Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 78
1997
AUKA-KIRK JUÞING
2. mál
jarða rennur í ríkissjóð. Umsýsla og ráðstöfun umræddra eigna fer eftir gildandi
lögum á hverjum tíma.
2. gr.
íslenska ríkið skuldbindur sig til þess, á þeim grundvelli sem að framan
greinir, að greiða laun presta þjóðkirkjunnar og starfsmanna biskupsembættisins.
Þá skuldbindur ríkið sig til að setja reglur um umgengni á kirkjustöðum.
3. gr.
1. Ríkissjóður stendur skil á launum:
a) Biskups Islands og vígslubiskupa.
b) 138 starfandi presta og prófasta þjóðkirkjunnar.
c) 18 starfsmannayfirstjómarþjóðkirkjunnar.
2. Fjölgi skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við íbúaskrá
þjóðskrár 1. desember 1996 skuldbindur ríkið sig til að standa skil á launum 1
prests til viðbótar því sem greinir í b-lið 1. mgr. Sama á við um frekari fjölgun.
Fækki skráðum meðlimum þjóðkirkjunnar um 5.000 miðað við íbúaskrá þjóðskrár
1. desember 1996 lækkar talan í b-lið 1. mgr. um 1. Sama á við um frekari fækkun.
3. Fjölgi prestum um 10 sbr. það sem greinir í 1. mgr. skuldbindur ríkið sig
til að standa skil á launum 1 starfsmanns biskupsstoíu til viðbótar því sem greinir í
c-lið 1. mgr. Sama á við um frekari Qölgun. Fækki prestum um 10 sbr. það sem
greinir í 2. mgr. lækkar talan í c-lið 1. mgr. um 1. Sama á við um frekari fækkun.
4. Um ráðningar þeirra sem nefndir eru í 1. mgr. fer eftir gildandi lögum á
hverjum tíma.
5. Um greiðslu launa til framangreindra starfsmanna þjóðkirkjunnar fer
eftir lögum um Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum breytingum.
eða lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, með áorðnum
breytingum, eftir því sem við getur átt.
6. Greiðslur til Kristnisjóðs vegna seldra kirkjujarða falla niður. Þó skal
ríkissjóður greiða árlega, næstu 8 ár, upphæð er svarar til fastra árslauna 1
sóknarprests.
4. gr.
Aðilar líta á samkomulag þetta um eignaafhendingu og skuldbindingu sem
fullnaðar uppgjör þeirra vegna þeirra verðmæta sem ríkissjóður tók við árið 1907.
Aðilar geta óskað eftir endurskoðun á 3. gr. samkomulagsins að liðnum 15 árum
frá undirritun þess.
5. gr.
Samkomulag þetta er gert með fyrirvara um samþykki ríkisstjómar og
Kirkjuþings, svo og samþykki Alþingis á frumvarpi til laga um stöðu, stjóm og
starfshætti þjóðkirkjunnar.
Samþykkt samhljóða.
72