Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 23.12.2014, Blaðsíða 56
23. desember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 52 KÖRFUBOLTI Árið 2014 gat varla verið mikið betra fyrir kvennalið Snæfells sem í vor fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli og endaði síðan árið í toppsæti Dom- inos-deildar kvenna í körfubolta. Snæfell tapaði reyndar í bikarúr- slitaleiknum í febrúar og í undan- úrslitum Lengjubikarsins í haust en varð bæði deildarmeistari og meistari meistaranna. Þetta var sögulegur titill í Stykkishólmi en sagan var skrif- uð á fleiri stöðum í ár. Þegar kemur að deildarkeppninni hefur ekkert lið í sögu úrvalsdeildar kvenna tekist að vinna svona marga deildarleiki á almanaks- ári. 96 prósent sigurhlutfall Snæfellskonur koma inn í jólafrí- ið á tíu leikja sigurgöngu og höfðu áður unnið sautján fyrstu deildarleiki ársins. Alls unnust 27 af 28 deildarleikjum ársins sem gerir 96 prósent sigurhlut- fall. Karlalið KR vann 21 af 22 deildarleikjum sínum í ár (95 pró- sent). „Ég gerði mér nú ekki grein fyrir að liðið hefði ekki tapað meira en einum leik í deild, það er magnað og tel ég að vinnusem- in í liðinu ásamt góðum kjarna af leikmönnum sem skilja hlutverk sín sé að skila þessum árangri. Liðið tapaði því fjórum af 40 leikjum á öllu á árinu sem ég mjög stoltur af,“ segir Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari liðsins. „Ég tel að það sé einstakt hvernig liðið hefur spilað því við náum ekki mörgum æfingum allar saman enda nokkrir leik- menn búsettir í Reykjavík. Þetta hefur ekki haft áhrif á það að við náum vel saman á vellinum,“ segir Hildur Sigurðardóttir, fyr- irliði Snæfellsliðsins. „Stelpurnar eru tilbúnar að framkvæma það sem liðið ætlar sér og hafa góðan leikskilning. Liðið er síðan leitt af Hildi Sig og hennar leikur smitar út frá sér. Það sýndi líka styrk stúlkn- anna að við sigrum úrslitakeppn- ina nánast án erlends leikmanns í fyrra,“ segir Ingi Þór. Misstu þrjá byrjunarliðsmenn Snæfell missti í sumar þrjá byrj- unarliðsleikmenn, Hildi Björgu Kjartansdóttur og Guðrún Gróu Þorsteinsdóttur, sem voru báðar valdar í úrvalslið ársins á síðasta tímabili og svo hina ungu Evu Margréti Kristjánsdóttur. Það má því segja að Ingi Þór hafi nán- ast þurft að setja saman nýtt lið. „Í fyrra voru Guðrún Gróa og Hildur Björg magnaðar og var maður svolítið kvíðinn fyrir því að missa þær. Einnig fór Eva Margrét aftur vestur en hún var x-faktor fyrir okkur. Við feng- um Gunnhildi (Gunnarsdóttur) og Maríu (Björnsdóttur) til baka og höfum við haldið sjó eftir miklar breytingar,“ segir Ingi Þór. Hildur segir ekkert erfiðara fyrir þær að mæta inn í mótið sem ríkjandi Íslandsmeistarar. „Við erum með nýtt lið og allar tilbúnar og viljugar til að endurtaka leikinn,“ segir Hildur. Það spillir ekki fyrir Snæfells- liðinu að hafa dottið í lukkupottinn með bandaríska leikmanninn sinn, Kristen McCarthy, sem er með 25,8 stig og 12,4 fráköst að meðaltali. „Í ár erum við með alveg ljóm- andi heilsteypta stúlku sem erlend- an leikmann og ég veit að stelp- urnar eru ekki saddar. Við gerum okkur grein fyrir því að það er mikið eftir af mótinu. Við teljum okkur eiga nokkuð mikið inni hjá mörgum leikmönnum. Við erum með ný markmið en titillinn á síð- asta tímabili hjálpaði okkur með sjálfs- traustið sem og hver sigurleik- ur,“ segir Ingi Þór að lokum. ooj@frettabladid.is Ár Snæfellsstelpna Karlalið KR vann 95 prósent deildarleikja á árinu en var samt ekki með hæsta sigurhlutfall íslenskra körfuboltaliða í deildarleikjum ársins. Snæfellskonur settu nýtt met á árinu 2014 með því að vinna 