Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 15
15
Matís ohf. er í mörgum skilningi mikilvæg auðlind fyrir Íslendinga. Fyrirtækið er lykilaðili í
matvælarannsóknum og matvælaöryggi og hefur að baki sér þekkingu 100 starfsmanna
sem eru sérfræðingar og vísindamenn á ólíkum sviðum.
Rannsóknir eru íslenskum sjávarútvegi mikilvægar því þæ styðja framþróun, nýsköpun og
markaðsstarf greinarinnar. Hjá Matís er stöðugt unnið að fjölda rannsóknarverkefna sem
tengjast sjávarútvegi með ýmsum hætti. Þannig leitum við sífellt svara og vitum alltaf
meira í dag en í gær.
Rannsóknir
í þágu sjávarútvegs
Gildi Matís
Frumkvæði
Sköpunarkraftur
Metnaður
Heilindi
www.matis.is
Stefna Matís er að
... vera framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni
Íslands og skilar þannig tekjum til íslenska ríkisins
... vera eftirsóttur, krefjandi og spennandi vinnustaður með fyrsta
flokks aðstöðu þar sem starfsmenn njóta sín í starfi
... hafa hæft og ánægt starfsfólk
Hlutverk Matís er að
... efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs
... tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu
umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og
þjónustu
... bæta lýðheilsu
Tappinn í flöskuna
Árni Ketill hefur ekki bragðað
áfengi í meira en aldarfjórðung.
Hann segist ekki hafa misnotað
áfengi á þeim tíma sem hann
var í Hljómsveit Ingimars Eydal,
það hafi ekki verið fyrr en löngu
eftir að hann hætti í þeirri
hljómsveit. „Óhófleg áfengis-
neysla kom ekki til greina þegar
ég spilaði með Hljómsveit Ingi-
mars Eydal enda var þetta svo
mikil vinna að það var einfald-
lega ekki hægt. Ég hætti í
hljómsveitinni árið 1975 og síð-
ar gaf ég frænda mínum, Frið-
riki Júlíussyni, trommusettið og
hætti að spila á trommur í
nokkur ár. Ég fékk mér síðan
nýtt trommusett árið 1992 þeg-
ar ég fór að spila djass með Jóni
Rafnssyni og Gunnari Gunnars-
syni og það sett ætla ég að eiga
þar til yfir lýkur.
Ég setti tappann í flöskuna
fyrir meira en 25 árum og síðan
hef ég ekki einu sinni fengið
mér pilsner. Hef engan áhuga á
því. Ég var um tíma á kafi í golf-
inu og var meðal annars í nokk-
ur ár í stjórn Golfklúbbs Akur-
eyrar. Einu sinni fórum við
nokkrir félagar úr golfinu sam-
an í tíu daga ferð til Spánar en
það fóru í það heila um tveir
mánuðir í mína ferð því ég fór
beint á Vog þegar ég kom heim
frá Spáni. Það var dásamlegt að
losna við áfengið því Bakkus
getur verið harður og óvæginn
húsbóndi. Það sem gerði út-
slagðið að ég ákvað að fara í
meðferð var eins og margir aðr-
ir þekkja í þessum sporum, ég
var að missa allt út úr höndun-
um á mér; fjölskylduna, fjármál-
in og vinnuna. Það var farsælt
skref og gott að losna út úr
þessum fjötrum og ég hef sem
betur fer aldrei haft löngun í
áfengi aftur.“
Í nokkur ár var Árni Ketill í stjórn Golfklúbbs Akureyrar. Á milli Árna og Gunnars Skarphéðinssonar er golf-
goðsögnin Jack Nicklaus.