Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 22

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 22
1997 AUKA-KIRKJUÞING 1. mál Nú er prestssetur í prestakalli og er þá presti skylt að hafa þar aðsetur og lögheimili nema biskup heimili annað um stundarsakir. að fenginni umsögn prófasts og viðkomandi sóknamefhda. 42. gr. Nánari ákvæði um starfsskvldur presta skulu settar í starfsreglur, sbr. 60. gr. Sérþjónustuprestar. Almennt. 43. gr. Þar sem almennri prestsþjónustu verður ekki við komið, svo sem á sjúkrastofnunum, við fangelsi og meðal heymarlausra, skal kalla til presta sem að jafnaði hafa sérmenntun til starfans. Biskupi íslands er heimilt að samþykkja að ráðnir séu prestar á vegum stofnana og félagasamtaka. Teljast þeir prestar vera þjónandi prestar þjóðkirkjunnar, sbr. 32. gr. Biskup Islands setur sérþjónustuprestum erindisbréf til viðbótar vígslubréfi. Prestar er starfa erlendis. 44. gr. Biskupi íslands er heimilt að samþykkja að prestar séu ráðnir til starfa meðal Islendinga erlendis. Nánari ákvæði. 45. gr. Nánari ákvæði um sérþjónustupresta skal setja í almennar starfsreglur, sbr. 60. gr- 9. Djáknar. 46. gr. Þjónandi djákni þjóðkirkjunnar er hver sá sem á grundvelli köllunar og vígslu gegnir fastri djáknaþjónustu í þjóðkirkjunni. Djáknar em ráðnir af sóknamefhd í samráði við sóknarprest til þess að gegna sérstaklega tilgreindum störfum á sviði líknar- og fræðslumála innan safnaðar. Heimilt er í samráði við viðkomandi sóknamefnd og sóknarprest og/eða sjúkrahússprest að ráða djákna til starfa á sjúkrastofnun. Til að hljóta ráðningu og vígslu sem djákni þarf hlutaðeigandi að hafa lokið viðeigandi prófi frá guðfræðideild Háskóla íslands og hlotið tilskilda starfsþjálfun á vegum þjóðkirkjunnar. Hafi umsækjandi um djáknastarf lokið prófi frá erlendum djáknaskóla skal biskup íslands leita umsagnar guðffæðideildar Háskóla íslands. Um þjónustu djákna fer nánar eftir ákvæðum í starfsreglum. sbr. 60. gr. 10. Sóknir og prestaköll. Almennt. 47. gr. Sóknin er grunneining þjóðkirkjunnar og starfsvettvangur hennar á hverjum stað. Ein eða fleiri sóknir mynda prestakall. 16

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.