27 af 28 deildarleikjum sínum. ÍSLANDSMEISTARAR Í FYRSTA SINN Páll Óskar syngur hér fyrir nýkrýnda Íslandsmeistara í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKARÓ TUTTUGU SIGRA ÁR Í EFSTU DEILD KVENNA 27 SNÆFELL 2014 24 KEFLAVÍK 1994 OG KEFLAVÍK 2012 21 KEFLAVÍK 1988, KEFLAVÍK 1992, SNÆFELL 2013 OG HAUKAR 2014 20 KEFLAVÍK 2004 Leikmenn og þjálfarar Snæfellsliðsins tala vel um hina 24 ára gömlu Kristen McCarthy sem er á sínu öðru ári í atvinnumennsku eftir að hafa spilað á Ítalíu í fyrra. Kristen er frábær leikmaður og frábær liðsfélagi og ekki var heimsókn móður hennar í nóvember að spilla mikið fyrir áliti Hólmara á McCarthy-fjölskyldunni. Denise McCarthy, móðir Kristen, kom í heimsókn til Íslands í kringum þakkargjörðarhá- tíðina í nóvember og vildi að sjálfsögðu halda upp á þessa stóru hátíð í Bandaríkjunum með dóttur sinni. Það var hins vegar ekki bara Kristen sem fékk klassíska kalkúnaveislu frá mömmu sinni heldur var öllu Snæfellsliðinu boðið í veislu sem verður lengi talað um í Hólm- inum en hún var haldin heima hjá Inga Þór þjálfara. Mamman keypti inn og eldaði ofan í allan mannskapinn. Heimsóknin hafði líka frábær áhrif á Kristen sem skoraði yfir þrjátíu stig í næstu fjórum leikjum liðsins. Mamman bauð öllu liðinu í kalkúnaveislu iPad Air 2 Verð frá 89.990.- Silfur - Gull - Dökkgrár iPad mini Verð frá 46.990.- Silfur - Dökkgrár HANDBOLTI Dagur Sigurðsson, þjálfari þýska landsliðsins í handbolta, hefur valið nítján manna æfingahóp sem býr sig nú undir heimsmeistaramótið í handbolta sem hefst í Katar um miðjan næsta mánuð. Dagur verður einn fjögurra íslenskra þjálfara á mótinu en hann mun fyrst koma hingað til lands með lið sitt og spila tvo æfingaleiki við íslenska landsliðið, dagana 4. og 5. janúar í Laugardalshöllinni. Þýskaland spilar svo tvo æfingaleiki gegn Tékklandi áður en liðið heldur til Persaflóans. „Hópurinn er blanda af ungum og eldri leikmönnum þar sem einblínt er á varnarleikinn. Við höfum einbeitt okkur að honum síðustu mánuði,“ sagði Dagur við þýska fjölmiðla í gær. Ísland verður í C-riðli á HM en Þýskaland í D-riðli. Svo gæti farið að liðin mætist í 16-liða úrslitum komist þau upp úr sínum riðlum. - esá Dagur valdi Íslandsfarana MAGNAÐUR Þórir Hergeirsson hefur náð frábærum árangri. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP SPORT HANDBOLTI Noregur vann enn ein gullverðlaunin á stórmóti undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirssonar en Norðmenn urðu um helgina Evrópu- meistarar kvenna eftir sigur á Spáni í úrslitaleik. Þórir hefur fengið mikið lof í norskum fjölmiðlum eftir sigurinn enda hefur hann endur- nýjað lið sitt að stórum hluta. Hornamaðurinn Camilla Herrem, bar mikið lof á þjálfarateymið eftir sigurinn og sagði að Þórir ætti mikið í velgengninni. „Allt þjálfarateymið hefur lagt gríðar lega mikla vinnu á sig undanfarið ár og mæta ótrúlega vel undirbúin í hvern einasta leik,“ sagði Herrem. „Þetta vill oft að miklu leyti snúast um okkur leikmennina en þjálfarateymið stendur sig afar vel.“ Herrem segir að Þórir viti ávallt nákvæmlega hvað hann eigi að segja við leikmenn fyrir leiki liðsins og að hún fái stundum gæsahúð við að hlusta á hann. „Hann veit hvað hann á að segja upp á hár. Þórir hefur verið í þessu í afar langan tíma og það er enginn betri en hann í að halda rónni þegar mikið liggur við. Það gerir hann einstaklega vel.“ Með sigrinum náði Noregur að tryggja sér keppnisrétt í næstu heimsmeistarakeppni sem og Ólympíuleikunum í Ríó 2016. - esá Þórir heldur ræður sem gefur manni gæsahúð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.