Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 28
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SKOÐUN | 28 Á dögunum vakti ég athygli á mikilvægi þess að fjöl- breytt atvinnustarfsemi fái að þrífast hér landi. Líta þurfi til hagsmuna neyt- enda frá viðara sjónarhorni en vöruverði eingöngu. Þó mögulegt sé að kaupa vörur í erlendum netverslunum á lægra verði en býðst hér á landi þá þjónaði það betur hagmunum íslenskra neyt- enda að skipta við innlend- ar verslanir vegna þeirra heildaráhrifa sem það hefði á hag- kerfið. Sagði ég að sömu rök eiga við um íslenskan landbúnað. Við getum, ekki frekar en verslunin, keppt við aðila í löndum þar sem laun eru umtalsvert lægri en hér. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, Ólafur Stephensen, brást við grein minni og sagði engin rök vera fyrir stuðn- ingi stjórnvalda við inn- lendan svínabúskap með því að leggja tolla á inn- fluttar kjötafurðir. Hann virðist því hafa horft framhjá þeirri röksemd að land- búnaður væri mikilvægur þáttur í íslensku hagkerfi með öllum þeim störfum og afleiddri veltu sem hann skilar. Neikvæð mynd Þá ruglar Ólafur saman ýmsum atriðum í þeim ásetningi sínum að draga upp neikvæða mynd að íslensk- um svínabændum sem hann segir stunda búsakap í „fáeinum umsvifa- miklum fyrirtækjum í stórum iðn- aðarskemmum, mest á innfluttu fóðri“. Íslenskur svínabúskapur fer að mestu fram á fjölskyldubúum og yrði líklega skilgreindur sem heimil- isbúskapur í samanburði við þau bú sem Ólafur vill að mögulegt verði að flytja inn kjöt frá. Má nefna í þessu sambandi að Ríkissjónvarpið sýndi nýlega sláandi heimildarmynd um grísaflutninga innan Evrópusam- bandsins þar sem allri dýravelferð er fórnað fyrir hagræðissjónarmið. Þá er rétt að fram komi að hlutfall inn- lends fóðurs í svínabúskap á Íslandi hefur aukist verulega á undanförn- um árum og eru grísir á nokkrum svínabúum að verulegu leyti aldir á innlendu korni og má búast við að það aukist enn frekar á næstu árum. Hagsmunasamtök í verslun og inn- flutningi hafa að undanförnu beitt sér gegn í íslenskum landbúnaði í opinberri umræðu undir því yfir- skyni að þeir séu að gæta hagsmuna neytenda. Félag atvinnurekenda og Samtök verslunar og þjónustu starfa ekki með hagsmuni neytenda í fyrir- rúmi heldur er tilgangur þeirra að gæta hagsmuna umbjóðenda sinna. Því þarf að hafa það í huga þegar fulltrúar þeirra tjá sig um landbún- að að umbjóðendur þeirra vilja auka arðsemi sína með því að flytja inn vöru af svæðum þar sem laun og aðbúnaður dýra er langt undir þeim viðmiðum er við höfum hér á landi. Þeir sem hafa beina peningalega hagsmuni af þessu eiga því að koma til dyranna eins og þeir eru klædd- ir fremur en að látast vera sérstakir varðmenn neytenda. Komum til dyranna eins og við erum klædd GEÐORÐIN 10 Grein 4 Greinin er fjórða greinin af tíu í greinarröð jafn margra úrræða og/eða félaga á geðheilbrigðissviðinu á höfuð- borgarsvæðinu um Geðorðin 10. Flest okkar gegna mörgum, ólík- um hlutverkum á sama tíma. Við erum börn, makar, foreldr- ar, starfsmenn og vinir og höfum skyldum að gegna á heimilinu, í vinnunni, í skólanum, félagslífinu og víðar úti í samfélaginu. Því er ekkert skrítið að lífið virðist stundum vera óendanlega flókið og verkefnin yfirþyrmandi. Við getum þó ekki kvartað yfir því að enginn sýni vanda okkar