Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 46
1997
AUKA-KIRKJUÞING
1. mál
Óbreytt.
Embœttisgengi presta o.fl.
36. gr.
37. gr.
Orðist svo:
Almenn skilyrði til skipunar eða setningar í prestsembætti eru þessi:
1. 25 ára aldur. Biskup íslands getur þó veitt undanþágu frá því ákvæði.
2. Embættispróf frá guðfræðideild Háskóla íslands eða ffá viðurkenndri
guðfræðideild eða guðfræðiskóla, og skal biskup Islands leita umsagnar
guðfræðideildar Háskóla íslands um hið síðamefnda.
3. Að kandídat hafi ekki gerst sekur um athæfi, sem ætla má að rýn álit hans og
sé ósamboðið manni í prestsstarfi.
Áður en kandídat hlýtur vígslu skal hann hafa hlotið starfsþjálfun samkvæmt
nánari ákvæðum í starfsreglum sbr. 60. gr.
Ráðherra skipar þriggja manna stöðunefhd til þriggja ára. í nefhdinni eiga sæti
fulltrúi tilnefndur af Prestafélagi íslands, annar tilnefhdur af guðffæðideild Háskóla
íslands og einn leikmaður tilnefndur af biskupi íslands úr röðum sóknamefndarfólks
og sé hann formaður nefndarinnar. Nefhdin skal meta hæfhi kandídata til
prestsþjónustu að lokinni starfsþjálfun þeirra. Getur enginn kandídat hlotið vígslu hafi
stöðunefnd samdóma metið hann óhæfan, en þó má hann leita eftir vígslu að fimm
árum liðnum ffá því að nefhdin skilaði áliti sínu og verður hæfi hans þá metið að nýju.
Nefndin skal jafhffamt meta hveijir umsækjenda um prestsembætti teljist
hæfastir og raða þremur hæfustu umsækjendunum í röð þannig að í sæti 1 raðist sá
hæfasti og þannig koll af kolli, með hliðsjón af menntun umsækjenda, ffamhaldsnámi,
starfsferli og öðrum atriðum sem nefndin telur máli skipta.
Að öðru leyti verður kandídat að fullnægja almennum skilyrðum 6. gr. laga nr.
70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.
Val á presti
38. gr.
Óbreytt.
39. gr.
Orðist svo:
Ráðherra veitir þeim embætti sóknarprests sem hlotið hefur bindandi val en
ákvarðar að öðrum kosti veitingu, að fenginni tillögu biskups. Biskup Islands veitir
þeim embætti prests skv. 34. gr. sem hlotið hefur bindandi val en ákvarðar að öðrum
kosti veitingu.
Embætti sóknarprests og prests skv. 34. gr. skal veitt með setningu í eitt ár. Að
þeim tíma liðnum skal skipa viðkomandi í embættið ótímabundið, nema meirihluti
kjörmanna prestakallsins sé sammála um að óska þess að biskup Islands auglýsi
embættið að nýju.
40. gr.
Óbreytt.
Almennt um skyldur presta.
41. gr.
42. gr.
Óbreytt.
Óbreytt.
40