Fréttablaðið - 23.12.2014, Síða 36
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 32TÍMAMÓT
Eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
GUÐLAUG MAGNÚSDÓTTIR
félagsráðgjafi,
lést á líknardeild Landspítalans
18. desember síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Hallgrímskirkju 30. desember kl. 11.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið eða Hjálparstarf kirkjunnar.
Þorsteinn Helgason
Magnús Þorsteinsson
Helgi Þorsteinsson
Sigrún Þorsteinsdóttir
Jóna Ann Pétursdóttir
Pernille Folkmann
Þorkell Guðjónsson
og fjölskyldur.
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
HELGI ÓLAFUR ÞÓRARINSSON
læknir,
varð bráðkvaddur á heimili sínu í
Kongsvinger 18. desember. Útför hans
fer fram frá Vinger-kirkju Kongsvinger
30. desember kl. 13.00. Minningarathöfn um
hann á Íslandi verður auglýst síðar.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Pétur Haukur Helgason Magdalena L. Gestsdóttir
Helena Helgadóttir Þorlákur Ingjaldsson
Helga Björk Helgadóttir Martin Hammer
Gunnar Þór Helgason Jenny Marie Ellingsæter
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS ÓLAFSSONAR
Sérstakar þakkir til starfsmanna hjúkrunar-
heimilisins Eirar sem sýndu honum hlýhug
og önnuðust hann af alúð.
Með ósk um gleðileg jól og farsæld á nýju ári.
Jóhanna Bjarnadóttir
Margrét I. Kjartansdóttir Sigmundur Einarsson
Ólafur Kjartansson Nanna Bergþórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁSGEIR HJÁLMARSSON
frá Djúpavogi,
Álfaskeiði 72, Hafnarfirði,
lést á hjartadeild Landspítalans
17. desember síðastliðinn. Útförin fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 5. janúar.
Halldóra Kristín Jónsdóttir
Jónína Dagmar Ásgeirsdóttir Sigmar Sigurðsson
Hjörtur Ásgeirsson Bríet Pétursdóttir
Harpa Ásgeirsdóttir Jónas Guðmundsson
Ásgeir Ævar Ásgeirsson
Hallur Kristján Ásgeirsson Tinna Rut Guðmundsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar,
RAGNAR BJÖRNSSON
Lindargötu 61,
lést 27. nóvember sl. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hins látna.
Unnur S. Björnsdóttir
Svanhildur Björnsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SVANHVÍT HJARTARDÓTTIR
SVANA
frá Geithálsi í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis í Boðahlein 10 Garðabæ,
lést á Landspítalanum Hringbraut
fimmtudaginn 18. desember. Útförin fer fram
frá Garðakirkju föstudaginn 2. janúar kl. 13.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hjörtur Bollason
Eyþór Bollason
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og bróðir,
SIGMUNDUR ÓLI REYKJALÍN
MAGNÚSSON
vélfræðingur,
Mýrarvegi 115, Akureyri,
lést á öldrunarheimilinu Hlíð 17. desember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðju daginn 30. desember,
klukkan 13.30.
Þórný Kristín Sigmundsdóttir
Stefanía Gerður Sigmundsdóttir Helgi Jóhannesson
Sigrún Hulda Sigmundsdóttir Finnbogi Rútur Jóhannesson
Þórir Sigmundur Þórisson
barnabörn og barnabarnabörn
Bjarni Reykjalín Magnússon
Jórunn Þóra Magnúsdóttir
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLAFÍA SIGRÍÐUR HELGADÓTTIR
sjúkraliði, Sléttuvegi 29,
lést á líknardeild Landspítala háskóla-
sjúkrahúss föstudaginn 12. desember.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
mánudaginn 29. desember kl. 13.
Hrólfur Guðmundsson
Anna Helga Hannesdóttir Bo Ralph
Ásdís Eva Hannesdóttir Jónas Kristinsson
Jón Hafsteinn Hannesson Birna Björnsdóttir
Ólöf Röfn, Rakel Linda, Jónas Óli, Andrea Röfn,
Aron Kristinn, Hera Björk, Hannes Björn og fjölskyldur.
