Fréttablaðið - 13.12.2014, Page 108
13. desember 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 72TÍMAMÓT
Lárus Halldór Grímsson, tónskáld og
skólastjóri Skólahljómsveitar Vestur-
og Miðbæjar, fagnar stórafmæli í dag
en hann er fæddur 13. desember árið
1954 og er því sextugur í dag.
Lárus Halldór fagnar afmælinu með
vinum og samstarfsfólki sem hann
býður til veislu í kvöld. „Það verður
partí, þetta verður svona aðallega með
núverandi og fyrrverandi samstarfs-
fólki og fjölskyldu.“ En hann tekur
afmælinu fagnandi enda ekkert annað
í stöðunni að hans sögn.
Allur gangur er á því hvort Lárus
Halldór heldur upp á afmælið en þegar
stórafmæli er í vændum er tilefni til
þess að fagna.
„Þetta verður nú svona stærra í
sniðum núna. Það verða þarna marg-
ar hljómsveitir sem ég hef verið að
spila með í gegnum tíðina. Við ætlum
að rifja upp gamla takta félagarnir,“
segir Lárus Halldór, sem var í óðaönn
við undirbúning afmælisins.
Lárus Halldór hefur í gegnum tíðina
spilað með fjölmörgum hljómsveitum.
Sem dæmi má nefna hljómsveitina
Þokkabót sem vakti mikla athygli fyrir
þýðingu á laginu Litlir kassar eftir
Peter Seeger. Lagið er á fyrstu plötu
hljómsveitarinnar, Upphafið, sem kom
út árið 1974. Auk þess var Lárus Hall-
dór meðlimur í Eik, Þursaflokknum og
MX-21 ásamt Bubba Morthens.
Lárus Halldór hefur komið víða við
á tónlistarsviðinu en auk þeirra hljóm-
sveita sem hann hefur leikið með hefur
hann samið mikið efni fyrir sjónvarp,
kvikmyndir og leikhús.
Fyrstu skrefin í tónlistinni tók
hann í skólahljómsveitinni sem hann
stjórnar nú sjálfur en þar hóf hann
nám á þverflautu tíu ára gamall. Árið
1971 hóf Lárus Halldór áframhald-
andi tónlistarnám við Tónlistarskól-
ann í Reykjavík. Síðar lá leið hans til
Hollands í skólann Institut voor sono-
logi í Utrecht og lauk námi þaðan árið
1984 en hélt áfram störfum við stofn-
unina að námi loknu.
Lárus Halldór er, líkt og áður sagði,
skólastjóri við Skólahljómsveit Vest-
ur- og Miðbæjar og tók við starfi
skólastjóra árið 1994 auk þess sem
hann kennir á þverflautu, klarínett og
saxófón. „Ég var í þessari skólahljóm-
sveit sjálfur og tók við henni af Páli
Pampichler Pálssyni,“ segir Lárus
Halldór og bætir við að honum finn-
ist gaman að starfa með unga fólkinu í
hljómsveitinni. gydaloa@frettabladid.is
Rifj ar upp gamla takta
Lárus Halldór Grímsson heldur upp á sextugsafmælið með fj ölskyldu og samstarfs-
félögum. Fjöldi hljómsveita sem hann hefur leikið með í gegnum tíðina mun taka þátt.
STÓRAFMÆLI Lárus Halldór Grímsson fagnar sextugsafmælinu með samstarfsfólki og fjöl-
skyldu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þetta verður nú
svona stærra í
sniðum núna. Það
verða þarna margar
hljómsveitir sem ég
hef verið að spila
með í gegnum
tíðina. Við ætlum að
rifja upp gamla takta
félagarnir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
sambýliskonu minnar og ættmóður okkar,
STEINUNNAR ÞORSTEINSDÓTTUR
NENNU
Háaleitisbraut 37, Reykjavík,
er lést miðvikudaginn 19. nóvember sl. á gjörgæsludeild
Landspítalans í Fossvogi. Sérstakar þakkir til Viðars
Magnússonar gjörgæslulæknis, starfsfólks deildanna E6
og A6 Landspítala í Fossvogi, starfsfólks Heimahlynningar
í Háaleitishverfi og þá sérstaklega Dagnýjar Jóhannsdóttur.