áhuga. Úr öllum áttum dynja skilaboð um hvernig við eigum að lifa lífinu til að ná „hámarks“ árangri og til hvaða lausna hægt sé að grípa til að leysa vandann strax. Skyndibitakeðjur bjóða skyndibita á kostakjörum til að seðja sárasta hungr- ið. Heilsugúrúar bjóða bætiefni og megrunarkúra til að bæta heilsuna fyrir jólin. Kunningjarnir bjóða í glas og jafnvel í nös til að létta lundina og gleyma „baslinu“ þó ekki sé nema um stundarsakir. Öll þessi tilboð eru skyndilausnir. Sumar valda meira að segja meiri skaða en ágóða. Vímuefni ylja um hjarta- rætur í augnablik áður en þau kalla á meiri neyslu og svipaða sögu eru að segja um hin tilboð- in. Vítahringur verður til og getur snúist upp í örvilnan. Hvað er þá til ráða? Svarið er í rauninni ofur einfalt. Besta leiðin til að stuðla að jafnvægi og bættri líðan á sál og líkama er að leggja áherslu á þrennt í lífi sínu: hollt mataræði, hreyfingu og jákvætt hugarfar. Nú kann einhver að segja: Er ekki hollt mat- aræði bara klisja? „Já, kannski en verða ekki klisjur einmitt vegna þess að margir sjá ástæðu til að hamra á gildi þeirra?“ Reglulegt, fjölbreytt og hollt mataræði með áherslu á afurðir nærri rótunum í náttúru- og dýraríkinu stuðla sannarlega að betri líðan. Hreyfing hefur ótvírætt gildi fyrir líkamlega og andlega heilsu. Óþarfi er að kaupa aðgangskort í dýrar líkamsræktarstöðvar til að stunda hreyfingu. Hlaup, hjól- reiðar og göngur úti í náttúrunni eða innan borgarmarkanna gera sama gagn og ekki er verra að hafa maka, góðan vin, kunningja eða fjölskylduhundinn sér við hlið. Dýrmætt innlegg Jákvætt hugarfar hefur rík áhrif á líðan okkar sjálfra og þar af leið- andi okkar nánustu. Einn af lykl- unum að jákvæðu hugarfari er að horfa með uppbyggilegum hætti á eigin mistök. Fyrst þurfum við að gera okkur grein fyrir því að við gerum öll mistök. Ef við gerum ekki mistök – erum við einfaldlega ekki að gera neitt heldur sitjum með hendur í skauti. Næsta skrefið felst í því að við veltum því fyrir okkur hvort við getum lært af mistökum okkar. Ef við svörum spurningunni játandi, ættum við að líta til baka og draga lærdóm af mistökunum eins og segir í fjórða geðorðinu: „Lærðu af mistökum þínum.“ Með því snúum við mistökunum upp í dýrmætt inn- legg til aukins þroska og traustara taks á tilverunni. Ef við komumst að því að við getum ekki lært af mistökum okkar ættum við að huga að því hvort þau hafi valdið öðrum sárindum. Ef svo er ættum við að biðja viðkomandi afsökunar áður en lengra er hald- ið. Þegar því er lokið þurfum við að tryggja að mistökin verði okkur dragbítur. Þeim þarf einfaldlega að kasta útbyrðis. Ef mistökin hafa tilhneigingu til að skjóta upp kollinum aftur og aftur getur verið árangursríkt að nota svokallað vinar/vinkonu nálg- un. Sú leið felst í því að hugsa með sér hvað maður myndi sjálfur segja við vin/vinkonu ef viðkomandi hefði gert sömu mistök og maður gerði sjálfur og snúa svarinu í framhaldi af því upp á mann sjálfan. Þannig snýr maður væntumþykju gagn- vart vinum/vinkonum sínum upp í – „sjálfs-væntumþykju“. Hvað getur líka verið betri grundvöllur að lífshamingju en væntumþykja gagnvart manni sjálf- um? Lærðu af mistökum þínum LANDBÚNAÐUR Hörður Harðarson formaður Félags svínabænda GEÐHEILBRIGÐI Anna G. Ólafsdóttir f.h. Geðhjálpar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.