„Mér hefur alltaf þótt gaman að eiga
afmæli á Þorláksmessu. Þegar ég var
barn hélt mamma alltaf upp á afmælið
mitt og krakkarnir mættu samvisku-
samlega, enda voru mæðurnar glað-
ar að losna við þá svo þær gætu keypt
jólagjafir og vesenast,“ segir Esther
Helga Guðmundsdóttir hlæjandi spurð
hvernig það sé að eiga afmæli á Þorlák.
Svo vil ég vita af hverju Esther sé
skrifað með h-i. „Ég heiti eftir ömmu
minni sem var nefnd eftir danskri
konu, þannig að h-ið hefur alltaf verið
í okkar ætt,“ segir hún.
Næst er það uppruninn. „Ég ólst upp
í Reykjavík en móðurættin er úr Dýra-
firði og föðurættin úr Rangárvalla-
sýslu og Vestmannaeyjum. Vestfirðir
og Suðurlandið mætast í mér,“ upp-
lýsir Esther Helga sem býr fyrir aust-
an fjall en starfar í MFM miðstöðinni
í Hlíðasmáranum í Kópavogi. Vílar
sem sagt ekki fyrir sér að aka yfir eitt
stykki heiði í vinnuna.
Áður en ég hringdi í Esther Helgu
gúgglaði ég nafnið hennar og datt þá
inn í gamlan þátt með Hemma Gunn
þar sem hún syngur Hamraborgina.
„Já, ég er búinn að bralla ýmislegt í
gegnum tíðina. Ég byrjaði snemma að
syngja og læra það en ég varð líka ung
móðir þannig að það teygðist svolítið
á náminu. Meðan á því stóð söng ég
í Óperukórnum, til dæmis í Sígauna-
baróninum, sem var fyrsta uppfærsla
Íslensku óperunnar.“
Esther Helga hélt til Bandaríkjanna,
í Indíanaháskóla þar sem hún lauk ein-
söngs- og tónlistarfræðinámi. Þá var
hún einstæð móðir með þrjú börn.
„Það var dálítið átak að drífa sig út en
ótrúlega gefandi,“ rifjar hún upp. „Við
vorum mörg frá Íslandi í sama skóla,
Sólrún Braga, Bergþór Páls, Þórunn
Guðmunds og Erna Guðmunds, Ingi-
björg Guðjóns, Sigurður Flosa og fleiri
og fleiri, yndislegur hópur.“
Óperusmiðjan var eitt af því sem
Esther Helga tók þátt í eftir að hún
kom frá námi. Svo stofnaði hún Söng-
smiðjuna þar sem hún kenndi fólki á
öllum aldri, kallaði það síðar Söngsetur
Estherar Helgu og var með námskeið
fyrir lagvísa og laglausa. „Það var
mikið fjör, fullt af sýningum á Hótel
Íslandi, söngleikir, gospelkór og lag-
lausi kórinn. Þetta var mitt aðalstarf
næstu fimmtán árin, þar til ég venti
mínu kvæði í kross,“ segir hún og held-
ur áfram. „Ég hafði glímt við átraskan-
ir og matarfíkn og náði loks bata gegn-
um 12 spora starf. Í framhaldinu fór ég
að læra að vinna með fólk sem átti við
sama vanda að stríða og stofnaði MFM
matarfíknarmiðstöðina árið 2006. Þar
er eina meðferðin með göngudeild-
arsniði sem til er í heiminum í dag en
margt hefur gerst á þeim árum sem ég
hef verið að stússast í þessum málum.“
Í lokin er Esther Helga spurð um
fyrirætlanir sínar í sambandi við stór-
afmælið í dag. Svarið er einfalt. „Ég
fer með börnunum mínum, tengda- og
barnabörnunum út að borða á góðum
veitingastað. Þar njótum við þess að
vera saman.“
gun@frettabladid.is
Er búin að bralla
ýmislegt í gegnum tíðina
Esther Helga Guðmundsdóttir er sextug. Eft ir söngferil og kennslu gerðist hún frum-
kvöðull í meðferð við matarfíkn og átröskun og býður einstaka meðferð á heimsvísu.
FRAMKVÆMDASTJÓRI „Ég fer með börnunum mínum, tengda- og barnabörnunum út að borða á góðum veitingastað,“ segir Esther Helga
um fyrirætlanir kvöldsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þegar ég var barn hélt
mamma alltaf upp á afmæl-
ið mitt og krakkarnir mættu
samviskusamlega, enda
voru mæðurnar glaðar að
losna við þá svo þær gætu
keypt jólagjafir og vesenast.