokallaðri dansk-
íslenskri húsagerð eins og fyrstu húsin sem byggð voru á
Akureyri. Húsið var reist sem íbúðarhús en hefur þjónað
hlutverki veitingareksturs, skrifstofuhúsnæðis og sýninga-
halds undanfarin ár. Stærð hússins er 134 m² og við það
stendur 18 m² skúr.
Áhugasamir skili hugmyndum sínum um notkun á húsinu
til Fasteigna Akureyrarbæjar í Ráðhúsinu að Geislagötu 9,
4. hæð fyrir 14. janúar 2015.
Nánari upplýsingar í síma 460 1128
eða í gegnum netfangið dora@akureyri.is
Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta
á fiskveiðiárinu 2014/2015 sbr. reglugerð
um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa
nr. 652, 4. júlí 2014
Auk reglugerðarinnar er vísað til sérstakra úthlutunar-
reglna í neðanskráðum byggðalögum sbr. auglýsingu
nr.1067/2014 í Stjórnartíðindum.
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um byggðakvóta til
fiskiskipa fyrir:
Langanesbyggð (Þórshöfn og Bakkafjörður)
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu ásamt samningi við
vinnsluaðila, á eyðublöðum sem er að finna á heimasíðu
stofnunarinnar (fiskistofa.is), og þar eru ofangreindar
reglur einnig aðgengilegar.
Umsóknarfrestur er til og með 29. desember 2014.
Fiskistofa, 12. desember 2014.
Reykjavíkurborg s. 411 11 11
Ráðhús Reykjavíkur Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar
Jarðvegsframkvæmdir á Hlíðarendareit hefjast á næsta
ári. Á framkvæmdatíma næstu 4 – 6 ár er gert ráð
fyrir að flytja þurfi á brott allt að 500.000 rúmmetra
af jarðvegi, einkum mómold. Inn á svæðið verður flutt
burðar- og fyllingarefni.
Til að leysa þetta verkefni með vistvænum og hag-
kvæmum hætti er óskað eftir samstarfi um útvegun og
flutning á efni inn og út af svæðinu. Annars vegar við
þá sem geta útvegað burðarhæft efni í undirfyllingar
og hins vegar við þá sem geta tekið við efni til jarð-
vegsfyllingar t.d. í hljóðmanir, garða, golfvelli o.fl.
Allir kostir koma til greina hvað varðar magn og teg-
undir efna og verður öllum svarað. Valkostum verður
stillt upp eftir hagkvæmi og tímaröð.
Nánar á reykjavik.is/hlidarendabyggd
Samstarf um
jarðvegsskipti
Jarðvegsframkvæmdir
Velferðarsvið
Tilkynning frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Greiðsla fjárhagsaðstoðar
frá Reykjavíkurborg
Klettás 17
210 Garðabær
Fallegt 6 herbergja raðhús
Stærð: 188,4 fm
Fjöldi herbergja: 6
Byggingarár: 2002
Fasteignamat: 49.700.000
Bílskúr: Já
Verð: 59.900.000
LÆKKAÐ VERÐ!
RE/MAX LIND KYNNIR: Mjög falleg og vel skipulagt 6 herbergja (4-5 svefnherbergi) raðhús við Klettás
17 í Ásahverfi Garðabæjar.
Lind
Hannes Steindórs
Lögg. fasteignasali
Gunnar Valsson
Sölufulltrúi
hannes@remax.is
gv@remax.is
RE/MAX Lind - Hlíðasmára 6 - 201 Kópavogur - Sími: 5107900 - www.remax.is
699 5008
699-3702
Save the Children á Íslandi
| ATVINNA | LAUGARDAGUR 13. desember 2014 11