Són - 01.01.2011, Page 18

Són - 01.01.2011, Page 18
18 HELGI SKÚLI KJARTANSSON frá 12. öld). Sérnöfn eru hér áberandi, einkum í eldri dæmunum. Sérkenni þessara lína, segir Kuhn, er að einungis þar geta langir nafnorðsstofnar skipað fjórðu bragstöðuna.27 Nú síðast hefur Klaus Myrvoll gert athugun á þessari sömu gerð dróttkvæðra lína með þríkvæðu lokaorði.28 Í dæmasafni hans kemur hún fyrir um 100 sinnum29 Hann staðfestir að hér sé mikið um sérnöfn og geti þau verið hvort heldur lang- eða stuttstofna. Samnöfnin hafi hins vegar verið stuttstofna í byrjun, með svo fáum undantekningum (aðeins þremur fram til 1100: þreskeldi – skjaldborgu – manndáða) að þau hljóti að teljast brot gegn bragreglum. En undantekningunum hafi fjölgað á 12. öld, og þá ekki einungis í samsettum orðum (jarðríki – meinlæti – várkunnir – réttlæti) heldur einnig viðskeyttum eða afleiddum: Þrymlinga – hyggjandi. Þetta er það sem ég tók fyrir að skoða nánar. Til þess bjó ég mér til úrtak, 100 braglínur með hrynjandi dróttkvæðs háttar30 sem allar enda á þríkvæðu orði. Til þess að forðast umdeilanlega leshætti valdi ég línurnar fyrst eftir dróttkvæðaútgáfu Kochs,31 en hún hefur þann kost að Koch var í uppreisn gegn Finni Jónssyni og því líklegur til að víkja frá vafasömustu lesháttum Finns. Línurnar bar ég svo saman við gagna grunn Skaldic Poetry Project, sem byggir á útgáfu Finns og þó með leiðréttingum,32 og staðfesti að þar enduðu þær á sama þríkvæða orðinu. (Þar sem á milli ber um aðra leshætti fylgi ég Skaldic Poetry Project.) Til þess að ná hæfilega samstæðu safni byrjaði ég fyrst á kveðskap 27 „… die einzige Form, in der im vierten Glied eines Dróttkvætt-Verses ein langer Nominalstamm geduldet wurde“ (bls. 178). 28 Myrvoll, bls. 152–153. Vegna þess hvernig hann skiptir umfjöllun sinni, fyrst eftir a- og b-línum, síðan eftir línugerðum og þá orðflokkum, fjallar hann hér einungis um b-línur sem hann telur til E-gerðar og hafa nafnorð í fjórðu stöðu, en þar undir falla langflest dæmin um þríkvæð lokaorð línu. 29 97 sinnum ef samhljóða lína í fleiri en einni vísu er aðeins talin einu sinni. Myrvoll heldur sig við sama tímabil og Kuhn, þ.e. kveðskap sem Finnur Jónsson telur eldri en 1200, skoðar aðeins verk 18 helstu nafngreindra skálda en reynir að greina og flokka hverja einustu línu sem þeim er eignuð – alls rúm sjö þúsund braglína. 30 Langflestar eru einfaldlega dróttkvæðar, þó eru línur teknar með þótt rímmynstrið sé afbrigðilegt, háttlausa, dunhenda o.s.frv., jafnvel runhent ef hrynjandi er eins og í dróttkvæðu. Hins vegar sniðgeng ég töglag þar sem mjög algengt er að línur endi með þessum hætti; þær eru rannsóknarefni út af fyrir sig. 31 Den norsk-isländska skaldedigtningen (reviderad av Ernst A. Koch), 1. bindi, Lundi (Gleerup) 1946. 32 Sjá nmgr. 5.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.