Ægir - 01.04.2015, Síða 18
18
og setja með undirbúningi og
þátttöku í deginum þar punkt-
inn yfir i-ið í farsælu starfi hans
fyrir sjómenn í Vestmanneyjum
á liðnum árum. „Í Vestmanna-
eyjum hefur verið starfandi sjó-
mannadagsráð síðan 1964 og
það heldur síðan utan um dag-
skrá dagsins og hóar í menn til
þess að koma að allskyns vinnu
í kringum daginn. Á öðrum
stöðum er öðruvísi staðið að
málum, t.d. kemur bæjarfélagið
í ríkum mæli að hátíðarhöldun-
um í Grindavík. Ég stefni að því
að vera í Eyjum á sjómannadag-
inn og fara, eins og hefð er fyrir,
með fulltrúum í sjómannadags-
ráði í skötu til Árna Johnsen áð-
ur en farið er í sjómannadags-
messuna. Það er alveg ómiss-
andi liður í sjómannadagshátíð-
arhöldunum,“ segir Valmundur.
Valmundur telur að mikill
meirihluti sjómanna horfi til
sjómannadagsins með stolti og
haldi upp á hann með fjölskyld-
um sínum. „Í Vestmannaeyjum
er sjómannadagshelgin, sem er
fjögurra daga hátíð, frá fimmtu-
degi og fram á sunnudag, til
dæmis ein sú allra stærsta á ár-
inu,“ segir Valmundur.
Á að færa sjómannadaginn?
Í gegnum tíðina hefur annað
slagið komið upp umræða
hvort sjómannadagurinn eigi
rétt á sér og jafnvel hefur heyrst
að hann sé á óheppilegum tíma
á árinu og því væri nær að flytja
hann til. Valmundur kannast við
þessa umræðu. „Sjómenn munu
alls ekki samþykkja að leggja
þennan dag niður. Ég man hins
vegar eftir því að þegar Smugu-
veiðarnar voru í gangi á sínum
tíma vildu margir útgerðar-
menn ólmir fresta sjómanna-
deginum framyfir þjóðhátíð. En
núna vilja útgerðarmenn halda
sig við að hafa sjómannadaginn
á þessum tíma vegna þess að
makrílveiðarnar eru ekki hafnar.
Þannig að ég held að sjómanna-
dagurinn verði þennan fyrsta
sunnudag í júní um ókomna
tíð,“ segir Valmundur.
Fækkun sjómanna
Almennt segir að staða sjó-
manna í dag sé nokkuð góð, þó
á því séu vitaskuld undantekn-
ingar. „Það sem hins vegar
brennur á mönnum eru fisk-
verðsmálin, þar sem víða er
pottur brotinn, og síðan er því
ekki að neita að margir eru
hræddir um plássin sín því
störfum til sjós er að fækka með
aukinni tæknivæðingu og til-
komu nýrra skipa. Gott dæmi
um þetta er nýjasta skip HB-
Granda, Venus, þar sem er gert
ráð að mest verði tíu í áhöfn í
stað fimmtán áður. Nú er verið
að smíða fleiri uppsjávar- og
bolfiskveiðiskip sem væntanleg
eru í flotann á næstu árum og
það má því búast við enn frek-
ari fækkun sjómanna. Því verð-
ur ekki neitað að gagnvart til
dæmis hvíldartíma höfum við
töluverðar áhyggjur af því að á
mörgum þessara skipa verði
ekki nægilega margir í áhöfn,“
segir Valmundur.
Vinnuhópur skoðar
kjarasamningana
Síðustu kjarasamningar sjó-
manna voru gerðir fyrir hálfu
fimmta ári. Forystumenn sjó-
manna hafa lengi kvartað yfir
því að illa gangi að fá útgerðar-
menn að samningaborðinu en
Valmundur segir það jákvætt í
þessum efnum að nú sé starf-
andi vinnuhópur, skipaður
fulltrúum beggja vegna borðs-
ins, sem sé að fara í gegnum
ýmsa hluti sem tengjast gerð
kjarasamnings.
www.isfell.is
Sjófatnaður
Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:
• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28
• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19
• Ísnet Húsavík - Barðahúsi
• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi
• Ísnet Sauðárkrókur - Lágeyri 1
• Kristbjörg Ólafsfjörður - Pálsbergsgötu 1
• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður -
Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • isfell@isfell.is
Flotinn í höfn og málin rædd við höfnina í Eyjum.