Geir Ragnar Gíslason
Arnlín Þuríður Óladóttir Magnús Rafnsson
Óli Jón Ólason Guri Hilstad Ólason
Elín Sigríður Óladóttir Heimir Heimisson
Guðrún M. Ó. Steinunnardóttir Guðni Kristinsson
Þorsteinn Gísli Ólason Halla Björk Magnúsdóttir
Ágúst Ólason
ömmubörn og langömmubörn.
Systir okkar og frænka,
NÍNA ÍSBERG
andaðist mánudaginn 8. desember
á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útför
hennar fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 16. desember kl. 15.00.
Ásta Ísberg
Arngrímur Ísberg
systkinabörn og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýju við
andlát og útför
ÞORVALDAR HEIÐDAL JÓNSSONAR
fyrrum bónda á Tréstöðum,
Víðilundi 16a, Akureyri.
Kærar þakkir til starfsfólks Aspar- og
Beykihlíðar og þakklæti til þeirra sem
heimsóttu hann og reyndu að stytta honum
stundirnar.
Þórunn Jóhanna Pálmadóttir
börn, tengdabörn, afa- og langafabörn stór og smá.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
PÁLL M. AÐALSTEINSSON
bifreiðastjóri,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. desem-
ber. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Björn S. Pálsson Hrafnhildur Njálsdóttir
Anna Lilja Pálsdóttir Arnþór Ævarsson
Sæmundur Pálsson Elín Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is
Ástkær móðir okkar, dóttir og systir,
BERGLIND EIÐSDÓTTIR
Foldahrauni 42, Vestmannaeyjum,
sem andaðist 6. desember, verður
jarðsungin frá Landakirkju
laugardaginn 20. desember kl. 14.00.
Alexander Freyr Brynjarsson
Engilbert Egill Stefánsson
Sigurborg Engilbertsdóttir
Marín Eiðsdóttir
MERKISATBURÐIR
1545 Kirkjuþingið í Trent hefst. Kaþólska kirkjan ákveður á
þinginu að berjast gegn umbyltingu í trúarmálum.
1643 Orrustan um Alton í enska borgarastríðinu hefst.
1939 Orrustan um River
Plate, fyrsta sjóorrustan í
síðari heimsstyrjöldinni,
hefst.
1959 Erkibiskupinn Makar-
ios er kjörinn fyrsti forseti
Kýpur.
1974 Evrópuríkið Malta
verður lýðræðisríki.
1996 Kofi Annan er kjör-
inn ritari Sameinuðu þjóð-
anna.
2003 Mest sótti körfubolta-
leikur sem háður hefur verið
fer fram í Bandaríkjunum,
á milli Michigan-háskóla og
Kentucky-háskóla.
Sautján ára piltur kom móður sinni til
bjargar þennan dag árið 2011 þegar
kviknaði í fötum hennar á heimili þeirra
í Fagrahjalla í Kópavogi.
Konan var að kveikja upp í svoköll-
uðum etanólarni þegar sprenging varð
og eldur læsti sig í húsgögn og fatnað
konunnar. Sonurinn náði að slökkva
í logandi fötum hennar áður en hún
brenndist meir en raunin varð. Hann
hringdi á slökkvilið og náði móður sinni
út úr húsinu sem skemmdist mikið í
brunanum. Greiðlega gekk að ráða niður-
lögum eldsins.
Konan sem var á sextugsaldri var flutt á
slysadeild Landspítalans þar sem gert var
að sárum hennar. Verstu brunasárin voru
á hægri hönd hennar og hluta af andliti.
ÞETTA GERÐIST: 13. DESEMBER 2011
Bjargaði móður sinni úr bruna