Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 30

Gerðir kirkjuþings - 1997, Side 30
1997 AUKA-KIRK JUÞIN G 1. mál Því ber ekki að neita að upp á síðkastið hefur ríkisvaldið í reynd látið þjóðkirkjunni eftir aukið sjálfræði í margvíslegum málum og séð fyrir sérstökum tekjustofhum ýmissa starfseininga kirkjunnar. Hefur sú þróun og aukin ábyrgð kirkjunnar manna, sem henni fylgir, tvímælalaust orðið til þess að efla starfsemi þjóðkirkjunnar í heild og mun almennt hafa mælst vel fyrir. III. í 62. gr. stjómarskrár lýðveldisins Islands frá 1944 segir að hin evangelisk- úterska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Islandi og skuli ríkisvaldið að því leyti styðja hana og vernda. Ákvæði þetta hefur staðið í stjómarskránni allt frá 1874, en upphaflega var þó notað orðalagið “hið opinbera” í staðinn fyrir “ríkisvaldið”. I stjómarskránni, sem er hin æðsta réttarheimild, em ekki gefm nánari fyrirmæli um þetta efni, t.d. um það hvemig ríkisvaldið skuli styðja þjóðkirkjuna og vemda. Með “ríkisvaldinu” er vafalaust átt við alla þætti þess, þ.e. löggjafarvald, framkvæmdarvald og dómsvald og þær stofnanir sem með þessi málefhi fara — einkum þá að sjálfsögðu tvo fyrri þættina. Nánari framkvæmd þessa stjómarskrárákvæðis er því í höndum ríkisvaldsins og ber Alþingi fyrst og fremst ábyrgð á því að með almennum lögum sé tryggt að skilyrðum ákvæðisins sé fullnægt. Það sem mestu máli skiptir varðandi það efhi sem hér er til meðferðar er það að af þessari stjómarskrárgrein verður sú ályktun dregin, svo að tvímælalaust er, að ríki ogþjóðkirkja eru ekki eitt — þ.e. tiltekinn aðili, ríkið, á að styðja og vemda annan aðila, þjóðkirkjuna. Skilyrði þess að vera íslenskur ríkisborgari annars vegar og þjóðkirkjuþegn hins vegar þurfa heldur ekki að fara saman, svo sem kunnugt er. Það breytir ekki þessari niðurstöðu að mjög náin tengsl em milli ríkisvaldsins og þjóðkirkjunnar. Hún er eftir sem áður sjálfstæð stofnun , sjálfstæður réttaraðili, sem getur borið, og ber, réttindi og skyldur að lögum. Þjóðkirkjan og stofhanir hennar geta því m.a. átt eignir sem njóta m.a. fullrar vemdar 67. gr. stjómarskrárinnar og verða eigi af þeim teknar nema ströngum skilyrðum þeirrar greinar sé fullnægt, enda komi þá ætíð fullt verð fyrir eins og þar er mælt fyrir um. Þegar talað er um íslensku þjóðkirkjuna sem stofnun er hafi a.m.k. nokkurt sjálfstæði eftir lögum og venju og verði eigi talin sem hver annar angi ríkisvaldsins verður að minnast þess að hugtakið þjóðkirkja verður ekki til hér á landi fyrr en með tilkomu stjómarskrárinnar frá 1874, en fyrirmynd viðkomandi ákvæðis var hliðstætt ákvæði í grundvallarlögunum dönsku. IV. í kjölfar þeirrar nýlegu umræðu og þróunar um áherslubreytingar á sambandi eða samskiptum ríkis og kirkju, sem fyrr var getið, var lögð fram á kirkjuþingi 1992 tillaga til þingsályktunar um skipulag íslensku þjóðkirkjunnar. Flutningsmaður hennar var dr. Gunnar Kristjánsson, sóknarprestur á Reynivöllum. Var tillagan síðan samþykkt í eftirfarandi mynd: “Kirkjuþing felur kirkjuráði að skipa nefnd til að gera úttekt á skipulagi íslensku þjóðkirkjunnar og sambandi hennar við ríkisvaldið samkvæmt nánari verklýsingu byggðri á greinargerð sem fylgdi upphaflegu tillögunni. í nefndinni sitji fimm menn tilnefndir af: biskupi og gegni sá formennsku, kirkjumálaráðherra, guðfræðideild Háskóla íslands, stjóm Prestafélags íslands og lagadeild Háskóla 24

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.