Ægir - 01.04.2015, Blaðsíða 43
43
Í tilefni þess að nú eru 100 ár
síðan íslenskar konur fengu
kosningarétt verður opnuð sýn-
ing um þátt íslenskra kvenna í
sjósókn hér við land í Sjóminja-
safninu við Grandagarð þann 5.
júní sem er föstudagurinn fyrir
sjómannadag. „Í stuttu máli
fjallar sýningin um sjósókn ís-
lenskra kvenna, frá upphafi
landnáms til dagsins í dag,“
segir sýningarstjórinn Íris Gyða
Guðbjargardóttir, starfsmaður
Borgarsögusafns.
Fleiri sjókonur á Íslandi
Sýningin er að sögn Írisar Gyðu
unnin í samstarfi Borgarsögu-
safns og Dr. Margaret E. Willson
mannfræðings sem undanfarin
ár hefur safnað heimildum um
sjósókn íslenskra kvenna. Marg-
aret Willson er bandarískur
doktor í mannfræði og býr í
Seattle. Hún kom fyrst hingað
til lands fyrir um 13 árum og
heimsótti þá meðal annars sjó-
búð Þuríðar formanns á Stokks-
eyri og heillaðist af sögu henn-
ar. „Hana langaði að fræðast
nánar um efnið og hvort til
væru sögur um fleiri sjókonur.
Árið 2012 hóf hún rannsókn og
ferðaðist um landið ásamt
tveimur aðstoðarmönnum og
tók viðtöl við hátt í 100 konur
og skoðaði allar tiltækar heim-
ildir. Rannsóknir hennar verða
gefnar út í ítarlegri bók með
haustinu. Niðurstaða þeirra var
meðal annars sú að sjósókn ís-
lenskra kvenna hafi verið og sé
enn mun meiri hér en í löndun-
um sem við berum okkur yfir-
leitt saman við,“ segir Íris. Sem
dæmi um sjósókn kvenna nefn-
ir hún að á tímabili hafi um 1/3
kvenna við Breiðafjörð róið til
fiskjar. Þá voru konur um tíma
skyldaðar til að sækja sjó ef þær
ætluðu að fá vist og til er spak-
mæli við Breiðafjörð sem segir
„Bundin er bátlaus kona í Breið-
arfjarðarey.“
Fór til sjós 11 ára
Íris Gyða segir að til séu heim-
ildir um sjósókn kvenna allt frá
landnámi. Í Íslendingasögunum
er getið að minnsta kosti
tveggja sjókvenna sem eru
landnámskonurnar Þuríður
Sundafyllir sem segir frá í Land-
námabók og Auður Djúpúðga
sem meðal annars er fjallað um
í Laxdælu og Eyrbyggju. Í gegn-
um tíðina eru fjölmargar frá-
sagnir til af konum sem hafi
verið bátseigendur og formenn
og verið vel metnar og virtar
Íslenskar sjókonur
í þúsund ár
- sýning um sjósókn íslenskra kvenna í Sjóminjasafninu í Reykjavík
Íris Gyða Guðbjargardóttir sýningarstjóri segir að með stækkun skipa og fækkun í áhöfnum hafi orðið erfiðara
fyrir konur að fá pláss og konur með reynslu jafnvel orðið að víkja fyrir reynslulausum körlum.
Halldóra klumba eða klumba formaður, mannaði oft bát sinn eingöngu
konum. Málverk eftir Bjarna Jónsson (1934-2008), í eigu Þjóðminja-
safns Íslands.
K
on
u
r og
sjósók
n