Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 54
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 50
TÓNLIST ★★★★★
Sorrí
Prins Póló
SKAKKAPOPP
Í þessum póstpóstmóderníska
heimi þar sem fólk sem situr
við sama borð er hætt að talast
við nema í gegnum spjallforrit
á snjallsímum er sem betur til
eitthvað mótvægi, einhver and-
spyrnuhreyfing við andleysinu.
Einlæg andspyrnuhreyfing, and-
spyrnueinlægnishreyfing. Æ
fleiri eru tilbúnir til að vera ein-
lægir, kaldhæðnin er að verða
úr sér gengin, nema þá að kald-
hæðnin sé einlæg (það er hægt,
spyrjið bara Hrafn Jónsson). Það
er eitthvað í loftinu, finnið þið
það ekki?
Vinsældir hljóm-
sveitarinnar Prins
Póló bera vott um
uppgang einlægninn-
ar. Því eru vinsældir
hljómsveitarinnar
í raun kærkomnar,
þær boða betri til-
veru með húmor,
náungakærleik og
fósturlandsást að
vopni. Ekki þjóðremb-
ingsást … heldur nost-
algískri væntumþykju um landið,
um þjóðina, sem við viljum til-
heyra. Hvort sem það er Libby’s
tómatsósa í gleri,
fótanuddtæki eða
hakk og spaghettí
í matinn. Prinsinn
er meira en tón-
list, Prinsinn er
afstaða. Prinsinn
er lífsstíll.
Þegar þetta er
skrifað er ljóst
að Sorrí, önnur
breiðskífa sveit-
arinnar, er plata
ársins hjá Frétta-
blaðinu. Eina sem hægt er að setja
út á það val er að elstu lög plöt-
unnar komu út fyrir allt að þrem-
ur árum en var í ár safnað saman
á eina skífu í fyrsta sinn. Að öðru
leyti er valið fullkomlega réttlæt-
anlegt. Hún er stútfull af smell-
um, sem eru einstakir á sinn hátt.
Þar má finna argasta danspopp í
einu besta lagi Íslandssögunnar
„Hamstra sjarma“, ljúfsára ást-
arballöðu með synþatvisti í „Finn
á mér“, fullkomna sambandslýs-
ingu í „Tipp Topp“ og manifest-
óinu „Bragðarefir“.
Sorrí, það er varla veikan blett
að finna á Sorrí. Hún er frumleg,
hún er galsafull, hún hentar við
öll tilefni – til að dansa, brosa,
hlæja eða gráta. En það sem er
fallegast, er að þjóðin er einmitt
að fatta þetta. Svavar Pétur og
Berglind eru ekki að gefa út sína
fyrstu plötu, þau eru ekki að búa
til ímynd sem er loks að slá í gegn.
Þetta eru þau, spilin lögð á borðið
– einlæglega. Prinsinn er meira
en tónlist. Prinsinn er afstaða.
Prinsinn er lífsstíll. Ertu með?
Björn Teitsson
NIÐURSTAÐA: Prins Póló gefur út
samansafn af frábærum smáskífum
síðustu ára með smá aukasnakki til
viðbótar. Sorrí, en Sorrí er frábær
plata fyrir alla, konur og kalla.
Prinsinn er lífsstíll
PRINS PÓLÓ Svavar Pétur Eysteinsson
er maðurinn á bak við Prins Póló.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Þetta er í 35. skipti sem
Friðargangan er haldin en
hún byrjaði í kringum átt-
unda áratuginn. Gangan
hefur náttúrulega orðið
hjá mörgum ómissandi
partur af jólunum,“ segir
Stefán Pálsson, formað-
ur Samtaka hernaðarand-
stæðinga.
Samtökin eru ein þeirra friðar-
hreyfinga sem halda Friðargönguna
árlegu á Þorláksmessu. „Þarna byrja
jólin hjá mörgum fjölskyldum en það
er ágætt að koma sér niður í bæ og
heyra á friðarmálefni í lokin því að
það er náttúrulega ansi víða ófrið-
vænlegt í heiminum og hefur nú
alltaf verið.“
Safnast verður saman á Hlemmi
frá klukkan 17.45 í dag. Þaðan ligg-
ur svo leiðin niður á Austurvöll.
„Boðskapurinn hefur alltaf verið
sterkur en Ísfirðingar hafa hefð
fyrir þessu og Akureyringar líka,“
segir Stefán. Kolbeinn Óttarsson
Proppé er fundarstjóri samkom-
unnar í Reykjavík en hann sá einn-
ig um það árið 2003. „Þá hafði Íraks-
stríðið byrjað þetta sama ár og gangan
var einhver alstærsta ganga sem við
höfum séð. Það hefur oft verið þannig
að atburðir heimsins hafa áhrif á mæt-
inguna ekki síður en veðrið.“ - þij
Orðinn ómissandi partur af jólunum
Friðargangan verður haldin í 35. sinn í dag. Safnast verður saman í Reykavík, á Ísafi rði og fyrir norðan, á Akureyri.
FRIÐAR-
GANGAN
Myndin er frá
því í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STEFÁN PÁLSSON
Næsti þáttur Black Dynamite
sem sýndur verður á kvöldstöð
Cartoon Network, Adult Swim, í
byrjun 2015 mun fjalla um lög-
reglugrimmd í Bandaríkjunum.
