Ægir - 01.04.2015, Side 54
Véltækniskólinn og starfsfólk
óska sjómönnum til hamingju
með daginn og velfarnaðar í
leik og starfi.
Allt frá upphafsárum vél-
stjórnarmenntunar á Íslandi
hafa vélstjórar og sjómennska
tengst órjúfandi böndum eins
og Frans Gíslason fyrrum kenn-
ari við Vélskóla Íslands rekur vel
í bók sinni Vélstjóramenntun á
Íslandi – Vélskóli Íslands 75 ára
(Reykjavík, 1990). Þar er sögu
skólans og vélstjórnarmennt-
unar gerð góð skil. Franz rekur
hvernig einstaklingar með
brennandi áhuga á vélstjórn og
vélstjóramenntun drifu skóla-
hugmyndina áfram og lögðu
grunn að því að Alþingi setti
haustið 1915 „lög um vjelstjór-
askóla í Reykjavík“. Skólinn var
stofnaður sama haust og hefur
starfað óslitið síðan. Fyrsti for-
stöðumaður skólans var danski
vélstjórinn M. E. Jessen og kom
það í hans hlut að byggja upp
nám í vélstjórn og laga það að
íslenskum aðstæðum.
Skólinn og námið hafa verið
í sífelldri mótun og þróun frá
upphafi og er leitast við að
undirbúa nemendur undir fjöl-
breytt störf til sjós og lands, en
þungamiðja menntunarinnar er
sniðin að þörfum sjávarútvegs-
ins og flestir nemendur kjósa
sér störf tengdum sjónum, ann-
að hvort beint sem vélstjórar
eða í smiðjum sem þjóna fisk-
vinnslu, veiðum og fraktflutn-
ingum.
Tækniþróunin hraðari en nokkru
sinni
Í haust eigum við að baki
hundrað ára vélstjórnarsögu
þar sem vélar og vélbúnaður
hafa verið drifkraftur framfara
og velmegunar og mótað sögu
okkar á margan hátt. Ef fyrstu ár
21. aldarinnar eru vísbending
um hver þróunin verður næstu
100 árin, er víst að vélar og
tækni munu þróast mun hraðar
en nokkru sinni og umhverfi
okkar mótast í enn meiri mæli
af nýsköpun og breyttri véla-
menningu. Slíkt umhverfi fram-
fara og tæknilegra byltinga kall-
ar á sífellda endurskoðun vél-
stjórnarmenntunar og á forustu
fagskóla. Tækniskólinn vill og
verður að vera þar í fararbroddi.
Alþjóðlegar kröfur um um-
hverfisvernd og minnkun gróð-
urhúsaáhrifa hafa aukist mikið á
undanförnum árum og munu
verða hertar í náinni framtíð.
Vélaframleiðendur eru að þróa
nýjar vélar og tæki og útgerðir
og framleiðslufyrirtæki eru að
breyta vélum sínum til að tak-
ast á við þessar nýju aðstæður.
Skólinn verður að taka þátt í
þessu og efla umhverfisfræðslu
og hafa tæki og búnað sem nýt-
ist til að efla með nemendum
þekkingu og virðingu á um-
hverfi og náttúru.
Á fáum sviðum er þróunin
eins hröð og í raftækni og raf-
búnaði. Iðntölvur og tölvustýrð
tæki eru að taka við á mörgum
sviðum þar sem hefðbundinn
mekanískur vélbúnaður hefur
verið alls ráðandi áratugum
saman. Efla þarf mjög og end-
urnýja búnað til kennslu í raf-
magnsfræðum. Skólinn hefur
um langt skeið verið öflugur á
því sviði og á áttunda áratug
síðustu aldar lyftu kennarar og
starfsmenn grettistaki í endur-
nýjun tækja, búnaðar og
kennslubóka. Mikill vilji er til að
halda merki þessara ötulu
starfsmanna hátt á lofti og gera
skólann vel í stakk búinn til að
takast á við tækniframfarir 21.
aldarinnar.
Í samræmi við þetta er stefnt
að því að kynna nýja námskrá
vélstjórnar í haust. Þar koma
fram breyttar áherslur varðandi
einstakar brautir skólans. Gert
er ráð fyrir að námslok vélfræð-
inga verði á fjórða námsþrepi
samkvæmt aðalnámskrá. Fjórða
þrepið er framhaldsnám að
loknum framhaldsskóla. Síð-
ustu tvær annir vélstjórnar-
námsins verða þar með á því
sem kalla má fagháskólastig.
Söguleg tímamót gefa tilefni
til að horfa til baka og meta það
sem vel hefur tekist, en um leið
að horfa fram á veginn og
marka stefnuna til næstu ára.
Í haust mun skólinn í sam-
starfi við hagsmunasamtök vél-
stjóra efna til ráðstefnu um
stöðu og framtíðarsýn í
menntamálum vélstjóra. Ráð-
stefnan verður haldin 9. októ-
ber í Hvammi Grand hótel og
hefst kl. 13.
Egill Guðmundsson
skólastjóri Véltækniskóla
Tækniskólans
Vélstjórn í 100 ár
Vélstjórar gegna mikilvægu hlutverki í fiskiskipum dagsins í dag. Hér er hluti búnaðar um borð í nýjasta skipi flotans, Venusi NS 150.
V
élstjórn