Tónlistarmennirnir Erykah Badu
og Tyler, The Creator verða sér-
stakir gestir í þættinum.
Black Dynamite eru teikni-
myndaþættir byggðir á sam-
nefndri grínmynd frá árinu 2009
sem eru innblásnir af „blax-
ploitation“ kvikmyndum áttunda
áratugarins en þátturinn sem um
ræðir heitir Wizard of Watts.
Í þættinum flækist titilpersón-
an Black Dynamite í óeirðir milli
almennings og lögreglu.
Gera þátt um
lögreglugrimmd
BLACK DYNAMITE Þátturinn verður
sýndur í byrjun næsta árs.
Í dag er Þorláksmessa og það vitum við því sterkur ammoníakfnykur fyllir þegar
loftið. Fólk mun brátt setjast til borðs og
gæða sér á kæstri skötu útbíaðri í tólg –
hefð sem fjölskylda mín hefur aldrei haldið
í heiðri. Líklega hafði viðkvæmt lyktar-
skyn sænskrar ömmu minnar eitthvað með
það að gera. Og seinna meir hið næma nef
Írans, föður míns.
MÍN fyrsta reynsla tengd skötuáti átti sér
því stað fyrir ekki svo mörgum árum þegar
ég vann sem þjónn á veitingastað einum
í miðborg Reykjavíkur. Þetta tiltekna
veitingahús býður upp á afskaplega
vinsæla skötuveislu á Þorláks-
messu. Skötuveislan trekkir svo
að, að allt tiltækt starfsfólk, þar
á meðal ég, var kallað til vinnu
til þess að tryggja að allt gengi
hratt og örugglega fyrir sig
þennan dag.
SOLTNIR gestir tóku að
streyma að skömmu fyrir
hádegi; þeir hraustustu pöntuðu
sér mikið kæsta skötu, byrjend-
ur báðu um lítið kæsta skötu
og þeir ævintýragjörnu fóru í
skötuplokkarann. Stemningin var góð, gest-
irnir léttir í lundu og við starfsfólkið líka,
þrátt fyrir langa og annasama vakt.
NEFIÐ dofnaði eftir því sem á daginn
leið og seinni part dags var ég alveg hætt
að finna ammoníakþefinn, sem ég veit þó
fyrir víst að lá enn eins og slikja yfir öllu
hverfinu. Nokkru eftir miðnætti lauk vakt-
inni og tími til kominn að halda heim í hátt-
inn, en þegar komið var inn í starfsmanna-
herbergið var eins og lyktarskynið tæki
aftur við sér. Skötulyktin var alltumlykj-
andi. Hún loddi við hárið, augnhárin, sokk-
ana og fingurna.
ÉG brá á það ráð að hringja heim til mín og
óska eftir því að sá sem heima væri byrj-
aði strax að láta renna í bað fyrir mig. Við
heimkomu stakk ég mér á bólakaf í baðkar-
ið og tók að skrúbba duglega af mér daun-
inn. Daginn eftir endurók ég leikinn.
SÚ góða stemning sem ríkti meðal fólks
þennan dag stendur mér enn í fersku minni
og allar götur síðan hefur mér þótt skötu-
hefðin nokkuð skemmtileg. Ég hef þó ekki
endurtekið leikinn – ætli ég hafi ekki erft
lyktarskyn foreldra minna.
Þar skriplaði á skötu og haltu kjaft i
BAKÞANKAR
Söru McMahon
Fyrrverandi meðlimur stráka-
bandsins N‘Sync, Lance Bass,
gekk að eiga unnusta sinn
Michael Turchin á laugardag við
glæsilega athöfn á Park Plaza-
hótelinu í Los Angeles. Öllu var
tjaldað til í 300 manna veislunni,
en brúðkaupið var skipulagt af
þeim sama og sá um brúðkaup
Kim Kardashian og Kanye West.
Hjónavígsla Bass og Turchins
mun komast á spjöld sögunnar
þegar brúðkaupið verður sýnt á
sjónvarpsstöðinni E! í febrúar,
en þetta verður í fyrsta sinn sem
brúðkaupi samkynhneigðra verð-
ur sjónvarpað í Bandaríkjunum.
Sjónvarpað í
fyrsta sinn
HAMINGJUSAMIR Brúðkaup þeirra
Bass og Turchins mun fara í sögu-
bækurnar.
8 FORSÝNING
1:50, 3:50, 5:50, 8
8:30
1:30, 4, 6:15
1:50, 3:50, 6
FORSÝNING
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 5.30 – 8 – 10.15
EXODUS 2D KL. 5.45 – 9
MOCKINGJAY– PART 1 KL. 8 – 10.40
DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30
NIGHTCRAWLER KL. 8 – 10.30
NIGHT AT THE MUSEUM 3 KL. 3.30 – 5.45 – 8 – 10.15
EXODUS 2D KL. 8 –11
EXODUS 2D LÚXUS KL. 4.30 – 8 – 11
MOCKINGJAY – PART 1 KL. 8 – 10.45
BIG HERO 6 3D KL. 3.15 – 5.30
BIG HERO 6 2D KL. 3.15 – 5.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15
DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30
- EMPIRE
JÓLAMYNDIN Í ÁR
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
HOLLYWOOD REPORTER
Jólamyndin 2014
VILLAGE VOICE